Efnahagsaðgerðir
Mánudaginn 20. febrúar 1989

     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Það var ekki rétt, sem 2. þm. Vestf. sagði, að allir hefðu setið hjá við atkvæðagreiðsluna. Ég sagði nei við fyrri atkvæðagreiðslu um fyrri lið og ég get ekki tekið þátt í því að greiða atkvæði með þessum lið né þeim fyrri vegna þess að hér er um blekkingar að ræða, hér er verið að staðfesta þjóðnýtingarstefnu ríkisstjórnarinnar. Og ég segi nei.