Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til fjáraukalaga fyrir árin 1981--1986. Frv. þetta átti að haldast í hendur við frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir sömu ár, enda var því dreift á Alþingi um leið og því frv. og þá gerði ég grein fyrir ástæðum þess að dregist hefur að leggja þessi frumvörp fram á Alþingi á undanförnum árum. Ég lýsti því þá einnig að það hefði verið ákvörðun mín fljótlega eftir að ég kom í fjmrn. að gera hreint borð í þessum efnum og leggja þessi mál öll fram á þinginu til afgreiðslu.
Ég vil enn fremur geta þess að innan fárra daga verða einnig lögð fram hér á Alþingi hliðstæð frumvörp fyrir árið 1987. Þar með á Alþingi að geta verið komið í þau spor, sem það á að öllu jöfnu að vera í, að fylgja eðlilegum vinnubrögðum og tímasetningum í þessum efnum.
Yfirskoðunarmenn ríkisreikninga hafa afhent fjmrn. tillögur sínar til fjárveitingar á fjáraukalögum fyrir hvert áranna 1981--1986 og leggja þeir til að heimiluð séu viðbótarútgjöld við 2. gr. fjárlaga hvert tiltekið ár í samræmi við niðurstöðu ríkisreikninga, sbr. 1.--6. gr. þessa frv.
Ég sé ekki ástæðu til þess að þessu sinni að fjalla nánar um þetta mál. Ég á þó kannski von á því að þegar málið kemur til síðari umræðu kunni einstakir þingmenn að vilja fjalla um efni þess og skipan þessara mála í framtíðinni og áskil mér þá rétt til að taka þátt í umræðunni við það tækifæri.
Að svo mæltu legg ég til, virðulegi forseti, að frv. verði vísað til hv. fjvn. að lokinni þessari umræðu.