Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegur forseti. Það er mér sérstök ánægja að fá að mæla fyrir þessu frv. í dag, frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1979. Ég vona hins vegar að þetta verði í fyrsta og síðasta sinn í þingsögunni sem fjmrh. þarf að standa í slíkum sporum.
Ég vék að því fyrir nokkrum mínútum að þegar ég ákvað að leggja hliðstæð frumvörp fyrir árin á þessum áratug fyrir þingið kom í ljós að hliðstætt frv. fyrir árið 1979, sem hafði verið lagt fyrir 105. löggjafarþingið 1982--1983, hafði ekki orðið útrætt. Frv. hafði ekki síðan verið tekið upp og ég taldi þess vegna nauðsynlegt í samræmi við þau sjónarmið sem ég greindi frá áðan að leggja einnig að nýju fyrir Alþingi frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1979.
Um þetta efni gilda hin sömu sjónarmið og ég rakti í fyrri framsöguræðu minni, ég tel einnig rétt að um þetta ár verði fjallað ásamt hinum og áskil mér þá rétt til að fjalla um málið og framtíðarskipan þessara atriða þegar hv. fjvn. hefur haft tækifæri til að greina þinginu frá sínu áliti.
Ég mælist svo til þess, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til hv. fjvn.