Varaflugvöllur
Mánudaginn 20. febrúar 1989

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Hér fer fram mikilvæg umræða og ráðherrar fengu tækifæri til að tjá sig í þessari umræðu fyrr í dag. Nú sé ég að hér sitja einungis tveir ráðherrar þennan fund. Flestir þingmenn sem hingað hafa sótt fund í kvöld hafa e.t.v. verið bundnir annars staðar, þurft að afboða sig á aðra fundi. Ég vildi gjarnan spyrja hæstv. forseta hvað dvelur ráðherrana og hvort vænta megi komu þeirra á þennan fund í kvöld.