Varaflugvöllur
Mánudaginn 20. febrúar 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Það má undrun sæta hvern skikk forseti þó þrátt fyrir allt hefur á þessu þinghaldi. Þingmaðurinn skal upplýstur um að forsrh. er væntanlegur eftir örfáar mínútur. ( HBl: Er hann alltaf á leiðinni?) Hann mun vera rétt að koma. En ég vil leggja á það áherslu að hér hafa ekki farið fram í kvöld neinar gerviumræður. Hér hafa hv. þm. flutt góðar og málefnalegar ræður og hefði þingmaðurinn verið í þingsal mundi hann samþykkja það og fallast á það.