Varaflugvöllur
Mánudaginn 20. febrúar 1989

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Það er engin spurning um það í mínum huga að við Íslendingar hljótum að standa sjálf að byggingu þeirra samgöngumannvirkja sem við teljum nauðsynleg eins og kom skýrt fram í máli Birnu K. Lárusdóttur sem talaði áðan fyrir hönd Kvennalistans. Það er fráleitt að tengja byggingu slíkra mannvirkja hernaðarframkvæmdum. Þessu hefur hæstv. samgrh. lýst sem sinni skoðun skörulega fyrr í kvöld.
    Það hefur þó einnig komið fram að fyrir liggur að taka ákvörðun um að forkönnun fari fram á hagkvæmni þess að varaflugvöllur verði reistur hér á landi á vegum mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins. Það hefur einnig komið fram að sú ákvarðanataka muni vera í höndum hæstv. utanrrh. Jafnframt kom fram í máli hæstv. forsrh. að hann teldi vafasamt að mannvirkjasjóðurinn legði út í slíkan kostnað nema hann hefði nokkra fullvissu um að framkvæmdir yrðu leyfðar ef niðurstöður reyndust hagstæðar. Það kom líka fram að verði slíkur flugvöllur byggður muni hann heyra undir hæstv. samgrh. Sá hefur þó lýst sig andvígan honum og má nú segja að heldur betur sé verið að þröngva upp á manninn því sem hann hefur ekki beðið um.
    Það þarf ekki mjög fjörugt ímyndunarafl til að láta sér detta í hug að verði litlifingurinn réttur muni höndin öll brátt fylgja eftir. Það er lykilatriði í þessari umræðu að fá skýra afstöðu ráðherra ríkisstjórnarinnar til þeirrar forkönnunar sem hér hefur verið rædd og ég vil sérstaklega leita eftir henni. Hvaða afstöðu hafa hæstv. forsrh. og hæstv. samgrh. til þess að gerð verði slík forkönnun og hverjum álíta þeir að beri að taka ákvörðun um að hún verði eða verði ekki gerð. Það er mjög brýnt að fá svar við þessari spurningu.
    Ég mun ekki lengja þessa umræðu með því að ræða nánar skilgreiningu orðsins ,,friðartímar`` né heldur mögulega staðsetningu varaflugvallar eða tæknileg atriði sem hann varða, hvað þá sívaxandi og ógnvekjandi vígbúnaðaraukningu í Norðurhöfum sem þó væri rík ástæða til og er sannarlega grundvallaratriði í þessu máli. Því má hæstv. utanrrh. aldrei gleyma hversu lengi eða stutt sem hann verður í þessu embætti.
    Hins vegar vil ég aðeins víkja nokkrum orðum að málatilbúnaði og vinnubrögðum í þessu máli sem mér finnst bera óheilindum vitni. Það vekur furðu að þetta mál skuli komið upp nú jafnrækilega og það stingur í stúf við málefnasamning ríkisstjórnarinnar. Það vekur ekki síður spurningar um samheldni og samstöðu þeirra flokka sem standa að núverandi ríkisstjórn. Mesta furðu vekur þó að samtímis því sem hæstv. utanrrh. hefur gert sér dælt við og rekið áróður fyrir hugmyndum um sameiningu Alþfl. og Alþb. á hann frumkvæði að því að beita sér fyrir aðgerðum sem virðast til þess fallnar að kæfa slíkar hugmyndir í fæðingu. Þetta vekur umhugsun um hvað formönnum þessara flokka hafi gengið til er þeir fleygðust um landið með málfundi sína og boðuðu mönnum nýja sameinaða hreyfingu A-flokkanna. Var þetta kannski bara persónuleg auglýsingaherferð fyrir formennina

eins og suma gárungana grunaði? Meinti þá hæstv. utanrrh. ekkert með sameiningartali sínu á þeim fundum? Voru þetta kannski einungis einhverjar blýantsnagarafullyrðingar? Getur verið að þessir fyrrum förunautar á landshornaflakki hafi gleymt að minnast á varaflugvöll kostaðan úr mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins sín á milli? Eða er þessi ráðagerð að yfirlögðu ráði hæstv. utanrrh. á bak við förunaut sinn? Hvers vegna velur hann þennan tíma til að rugga ríkisstjórnarbátnum? Er hann einn um að rugga honum? Hjálpar honum einhver til þess? Ætla menn þessum gamalreynda stjórnmálamanni flaustur, hugsunarleysi?
    Ætla menn að hann sé ekki nógu reyndur riddari í hringstiga fílabeinsturns utanríkismálanna og hafi því ekki áttað sig á blæbrigðunum eins og velviljaður stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar orðaði í mín eyru? Hvern er hæstv. utanrrh. að reyna að blekkja? Sjálfan sig? Það er augljóst mál að mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins kostar aðeins hernaðarlega mikilvægar framkvæmdir. Meira að segja fékkst ekki einu sinni fé úr honum til að byggja skrifstofubyggingarnar yfir Atlantshafsbandalagið í Brussel. Það fé þurfti að útvega annars staðar frá. Er hann að reyna að blekkja samráðherra sína? Tæplega. Er hann að reyna að blekkja fólkið í landinu? Vonandi ekki. Hvað gengur hæstv. utanrrh. til? Við hvern bindur hann trúnað sinn?
    Það er nauðsynlegt að ítarleg umræða fari fram um þessi mál hér á Alþingi og er þeim tíma vel varið sem til hennar fer. Það má ekki verða að læðupokast sé með mál sem varðar samgönguöryggi og efnahagslegt sjálfstæði þessarar þjóðar. Umræða og ákvarðanataka um slík mál þarf að fara fram fyrir opnum tjöldum og ég vænti svara frá hæstv. ráðherrum við þeim spurningum sem ég bar fram.