Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti gefur mér tilefni til að tala um fundarsköp, en ég kann ekki við það á meðan formaður fjh.- og viðskn. er fjarverandi og þykir ósmekklegt af hæstv. forseta að taka þetta mál upp á meðan þar sem hann hafði orð á því fyrr í kvöld að til þess yrði að taka tillit við nefndarstörf ef óhæfilega lengi yrði haldið áfram í þinginu. ( Forseti: Ég vil upplýsa hv. þm. að það er fundur hjá tíu nefndum í fyrramálið og enginn annar en hv. þm. hefur talið eftir sér að mæta á þá fundi þrátt fyrir kvöld- eða næturfund.) Ég sé að hæstv. forseti ræður sér ekki og langar til að fara að þrátta um þingsköp og má vel láta það eftir honum þegar þessari umræðu er lokið ef hæstv. forseti óskar eftir því.
Hins vegar vil ég þakka hæstv. forsrh. fyrir að koma hingað til umræðunnar. Ég hafði vænst þess að úr því að hæstv. forseti hafði ákveðið að halda áfram bæði umræðum um þetta mál og eins um stefnumörkun ríkisstjórnarinnar að hæstv. forsrh. mundi verða við og var raunar ekki eini þingmaðurinn sem gerði athugasemdir við að halda umræðu áfram án þess að ráðherrar væru hér og það voru ekki aðeins þingmenn Sjálfstfl. sem gerðu athugasemdir við það ef nauðsynlegt er aðeins að byrja á því að tala um fundarsköp.
Ég vil taka undir með 10. þm. Reykn. Kristínu Halldórsdóttur að það er fallegt á bökkum Laxár og í Aðaldal, í Reykjadal og víðar í Norðurlandi eystra og vil sannarlega mega óska þess og vænta þess að hv. þm. geri ferð sína oftar norður þangað en hún hefur haft tækifæri til, kannski ekki fyrst og fremst vegna þessa landsfjórðungs heldur vegna sjálfrar sín til þess að hv. þm. fái að njóta náttúrugæðanna norður þar. Mér yrði mikil ánægja að því að hitta hv. þm. á hennar æskuslóðum.
En ég stóð ekki upp til að velta fyrir mér náttúrufegurð Aðaldals né þeim fallegu bókmenntum sem þar hafa verið skrifaðar heldur til að spyrja hæstv. forsrh. hvort það sé rétt skilið hjá mér að hann hafi ekki enn gert það upp við sig hvort varaflugvöllur sem kostaður yrði af mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins sé meiri háttar hernaðarmannvirki. Hæstv. forsrh. hafði óljós orð um þetta, talaði um að menn vildu fá nákvæmari skilgreiningu á því hvað væru friðartímar og hvað ekki og talaði um að slíkur varaflugvöllur, sem reistur yrði af Atlantshafsbandalaginu, yrði ekki meiri háttar hernaðarmannvirki á friðartímum o.s.frv.
Hins vegar hafa aðrir þingmenn Framsfl. lýst því yfir hér við umræðurnar að þeirra skilningur sé sá að hér sé um meiri háttar hernaðarmannvirki að ræða og vísað í þeim efnum til stjórnarsáttmálans. Hv. 3. þm. Austurl. Jón Kristjánsson taldi að málsgreinin ,,Ríkisstjórnin mun ekki gera nýja samninga um meiri háttar hernaðarframkvæmdir`` ætti beinlínis við um þann varaflugvöll sem við erum nú að tala um og var eftirtektarvert að hæstv. forsrh. sagði í dag að hann ætti bágt með að trúa öðru en mannvirkjasjóðurinn vildi fá fullvissu fyrir því að í varaflugvöllinn yrði
ráðist áður en mannvirkjasjóðurinn mundi kosta hagkvæmniathugun fyrir slíkan völl. Af þessu tilefni er óhjákvæmilegt að spyrja hæstv. forsrh. hvort hann hafi eitthvað fyrir sér í því sambandi, hvort hann hafi þegar upplýsingar um að tilgangslaust sé að ræða um hagkvæmniathugun fyrir varaflugvöll hér á landi þar sem Atlantshafsbandaslagið sé þegar ráðið í því að byggja slíkan flugvöll erlendis vegna þeirrar afstöðu sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur í þessu máli. Ég trúi því ekki að hæstv. forsrh. hafi komist svo ógætilega að orði án tilefnis og tel þess vegna nauðsynlegt að fá um þetta skýrari svör.
Annað, sem raunar var í mótsögn við þennan kafla í ræðu hæstv. forsrh., var að honum varð tíðrætt um að hér á landi væri enginn flugvöllur sem væri meira en 3 km og talaði sérstaklega um flugsamgöngur til Japans í því sambandi. En líka vakti athygli að hæstv. samgrh. vék sérstaklega að því á eftir og reyndi að gera grín að mönnum sem töluðu um svo fullkominn flugvöll, talaði um flugvelli sem voru 2400 og 2800 m ef ég man rétt. (Gripið fram í.) 2700. Það munaði þarna litlum 300 m á hæstv. samgrh. og forsrh. Í þessu samhengi tók hæstv. samgrh. þá líkingu að menn vildu alltaf bæta við sig svo sem einni slökkvistöð og einni slökkvibifreið eða einum slökkviliðsmanni eða einni slökkvidælu og tók þannig samlíkingu alveg út í hött til þess að gera lítið úr þeirri skoðun hæstv. forsrh. að það væri æskilegt að fá hingað flugvöll sem væri 3000 m eða stærri.
Nú er það kannski ekki aðalatriðið þó samgrh. hafi þannig tekið krók á sig til að gera lítið úr málflutningi hæstv. forsrh. Það er aukaatriði í þessu máli. Aðalatriðið er að málatilbúningur ráðherranna er með þeim hætti að óhjákvæmilegt er annað en ætla að þetta mál sé þegar dautt, fyrir liggi innan ríkisstjórnarinnar sá skilningur að utanrrh. hafi ekkert forræði yfir þessu máli. Það var að vísu líka ógreinilegt sem formaður þingflokks Alþfl. sagði um það atriði því að hann sagði einu sinni í sinni ræðu: Sá ráðherra sem mál þetta varðar, en síðar í ræðu sinni hafði hann ráðherra í fleirtölu og sagði: Þeir ráðherrar sem málið heyrir undir. Hann gerði ýmist að tala um varaflugvöllinn og spurninguna um hvort við mundum heimila mannvirkjasjóði
Atlantshafsbandalagsins að gera slíka hagkvæmniathugun þannig að segja að það mál heyrði undir einn eða tvo ráðherra. Allt er þetta þannig mjög óljóst og ég vil taka undir með hæstv. samgrh. fyrr í dag að það er hæstv. forsrh. sem sker úr um undir hvorn ráðherrann, utanrrh. eða samgrh., þetta mál heyrir. Hæstv. samgrh. segir að um það sé fullt samkomulag í ríkisstjórninni og enginn ágreiningur að það sé á forræði forsrh. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. forsrh. um það beint: Heyrir þetta mál undir hæstv. utanrrh. eða heyrir þetta mál undir hæstv. samgrh. eða er þetta kannski eitt af þessum málum þar sem slá á úr og í?
Það er líka annað í þessu atriði sem vekur athygli og það eru þau ummæli hæstv. samgrh. að fyrir dyrum standi að verja stórkostlega auknu fé til
flugvallargerðar hér á landi. Nú hefur samgrh. að vísu beitt sér fyrir því að skera vegaframkvæmdir niður við trog og hæstv. samgrh. hefur staðið sig heldur ég vil segja dauflega í hafnarmálum þannig að hafnarframkvæmdir eru mun minni en verið hefur. Þá er spurningin: Er hann kannski að velta því fyrir sér að auka verulega framkvæmdir til flugvallamála frá því sem áður hafði verið lýst yfir eða var það allt saman yfirklór? Það væri líka fróðlegt að fá um það nánari upplýsingar.
Ég skal svo ekki að öðru leyti, hæstv. forseti, gera þessi mál að frekara umræðuefni. Mér þykir nauðsynlegt að fá skýrari svör um það frá forsrh. hvað hann var að fara. Ég ætla ekki að taka þátt í hinum klassísku umræðum við Alþb. og þá sem eru á svipaðri línu og hafa lært af þeim fræðin, hvort okkur sé nauðsynlegt eða ekki að halda uppi öryggisgæslu hér á landi og vil þó minna á það, sem hv. 8. þm. Reykv., hv. 14. þm. Reykv. og fleiri sögðu áðan, að það er auðvitað mikilsvert að eftirlitið frá flugvöllum hér á landi sé sómasamlegt og sé sem best vegna þess að einungis með þeim hætti að hinar lýðfrjálsu þjóðir geti staðið saman um varnir landsins, varnir sinna landa og haldið uppi nauðsynlegu eftirliti á norðurhöfum eru möguleikar fyrir því og von til þess að draumur okkar um afvopnun á þessu svæði geti ræst.