Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Þar sem hæstv. forsrh., hæstv. menntmrh. og hæstv. samgrh. eru allir í salnum nú þegar klukkan er að verða eitt að nóttu svo og hæstv. utanrrh. sé ég ekki ástæðu til þess að fara að ónáða hæstv. fjmrh. um miðja nótt. Ég geri ráð fyrir að hæstv. forsrh. sé fullfær um að svara fyrir ríkisstjórnina alla, svo og aðrir hæstv. ráðherrar.