Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forsrh. mælti fyrir tilkynningu frá ríkisstjórninni. Hann er ábyrgðarmaður fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar, skulum við vona. Mér finnst satt að segja fáránleg krafa að hér eigi að fara að kalla út um hánótt alla ríkisstjórnina. Ég held að hæstv. forsrh. hljóti að vera fullfær um að svara fyrir tilkynningu ríkisstjórnar sinnar.