Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 21. febrúar 1989

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Það voru aðallega orð hv. 4. þm. Vesturl. Skúla Alexanderssonar sem fengu mig til að koma hér. Að vísu ætlaði ég einnig að taka til máls um ákveðin efnisatriði. Það er náttúrlega mjög alvarleg fullyrðing fyrir stjórnarstuðningsmann að lýsa því yfir hér og nú, á sama tíma sem hann væntanlega ætlar að greiða atkvæði með þessu frv. til laga um efnahagsaðgerðir, það er náttúrlega mjög alvarlegt mál þegar stjórnarþingmaður lýsir því yfir að það sem hann ætlar að fara að samþykkja muni í engu breyta rekstrarstöðu sjávarútvegsins til hins betra. Sagði hv. þm. ekki þetta? Þetta eru náttúrlega mjög alvarleg orð, svo ekki sé meira sagt, því að hér talaði líklega sá hv. þm. sem kann einna best skil á sjávarútvegi á hv. Alþingi. Þannig að þegar maður þessarar gerðar stendur upp og lætur þessi orð falla þá verð ég að segja að þá ætti hæstv. ríkisstjórn að skoða betur hvað hún er að reyna að gera í þessum efnum.
    Það var annað sem hv. þm. sagði einnig sem staðfestir það sem ég álít og mun víkja að betur hér á eftir. Hann sagði að með þessum aðgerðum væri verið að ríkistryggja hallarekstur sjávarútvegsins. Á sama tíma og hann segir þetta er hann nýbúinn að segja hitt, að hér sé ekki verið að breyta neinu um rekstrarstöðu sjávarútvegsins til hins betra. Hvað þýðir þetta nú á einföldu máli? Það er raunverulega verið að breyta tapstöðu sjávarútvegs án þess að bæta stöðuna með þeim hætti að það er verið að ríkistryggja hallarekstur sem þýðir náttúrlega ekkert annað á mæltu máli en að það er verið að yfirtaka þetta af hálfu hins opinbera. Það er raunverulega sú niðurstaða sem ég hefði viljað láta koma fram í mínu máli að því miður er þetta rétt, og því miður veltur það á atkvæði hv. þm. hvort þessi vonda staða heldur áfram og hvort þessi beina og óbeina yfirtaka opinberra aðila og opinberra sjóða á sér stað í sjávarútvegi eða ekki.
    Allar þessar aðgerðir svonefndar eru gjörsamlega ófullnægjandi og verri en ófullnægjandi, eins og komið hefur fram í ræðum manna hér á undan mér og þær munu því miður ekki leysa vandamál þeirra byggðarlaga né þeirra fyrirtækja sem hlut eiga að máli eins og hæstv. forsrh. vildi halda fram í ræðu sinni áðan. En þessar aðgerðir fela í sér alveg skýlaust, enda staðfest af stjórnarstuðningsmanni, hv. þm. Skúla Alexanderssyni, beina og óbeina yfirtöku hins opinbera á fyrirtækjum sem hafa lent í greiðslu- og rekstrarörðugleikum, og eins og hv. þm. lýsti svo vel hér áðan, fyrst og fremst vegna rangrar stefnu stjórnvalda í atvinnu- og efnahagsmálum. Sem sagt: Frv. sem við erum að ræða hér er röng stefna við lausn þessara vandamála.
    Ég er þeirrar skoðunar að það sé óeðlilegt að Alþingi skuli eiga að samþykkja frv. til l. um efnahagsaðgerðir sem fela í sér þessa grundvallarbreytingu og einnig þá grundvallarbreytingu á eignarhaldi fyrirtækja í útflutningsatvinnugreinunum án þess að fyrir liggi nánari upplýsingar um rekstrarstöðu umræddra fyrirtækja, eigna- og skuldastöðu o.s.frv.

    Hv. þm. Skúli Alexandersson kann glögg skil á þessu enda rekur hann sjálfur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki. En ég vil taka annað dæmi sem ekki hefur verið dregið fram og það er þess vegna sem ég tel nauðsynlegt að hv. þm. séu upplýstir betur um rekstrarstöðu, eigna- og skuldastöðu þeirra fyrirtækja, sem á nú að aðstoða, eða á að breyta um eignarhald á með þessum óbeina og beina hætti í gegnum opinbera sjóði. Ég vil taka dæmi sem staðfestir að það liggja ekki skýrar fyrir allar upplýsingar um raunverulega stöðu fjölda þeirra fyrirtækja sem hér eiga aðild að. Ég spyr, og vil leyfa mér að beina þeim orðum jafnvel til hæstv. forsrh. þó ég geri varla ráð fyrir að hann geti svarað því hér og nú: Hver skyldi vera raunveruleg eignarstaða kaupfélags eða samvinnuútgerðar sem rekur útgerð og fiskvinnslu með tapi og hefur sótt um aðstoð frá Atvinnutryggingarsjóði? Hver skyldi hún raunverulega vera þegar allt er gert upp? Þetta er nefnilega mjög skýrt dæmi sem hægt er að taka.
    Það er vitað og það er staðfest að t.d. eignarhluti Sambands ísl. samvinnufélaga, svo sem kaupfélaganna og samvinnuútgerðarfyrirtækja, er ekki færður upp í reikningum viðkomandi fyrirtækja sem eign. Þetta er óeðlilegt, bæði frá rekstrarlegu sjónarmiði séð og einnig frá því sjónarmiði séð að eignaraðili skuli ekki vita hvað hann á raunverulega í sameign í þeim fyrirtækjum sem hann er þátttakandi í. Þetta gefur nefnilega ranga mynd um raunverulega eignastöðu viðkomandi fyrirtækis í sameignarfyrirtæki eða samvinnufyrirtæki eins og Sambandið er. Eignarstaðan í viðkomandi samvinnuútgerðarfyrirtæki eða kaupfélagi verður lægri og lakari en hún raunverulega er. Hvers vegna segi ég að hún sé hugsanlega lakari? Það er vegna þess að ég geri ráð fyrir því og gef mér það, og vil gjarnan standa á því þar til annað sannast, að eignir Sambands ísl. samvinnufélaga séu verulegar. Ég mundi áætla að nettóeignir Sambandsins gætu verið 3--4 milljarðar eða jafnvel eitthvað meira. Auðvitað á Sambandið sjálft af sjálfsdáðum að gefa út árlega eignarhlutaskírteinin í eignum Sambandsins sem eignaraðilar fengju og þar með mundi höfuðstóll viðkomandi fyrirtækja styrkjast mjög, svo að ekki sé meira
sagt.
    Það mundi einnig styrkja þessi fyrirtæki gagnvart bönkum og lánastofnunum og alveg sérstaklega, ég undirstrika þetta, alveg sérstaklega mundi það væntanlega auðvelda störf Atvinnutryggingarsjóðs og hugsanlega þyrfti hlutafjársjóður ekki að koma jafnsterkt til skjalanna og menn hafa haldið og óttast. Þar með væri þessu rekstrarformi, samvinnuforminu, samvinnufélögunum úti á landi, litlu eignarfélögunum í Sambandinu forðað frá því að lenda undir --- ja, ég segi óbeinni eða beinni stjórn opinberra sjóða eða fyrirtækja eins og margir hv. þm. óttast og ég þar með. Ég hef alltaf litið á kaupfélögin og samvinnuútgerðarfyrirtækin sem sjálfstæðar rekstrareiningar í nokkurs konar almenningseign þar sem fólkið kæmi til skjalanna og tæki þátt í rekstri

fyrirtækjanna með stjórnunaraðild. Þess vegna er ég frekar hlynntur því í samkeppni við einkareksturinn. Ég óttast mjög ef hið opinbera fer inn í þessi fyrirtæki sem og inn í einkafyrirtækin.
    Það var eitt atriði sem hv. 2. þm. Norðurl. e. Halldór Blöndal kom inn á sem ég vildi einnig víkja nokkrum orðum að, virðulegi forseti. Hv. þm. hafði miklar áhyggjur út af hugsanlegri valdníðslu af hálfu núv. ríkisstjórnar í sambandi við þær ráðstafanir sem hún hyggst gera í gegnum þetta frv. til laga um efnahagsaðgerðir. En það er ráð til við því, til að koma í veg fyrir það að hæstv. ríkisstjórn grípi til slíkrar valdníðslu sem hv. þm. óttast. Ég er ekki mjög hræddur um að hæstv. ríkisstjórn geri það. Hins vegar liggur það í augum uppi að nái þetta frv. fram að ganga mundi það náttúrlega hrista upp í núverandi valdakerfi og það mundu alveg örugglega koma til skjalanna einhverjir nýir aðilar inn í þá endurskipulagningu sem framkvæmd yrði á grundvelli þeirra laga ef frv. verður samþykkt. En látum það vera. Allir erum við Íslendingar og við verðum að treysta því að þeir menn sem hæstv. ríkisstjórn setur í þessi embætti séu heiðvirðir og heiðarlegir menn.
    En það er til annað ráð miklu betra, alveg óbrigðult. Það er að krefjast birtingar á þeim útreikningum, þ.e. forsendunum fyrir fyrirgreiðslu og aðstoð sem þeim fyrirtækjum verður veitt sem Atvinnutryggingarsjóður og hlutafjársjóður munu koma sérstaklega við sögu hjá. Það er nefnilega hægt að gera þetta allt að opinberu máli sem þjóðin á raunverulega öll rétt á að fylgjast með. Við erum ekki að tala hér um neina smámuni. Við erum að tala hér um frv. sem að mínu mati framkallar grundvallarbreytingu í eignarhaldi á sviði útgerðar og fiskvinnslu í framtíðinni. Því miður. Þess vegna á þetta að vera opinbert mál því hér er um meiri háttar ráðstafanir að ræða á opinberu fé með stjórnvaldsgerð. Það er verið að færa til milljarða kr., það er verið að ganga í ábyrgðir fyrir fleiri milljarða kr. og það er verið að verðbæta fisk fyrir tæplega einn milljarð kr. Auðvitað á að framkvæma þetta allt fyrir opnum tjöldum. Það á ekki að vera neitt leyndarmál hvernig þessir hlutir gerast. Ég lít nefnilega þannig á að hér sé um mjög óvenjulegar aðgerðir að ræða sem muni raska fyrri hugmyndum um hvernig eigi að standa að atvinnurekstri á Íslandi í framtíðinni. Því miður. Þess vegna finnst mér þetta vond stefna.
    Staðreyndin er sú að þessi leið þýðir að það skiptir litlu máli lengur fyrir aðila úti í atvinnulífinu, sérstaklega í útflutningsframleiðslunni að leggja áherslu á heilbrigðan atvinnurekstur, þ.e. sparnað og dyggð í öllum rekstri. Þeir sem þannig hafa staðið að málum uppskera ekki sem skyldi þegar það gerist að hið opinbera hirðir upp tapfyrirtækin og réttir þeim styrktarfé eða ríkistryggingu til þess að halda þessum fyrirtækjum gangandi svona almennt séð. Með þessum aðgerðum er raunverulega verið að dæma stóran hluta einkafyrirtækja úr leik og jafnvel einnig stóran hluta samvinnufyrirtækja. Það er verið að taka afstöðu til breyttra rekstrarforma hvað þetta áhrærir vegna þess

að það er ekki reynt að laga grundvöllinn, forsendurnar fyrir rekstri fyrirtækjanna með almennum aðgerðum, eins og hv. þm. Skúli Alexandersson kom réttilega inn á í sinni ræðu. Þess vegna er þetta frv. ekki rétt aðferð til þess að styrkja stöðu íslenskra atvinnuvega og íslenskra fyrirtækja.
    Ég óska þess vegna eftir því að heyra álit hæstv. forsrh. á því hvort það sé ekki eðlilegt að hv. þm. fái enn nánari upplýsingar um ástæður fyrir þeirri erfiðu stöðu sem þessi fyrirtæki eru komin í sem leita núna á náðir Atvinnutryggingarsjóðs. Og svo vildi ég gjarnan heyra álit hans á því hvort ekki kæmi til mála þá að birta þjóðinni allar þær forsendur og stöðu þeirra fyrirtækja, jafnvel nafn fyrirtækjanna sem um er að ræða í því starfi að ríkistryggja hallarekstur.
    Hv. þm. Skúli Alexandersson kom hér með mjög alvarlega athugasemd eða réttara sagt fullyrðingu sem raunverulega breytir allri umræðu um þetta mál. Hann fullyrti að það væri verið að ríkistryggja hallarekstur og það mundi ekkert laga rekstrarstöðuna.
    Að lokum, forseti, vil ég gjarnan fá því svarað hjá hæstv. sjútvrh. hvernig beri að skilja 1. gr. þess frv. sem hér er til umræðu. Varðandi það atriði hvort fyrirtækin ættu að endurgreiða umræddar upphæðir sem hafa farið til greiðslu verðbóta sagði hv. þm. Eiður Guðnason eitthvað á þá leið að fyrirtækin mundu að sjálfsögðu endurgreiða þetta ef þau gætu. Ég vildi spyrja
annaðhvort hæstv. forsrh. eða hæstv. sjútvrh. að því hvort þeir hafi sama skilning á því og hv. þm. því hann er stuðningsmaður úr þriðja flokknum sem styður þessa ríkisstjórn. Ég hef verið þeirrar skoðunar og skilið það þannig á orðum hæstv. sjútvrh. á öðrum vettvangi að ríkissjóður mundi yfirtaka umrædd lán og þau kæmu ekki til greiðslu af hálfu þeirra fyrirtækja sem hafa notið þessara verðbóta.
    Ég tek líka undir það, sem hv. þm. Skúli Alexandersson sagði, að auðvitað er það ekkert aðalatriði út af fyrir sig hverjir skipa stjórnir sjóða eins og þessa hlutafjársjóðs sem 9. gr. gerir ráð fyrir. Samt verð ég að segja það að þar sem hér er um opinberan sjóð að ræða sem kemur til skjalanna í mörgum og alveg örugglega erfiðum verkefnum þá finnst mér það ekki eðlilegt að hann skuli lúta stjórn þriggja manna sem eru skipaðir af forsrh. Það hefði verið eðlilegt að stjórn sjóðs sem þessa hefði verið kjörin af hinu háa Alþingi.