Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Hér er komin fram brtt. við 3. umr. Það er eðlilegt, ekki síst með tilliti til þess að afbrigði þurfti til að hægt væri að ræða till., að þingmenn fái örstuttan tíma til þess að kanna till. Mér er það ljóst að hugsunin sem kemur fram í þessari brtt. er til mikilla bóta, en spurningin er hvort breytingin sé of þröng þegar stendur í breytingartillögugreininni að miða skuli við þau hlutafélög sem hafa til þess heimild Verðbréfaþings Íslands, að þeim sé heimilt að annast sjálf útboð markaðsbréfa sinna.
Mér er ljóst að sjálfsagt er erfitt að finna skilgreiningu en mig langar til að spyrja nefndina, einhvern úr hv. fjh.- og viðskn. og þá væntanlega formann nefndarinnar eða einhvern annan sem tekur hér til máls í umræðunum, hvort það hafi verið kannað hvort beita megi fremur skilgreiningu sem kemur fram í 11. gr. laga nr. 9 frá 1984. En þau lög fjalla um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestinga manna í atvinnurekstri. Í 11. gr. laganna er þeim hlutafélögum lýst og þau skilgreind sem eru þannig í gerð sinni og starfsemi að ákveðnar skattfríðindareglur gilda um þau félög. Til þess að lýsa því nánar út á hvað þetta gengur segir í 11. gr. að frádrátturinn, þetta er frádráttur til tekjuskatts, sé bundinn því skilyrði að um hlutafélög sé að ræða sem hafi minnst 5 millj. kr. hlutafé og fjöldi hluthafa sé a.m.k. 50. Ég geri mér ekki fulla grein fyrir því sjálfur hvort þetta eru eðlileg skilgreiningarmörk en mælist til þess að einhver hv. nefndarmanna gefi álit sitt á því og ef tilganginum virðist ekki vera náð með núverandi orðalagi brtt. tel ég að það sé þess virði að hv. nefnd gefist tækifæri til þess á örfáum mínútum að kanna hvort ný skilgreiningarmörk komi til greina.