Jón Sæmundur Sigurjónsson:
Hæstv. forseti. Aðeins nokkur orð til að þakka hv. 7. þm. Norðurl. e. fyrir mjög skýra og greinargóða ræðu um málefni sem hún greinilega gjörþekkir.
Sjúkraliðar eru ung stétt sem tekið hefur að miklu leyti við hefðbundnu hlutverki hjúkrunarfræðinga. Það má segja að á sama tíma hafa hjúkrunarfræðingar vaxið frá sínu hefðbundna hlutverki og tekið við öðrum störfum sem eru nýtilkomin eða þá að þær hafa vaxið a.m.k. frá því sem við mundum kalla að hefði verið hið hefðbundna starf hjúkrunarfræðingsins áður fyrr og þar hefur sjúkraliðinn að miklu leyti komið inn. Eftir mínum skilningi er ekki nema rétt að sjúkraliðinn njóti þeirra réttinda og þeirrar ábyrgðar sem sjúkraliðinn hlýtur að finna til í sínu starfi.
Hvað varðar frv. sem hér hefur verið lagt fram skilst mér að samkomulag hafi tekist um frumvarpstextann við stéttarfélag sjúkraliða, en það er greinilegt að smávægilega hefur út af brugðið og það er ekki nema rétt að heilbr.- og trn., þar sem ég starfa m.a., leggi í það vinnu að rannsaka þann mismun sem orðið hefur á í frumvarpstextanum.
Ég lýsi því yfir að ég hef sterka tilhneigingu til að fylgja þeirri röksemdafærslu sem hv. 7. þm. Norðurl. e. hefur flutt í þessu máli.