Stjórn efnahagsmála o.fl.
Miðvikudaginn 22. febrúar 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til laga um breyt. á lögum nr. 13 frá 10. apríl 1979, um stjórn efnahagsmála. Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt.
    Þeir tveir nefndarmenn sem undirrita nál. með fyrirvara áskilja sér rétt til að flytja eða styðja brtt. sem fram kunna að koma. Á fund nefndarinnar komu Eiríkur Guðnason og Sveinbjörn Hafliðason frá Seðlabanka Íslands og Stefán Pálsson frá Sambandi viðskiptabanka.
    Auður Eiríksdóttir, þm. Samtaka jafnréttis og félagshyggju, sat fundi nefndarinnar og er samþykk áliti þessu. Undir þetta rita Páll Pétursson, Ragnar Arnalds, Kristín Halldórsdóttir, Sigríður Hjartar, Árni Gunnarsson og Matthías Bjarnason og Hreggviður Jónsson rita undir nál. með fyrirvara.