Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1989

     Flm. (Albert Guðmundsson):
    Virðulegur forseti. Til viðbótar við frv. sem ég mælti fyrir nú fyrir nokkrum augnablikum hef ég leyft mér að flytja annað frv. í líka veru á þskj. 394, þ.e. frv. til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt, nr. 75/1981, með síðari breytingum.
    1. gr. hljóðar svo:
    ,,Við A-lið 1. mgr. 30. gr. laganna, sbr. 3. gr. l. nr. 14/1987 og 2. gr. l. nr. 92/1987, bætist nýr töluliður svohljóðandi:
    4. Tekjur skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr., þegar frá þeim hafa verið dregnar þær fjárhæðir sem um ræðir í 1.--2. tölul. þessa stafliðar, sem maður hefur aflað á síðustu tólf starfsmánuðum sínum áður en hann lætur af störfum fyrir aldurs sakir. Frádráttur þessi skal þó aldrei vera hærri en 2.500.000 kr. enda hafi viðkomandi náð 55 ára aldri eða öðlast rétt til eftirlauna eða ellilífeyris úr lífeyrissjóði.
    Réttur til frádráttar skv. 1. mgr. kemur ekki til greina nema einu sinni fyrir hvern mann.
    Frádrátt skv. 1. mgr. skal einnig veita framteljanda sem fellur frá og hafði fyrir heimili að sjá og hafði ekki nýtt þessa frádráttarheimild áður.``
    2. gr. hljóðar svo:
    ,,Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við endanlega álagningu tekjuskatts á árinu 1989 af tekjum ársins 1988.``
    Í grg. með frv. segir m.a.:
    ,,Þegar staðgreiðsla skatta var tekin upp í ársbyrjun 1988 var afnuminn sérstakur frádráttur fyrir þá launþega sem voru að ljúka starfsdegi sínum. Fyrir þessum frádrætti hafði verið barist lengi en hann komst fyrst í lög vorið 1983 (lög nr. 21/1983) er samþykkt var frv. frá flutningsmanni þessa máls ásamt ellefu öðrum þingmönnum úr öllum flokkum. Síðar, þegar flutningsmaður var fjmrh., voru gerðar nokkrar breytingar á lagaákvæðum um þennan frádrátt til rýmkunar, sbr. lög nr. 119/1984, en ákvæðin síðan afnumin við upphaf staðgreiðslukerfis skatta, eins og áður segir, með lögum nr. 14/1987.
    Þegar lagafrumvörp um staðgreiðsluna voru til meðferðar á Alþingi var því mótmælt að þessi réttur launafólks til skattfrelsis síðasta starfsárið yrði af því tekinn. Þá var því borið við að frádrátturinn ætti ekki lengur við þegar staðgreiðslukerfið væri komið á og að frádrátturinn ylli óviðráðanlegum flækjum í hinu nýja kerfi. Hvort tveggja er rangt. Staðgreiðslukerfið er engin grundvallarbreyting á skattkerfinu heldur aðeins nýtt fyrirkomulag greiðslu skatta, eins konar fyrirframgreiðsla. Eftir sem áður verður launamönnum gert að skila skattskýrslu og hefðbundin álagning fer fram um mitt ár.
    Með því að taka aftur upp í skattalögin óbreytt ákvæðið um skattfrádrátt þeirra sem eru að ljúka starfsævi sinni mundi við endanlega álagningu tekjuskatts myndast inneign hjá þeim gjaldendum sem ættu rétt á þessum frádrætti og hún koma til endurgreiðslu eftir almennum reglum í 2. mgr. 112. gr. laganna (sbr. 17. gr. l. nr. 14/1987).``
    Forseti. Ég verð að segja að það truflar mig þegar

ráðherrarnir eru að tala saman hérna eiginlega í hvert skipti sem maður stendur upp. Það er allt í lagi með frammíköll o.s.frv., það er gaman að þeim, en ekki svona truflanir og hlátur inni í ræðu nema málið sem slíkt sé ekki þess virði að ráðherrarnir gefi hljóð í málstofunni meðan það er flutt. ( Forseti: Ég áminni þingmenn, ráðherra jafnt sem óbreytta, um að hafa hljóð í salnum og hvíslast þá á ef þeir þurfa að tala.) Ég held þá áfram með grg. með þessu máli sem ég álít vera stórt mál:
    ,,Jafnframt er í frv. þessu lagt til að skattfrádrátturinn komi til framkvæmda þegar í sumar við endanlega ákvörðun skatta fyrir tekjuárið 1988. Þar með væri bættur skaðinn sem skeði við upphaf staðgreiðslunnar 1988 og enginn launamaður, sem lokið hefur starfsævi sinni á því ári, fyrsta ári staðgreiðslunnar, yrði hlunnfarinn.
    Loks er lagt til að hámark frádráttarins, eins og það var ákveðið í lögum nr. 72/1986, hækki til samræmis við aðrar tölur frá þeim tíma.``
    Ég held að það fari ekkert á milli mála og það viti hver maður að þegar þessi skattur á ellilífeyrisþega, skattur á þá sem eru að ljúka sinni löngu starfsævi og hafa skilað til hins opinbera því sem opinberir aðilar hafa farið fram á á þeirri starfsævi sem er að ljúka --- að það hafi verið fagnaðarefni fyrir margan sem ekki réði við að hætta störfum vegna þess að þeir gátu ekki staðið í skilum með opinber gjöld sem á þeim hvíldu eftir starfsævina og í mörgum tilfellum þurftu aldraðir að veðsetja eignir fyrir bankalánum til þess að standa í skilum við opinbera aðila, bankalánum sem féllu svo kannski í gjalddaga því að tekjulaus gamalmenni gátu ekki staðið í skilum með skuldir sem höfðu safnast í bönkum til þess að standa í skilum við opinbera aðila. Síðan er þetta fellt niður eftir að hluti af þeim öldruðu sem hættu starfsævi eftir þann tíma sem skatturinn var felldur niður höfðu fengið þessa fyrirgreiðslu og skatturinn tekinn aftur upp á aðra þannig að þarna skapaðist mjög mikið misrétti í meðhöndlunin á þessu fólki eftir því hvenær það hætti störfum eða hafði lokið sinni starfsævi. Það er nú verið að reyna að leiðrétta. Ég harma það að frv., sem er svo stórt og þýðingarmikið fyrir aldraða, skuli ekki fá meiri athygli en það að ráðherrar leyfa sér að vera að tala og hlæja og flissa undir flutningi þess.
    Ég legg til að að loknum þessum umræðum verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.