Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1989

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Það er aðeins örstutt út af þessum síðustu athugasemdum hv. 5. þm. Reykv. Það er að sjálfsögðu rétt að það hlýtur að vera löggjafinn og Alþingi sem setur lög um skattheimtu og það hefur ekki staðið annað til.
    Það sem hér er verið að segja frá er það að heilbrmrh. hafi á fundi ríkisstjórnarinnar í gær kynnt drög að frv. um málefni aldraðra sem er lagabálkur sem hefur verið í endurskoðun í heilbrmrn. um nokkurn tíma. Í þessu frv. eru hugmyndir um það að taka upp þennan skatt að nýju, ef má orða það svo, því að staðreyndin er nú sú að það hefur aldrei verið gerð nein breyting á því að þessi nefskattur styðst við ákvæði í lögum um málefni aldraðra sem eru enn í gildi, en hins vegar, eins og hér kemur fram í þessari blaðafrétt, hefur hann ekki verið innheimtur sérstaklega, heldur með staðgreiðslusköttunum. Það eru uppi hugmyndir í þessu frv. um það að þessi skattur verði tekinn upp að nýju og komi þá sem eftirágreiddur skattur, en það er út af fyrir sig of snemmt að vera að fjalla um þetta hér á þingi nú vegna þess að málið á auðvitað eftir að fá alla eðlilega málsmeðferð. Það á eftir að fara fyrir þingflokka ríkisstjórnarinnar sem það mun vonandi gera næstu daga og fá þar eðlilega afgreiðslu og síðan, verði það samþykkt þar, koma þá hér fyrir hæstv. Alþingi til meðhöndlunar og þá er það auðvitað Alþingis að ákveða það hvort þessi skattheimta verður tekin upp að nýju eða ekki.
    Aðeins, ef ég má, út af því sem kom einnig fram hjá hv. þm. í sambandi við afgreiðslu ríkisstjórnarinnar á málum um flugvallaáætlun eða flugmálaáætlun: þar var ekki tekin ákvörðun um neina nýja útgjaldaþætti, heldur sérstaklega tekið fram að það sem gert yrði í þeim málum á þessu ári rúmaðist innan flugmálaáætlunar og fjárlaga.