Viðskiptabankar og sparisjóðir
Miðvikudaginn 22. febrúar 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Á þskj. 538 liggur fyrir álit fjh.- og viðskn. í þessu máli.
    Nefndin hefur athugað frv., en það er flutt í tengslum við frv. um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði, og leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt.
    Undir þetta rita Páll Pétursson, Árni Gunnarsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Kristín Halldórsdóttir og með fyrirvara Ragnar Arnalds, Matthías Bjarnason og Hreggviður Jónsson. Þessir þrír síðast töldu sem sagt allir með fyrirvara.