Forseti (Kjartan Jóhannsson):
Af þessu tilefni skal tekið fram að það er ekki ætlun forseta að taka fjórða dagskrármálið til umfjöllunar í dag. Ósk hans er sú ein að um annað dagskrármálið megi fjalla og að það sé það verkefni sem fyrir þessum fundi liggi núna.