Stjórn efnahagsmála o.fl.
Miðvikudaginn 22. febrúar 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um stjórn efnahagsmála o.fl., nr. 13 frá 1979, svonefndum Ólafslögum.
    Þetta frv. er flutt til þess að bæta inn í ákvæði þeirra laga nauðsynlegum heimildum varðandi lágmarkstíma verðtryggðra innlána og útlána og varðandi vexti af verðtryggðum skuldbindingum. Breytingin sem tillagan er gerð um er við 39. gr. laganna þar sem fjallað er um skilyrði verðtryggingar.
    Í fyrsta lagi er lagt til að í stað 3. tölul. sem reyndar hefur verið felldur úr gildi í þessari grein laganna komi inn nýr 3. tölul. Þessi tölul. er efnislega samhljóða ákvæðum í bráðabirgðalögum nr. 44 frá 20. maí 1988, sbr. bráðabirgðalög nr. 14/1988, en í þeim lögum er kveðið á um að verðtrygging sparifjár og lánsfjár skuli eigi vera til skemmri tíma en tveggja ára hvað varðar aðrar skuldbindingar en sparifjárinnstæður sem því aðeins mega njóta verðtryggingar að bundnar séu í sex mánuði eða lengur. Hér er lagt til að þessi ákvæði um lágmarkstíma verðtryggðra skuldbindinga verði felld inn í 39. gr. laganna sem fjallar einmitt um skilyrði verðtryggingar. Það er með einföldum orðum talað gert að skilyrði fyrir verðtryggingu, hvort sem er á innlánum eða útlánum, að þar sé um ákveðinn lágmarksbinditíma að ræða, tvö ár á útlánahlið en hálft ár á innlánshlið.
    Þá er lagt til að bætt verði í lögin nýrri 3. mgr. sem gefur Seðlabankanum heimild, með staðfestingu ráðherra, að ákveða lengri lágmarkstíma verðtryggðra sparireikninga og útlána en ákveðið er með 3. tölul. greinarinnar og það er mjög mikilvæg tillaga að mínu áliti að Seðlabankanum verði líka heimilað að ákveða að vextir á verðtryggðum útlánum skuli vera óbreytilegir á lánstímanum. Til þess að taka slíka ákvörðun þarf Seðlabankinn heimild ráðherra samkvæmt tillögu frv. Þá getur Seðlabankinn einnig á sama hátt veitt undanþágu til skemmri binditíma verðtryggðra fjárskuldbindinga þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi eins og skýrt er fram sett í tillögugreininni.
    Hér er um býsna mikilvægt þingmál að ræða þótt það láti e.t.v. ekki mikið yfir sér. Ríkisstjórnin vill vinna að því að draga úr því skipulega --- þegar til langs tíma er litið --- að verðtryggingar séu á skammtímaskuldbindingum á lánamarkaði. Þessi breyting þarf að verða eftir því sem verðbólgan hjaðnar og þar er lenging lágmarkstíma á verðtryggðum fjárskuldbindingum mjög mikilvægur þáttur. Ég nefni t.d. svonefnda skiptikjarareikninga í innlánsstofnunum. Þetta er þannig hugsað að eftir því sem verðlag gerist stöðugra og verðbólgan minni, þá sé óhætt að lengja þennan lágmarkstíma og stuðla þannig að því smám saman að vísitölutengingar á skammtímaskuldbindingum hverfi. Þá þykir mér það einnig vera sanngirnismál og hefði reyndar átt að vera svo frá upphafi að óbreytilegir vextir gildi á verðtryggðum lánum, enda má halda því fram með gildum rökum að verðtryggingin eyði stærstum hluta óvissunnar í þessu máli. Ef vextirnir væru óbreytilegir

er næsta víst að þeir yrðu virkara áhrifatæki í efnahagslífinu. Menn kynnu þá fremur að fresta fjárfestingu þegar vextirnir eru háir en auka framkvæmdir þegar þeir lækka. Þannig koma einmitt áhrif vaxtanna víða um lönd fram og ætti svo auðvitað einnig að vera hér, en ég tel að hin almenna útbreiðsla breytilegra vaxtakjara, hvort sem um verðtryggðar eða óverðtryggðar skuldbindingar er að ræða, hafi einmitt gert það að verkum að vextirnir virka ekki eins og vera skyldi. Ég tel að þessa breytingu verði þó að ákveða í hentugan tíma. Hún mun þá að mínu áliti geta borið ríkulegan ávöxt, ef hún er fram borin í hentugan tíma, og það verður vissulega að sæta færi með að gera slíkar breytingar. Ef sá tími er rétt valinn er ég sannfærður um að breytingin verður til góðs í okkar efnahagslífi, en hér er tillaga um það gerð að Seðlabankinn fái heimild til að ákveða þetta þegar heppilega þykir standa á á fjármagnsmarkaðinum.
    Það er nokkuð almenn skoðun að raunvextir séu nú í hærra lagi svo að vægt sé að orði komist. A.m.k. gæti manni virst það af því að hlýða á ræður manna hér í þinginu. Ef þetta er rétt skoðun er varla rétti tíminn að binda raunvextina nú á verðtryggðum skuldbindingum. Hins vegar, þegar betur stæði á, kynni að vera rétt að sæta færi og festa vextina af verðtryggðum skuldbindingum, ekki þannig að þetta sé gert með miðstjórnarákvörðun, nákvæmlega hverjir þeir skuli vera, heldur með því að setja þá almennu reglu að samningarnir skuli vera þannig gerðir, ef þeir eru verðtryggðir, að í þeim séu ekki breytilegir heldur óbreytilegir vextir á lánstímanum eða a.m.k. einhvern verulegan hluta hans.
    Virðulegi forseti. Ég legg áherslu á að frv. sem ég mæli hér fyrir hljóti skjóta en vandaða meðferð hér í deildinni og legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.