Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég ber fram á þskj. 461 fsp. til hæstv. dómsmrh. um endurskoðun á lögum og reglum um gjaldþrotameðferð fyrirtækja. Fsp. er svohljóðandi: ,,Mun dómsmrh. hlutast til um að endurskoðuð verði lög og settar skýrari reglur en nú gilda um gjaldþrot fyrirtækja í því skyni að betur verði tryggt en nú er að menn komi sér ekki undan ábyrgð og baki öðrum tjón?``
Fsp. þessi er borin fram af því tilefni að gjaldþrot hjá fyrirtækjum hafa aukist mjög mikið hin síðustu ár og eru sannarlega af mörgu tagi og misjafnar ástæður sem að baki liggja, en það er jafnframt ljóst að fjölmargir, bæði opinberir aðilar og einkaaðilar, verða fyrir miklu tjóni af þessum sökum oft og tíðum. Spurningin um ábyrgð þeirra sem fyrir rekstri standa hlýtur að koma upp í því sambandi.
Hér er um að ræða bæði stór mál og smá að því er varðar upphæðir. Mér eru í huga m.a. ítrekuð gjaldþrot þjónustufyrirtækja hér á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal í ferðamannaiðnaði, hótelbyggingar og fleira, sem mjög hefur verið á dagskrá hin síðustu ár svo að nefnd séu dæmi, og ég tel að vegna þessarar þróunar sé eðlilegt að farið sé yfir lög sem varða þessi efni, þar á meðal gjaldþrotalög nr. 6 frá 1978 og ef til vill fleiri lög eins og lög um hlutafélög.
Spurningin er m.a. sú hvort hægt sé að auka ábyrgð aðila sem fyrir rekstri standa til að draga úr þessum áföllum sem varða ekki aðeins viðkomandi fyrirtæki og félög heldur einnig þjóðarbúið allt og þó að gjaldþrot geti í vissum tilvikum verið ofur eðlileg og ekkert við því að segja er mikil aukning á þeim svo sem nú hefur orðið. Ber það vott um frekar fúnar stoðir í atvinnurekstri í landinu og hlýtur að vera þjóðhagslega óheppilegt að slík þróun fari vaxandi og menn taki þannig áhættu í rekstri án þess að full ábyrgð sé til staðar.
Ég vænti þess að hæstv. ráðherra varpi ljósi á hvort fyrirhugað sé að fara ofan í saumana á þessum málum.