Fyrirspyrjandi (Jóhanna Þorsteinsdóttir):
Hæstv. forseti. Á síðustu árum og áratugum hefur fátt tekið jafnörum breytingum hér á landi og umferð og ferðahættir fólks. Fyrstu frásagnir af umferðarfræðslu í skólaskýrslum varða heimsókn lögreglu í Miðbæjarskólann í Reykjavík árið 1930.
Í grunnskólum er allvel búið að nemendum í yngstu bekkjunum hvað umferðarfræðslu varðar, en í efri bekkjum grunnskóla þarf að efla vettvangsfræðslu um umhverfið og umferðina.
Gert er ráð fyrir að umferðarfræðslu sé sinnt af kennurum viðkomandi skóla í samráði við foreldra, löggæslumenn, Umferðarráð og fleiri aðila. Þar sem fræðslan er ætluð svo mörgum aðilum er hætt við að sumir hlekkir bresti og erfitt verði að hafa heildarsýn yfir umferðarfræðsluna. Hérlendis er lítið um trúnaðarkennara sem hafa umsjón með þessari kennslu.
Það er því nauðsynlegt að hver einstakur skóli skipuleggi umferðarfræðsluna í samvinnu við þá aðila sem hafa til þess þekkingu, auk þess að sinna grundvallaratriðum. Þó mættu fullorðnir sýna betra fordæmi í umferðinni til þess að brjóta ekki niður það sem verið er að byggja upp meðal ungra vegfarenda og frásagnir fjölmiðla eru oft ekki til þess fallnar að byggja upp ábyrgðartilfinningu í umferð.
Ég leyfi mér að bera fram fyrirspurn til hæstv. menntmrh. á þskj. 484 um þetta efni:
,,1. Hvernig er háttað umferðarfræðslu í efri bekkjum grunnskólans?
2. Hversu miklum tíma er varið til hennar?
3. Hve miklu fé er varið til námsefnisgerðar í umferðarfræðslu?
4. Er að dómi ráðherra ástæða til að efla þennan þátt skólastarfsins?``