Flugfargjöld
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Ég hef á þskj. 460 leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. um athugun á flugfargjöldum. Fyrirspurnin er svohljóðandi:
    ,,Hvað hafa stjórnvöld aðhafst í framhaldi af ályktun Alþingis frá 11. maí 1988 um athugun á ástæðum fyrir háum fargjöldum í innanlandsflugi og samanburð á fargjöldum á flugleiðum innan lands og til útlanda?``
    Eins og vísað er til í fsp. samþykkti Alþingi þál. um þetta efni sl. vor og hér er verið að inna hæstv. ráðherra eftir aðgerðum í framhaldi af þál. þessari. Mál þetta er að mínu mati áfram brýnt. Há flugfargjöld hér innan lands a.m.k. miðað við kaupgetu fjölda fólks eru verulegur baggi. Ég nefni sem dæmi það sem einna hæst er á flugleiðum hér, þ.e. þar sem vegalengdir eru mestar, flugfar til Vopnafjarðar á Norðausturlandi, en þar mega menn greiða, sem fara fram og til baka þá flugleið, 11.696 kr., innifalinn er 240 kr. flugvallarskattur. Vissulega eru afsláttarfargjöld af ýmsu tagi á innanlandsleiðum, en ég hygg að nýting þeirra sé nú minni en oft er látið í veðri vaka og kemur þar ýmislegt til.
    Varðandi flugfargjöldin til útlanda er það mikill frumskógur og margt afar sérstætt fyrir a.m.k. leikmenn þegar litið er til þess. Samkvæmt gjaldskrá frá 13. janúar sl. er t.d. venjulegt flugfar til Kaupmannahafnar samkvæmt yfirliti sem ég hef frá Flugleiðum fram og til baka 57.580 kr. Vissulega eru mörg fargjöld lægri á þessari flugleið sem og annars staðar, niður í 20 þús. kr. og jafnvel lægri, en engu að síður eru það þessi venjulegu fargjöld sem skera mjög í auga og eru geysilega þungur baggi fyrir þá sem þurfa að fara erinda og eins fyrir ferðafólk sem kann að þurfa að nýta sér þau og ekki hefur tök á að nýta hagstæðustu fargjöld.
    Tengslin Evrópa/Ameríka um Ísland, flugfargjöld á þeim leiðum, eru líka kafli út af fyrir sig. Ég ætla ekki, virðulegur forseti, að rekja það nánar hér, en vænti þess að hæstv. ráðherra geti sagt okkur á hvaða leið þessi athugun er stödd sem væntanlega er unnið að.