Flugfargjöld
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra hans frásögn og heyri að unnið hefur verið að þessu máli innan hans ráðuneytis. Þingsályktun Alþingis gerði ráð fyrir að greinargerð um þessi efni lægi fyrir þinginu á sl. hausti. Sá tími er nú liðinn og ljóst er að við megum enn nokkuð bíða eftir því að mál þessi verði lögð fyrir þingið.
    Ég vil hins vegar ekki gagnrýna vinnubrögð hæstv. ráðherra. Ég tel það skynsamlegt, sem hann bar hér fram, að það yrði farið ofan í saumana á þeim tveimur greinargerðum sem fyrir liggja, ekki síst þar sem þær eru ólíkar að innihaldi og mati á þessum málum. Það kemur vissulega ekki á óvart að það sé ólíkt mat, annars vegar hjá Flugmálastjórn og aðalaðilanum í íslenskum flugrekstri, Flugleiðum, varðandi þessi mál. En þeim mun brýnna er að ofan í saumana á þessu verði farið af traustum óháðum aðilum og því verki verði hraðað.
    Ég tek undir með hv. 4. þm. Vesturl. að í ljósi þess sem er að gerast í íslenskum flugmálum, hugsanlegri sameiningu flugfélaga eða enn ríkari aðstöðu Flugleiða á íslenskum flugmarkaði heima og í flugi til útlanda er mikil þörf á því að ofan í þessi mál sé farið og tryggt eðlilegt aðhald og eftirlit í þessum málum. Ég hef fyrr á þingum vakið athygli á óeðlilegri stöðu flugfélaga hér varðandi þessi mál, einnig að því er snýr að þjónustu við farþega almennt fyrir utan fargjöldin, og bent á það að í flugrekstrarleyfum er ekki að finna stafkrók varðandi það sem getur varðað neytendamálefni, þ.e. aðhald að þessum aðilum varðandi þeirra rekstur og eðlilega þjónustu við farþega þar sem margur pottur hefur verið brotinn um langan tíma. Ég treysti því að hæstv. ráðherra og ráðuneyti hans sinni þessum málum af einurð þannig að hagur Íslendinga, íslenskra viðskiptaaðila við flugfélög, hver sem þau eru, verði með eðlilegum hætti og auðvitað þarf að hafa það einnig í huga með þá aðila sem hingað fljúga og fá leyfi til þess þó að ég sé ekki að biðja um sérstaka vinnu hér og nú í því sambandi. En það skiptir marga miklu máli að vel sé tekið á þeim málum sem hér er um að ræða. Ég vil ekki vera með neinar getsakir fyrir fram um þessi efni um það sem felst í samþykkt Alþingis, matið að flugfargjöld séu há á innanlandsleiðum og að það þurfi að fara ofan í saumana varðandi ferðir og fargjöld til útlanda.