Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Mín athugasemd er stutt. Ég tek undir að það er gagnrýni vert að þingmenn skuli ekki hafa fengið ítarlegri upplýsingar um svokallað Arnarflugsmál. Ég hef spurt eftir því oftar en einu sinni í mínum þingflokki og fengið um það svör, að vísu frá ráðherrum míns flokks, munnleg, en frá samgrn. hafa þingmenn ekki fengið upplýsingar. Ég tel að hér sé um mjög stórt mál og alvarlegt mál að ræða og ég held að það geri ekki neitt minni samkeppni þó að eitt íslenskt flugfélag fljúgi á erlendum leiðum því að hingað fljúga nú þegar erlend flugfélög og þeim mun fyrirsjáanlega fjölga. Það verður nóg samkeppni. En Arnarflugsmálið er stórt mál, það er flókið mál, það nær langt aftur í tímann og ég held að það sé enginn meiri hluti á Alþingi fyrir því að velta skuldum þessa fyrirtækis yfir á skattgreiðendur ef það er það sem nú er á döfinni. Ég mun a.m.k. ekki taka þátt í því. Þess vegna held ég að það sé mjög brýnt að þingmenn fái glöggar og ítarlegar upplýsingar um þetta mál áður en ríkisstjórnin tekur einhverja þá ákvörðun í því sem alls ekki er víst að eigi sér meirihlutastuðning á hinu háa Alþingi.