Flugfargjöld
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Virðulegi forseti. Ég held að það sé ekki í knöppum fyrirspurnatíma tóm til að ræða almennt um stöðu flugrekstrarins, sameiningu flugfélaga, sundrungu eða annað þó að það væri vissulega mjög þarft og ég lýsi mig mjög reiðubúinn til þess við betra tækifæri að ræða um samgöngustefnuna og flugstefnuna yfirleitt og held reyndar að það væri mjög þarft. Ég hef þegar gert grein fyrir hér í umræðum öðrum hluta af þessari samgöngustefnu og vildi gjarnan fá tækifæri til að ræða hana í heild sinni við hv. Alþingi.
    Varðandi svonefnt Arnarflugsmál vil ég segja það eitt að ég hef beitt mér fyrir tveimur fundum með fulltrúum eða formönnum þingflokka stjórnarandstöðunnar einmitt til að gefa henni kost á að fylgjast með málinu. Ég hef svo treyst á að þeir af þingmönnum stjórnarliðsins sem sérstaklega hefðu áhuga bæru sig eftir upplýsingum í gegnum sína fulltrúa í ríkisstjórn. Þar hafa allar upplýsingar verið reiddar fram og það stendur svo sannarlega ekki á mér að eiga fundi með þingmönnum hvort sem heldur er úr stjórnarliði eða stjórnarandstöðu, samgöngunefndum þingsins eða annars staðar og greina þar frá þeim upplýsingum sem hægt er að veita á þessu stigi málsins.
    Ég tek undir það, sem kom fram hjá hv. 4. þm. Vesturl., að það er mikil nauðsyn að fara ofan í þann hluta þessa máls sem snýr að neytendahliðinni og ég hef þegar rætt m.a. við flugmálastjóra og við stærstu aðila í flugrekstri hér á Íslandi um nauðsyn þess að taka þau mál fastari tökum en gert hefur verið, koma á fót einhvers konar neytendaeftirliti eða jafnvel neytenda- og þjónustustofnun sem fái það sérstaka hlutverk að fylgjast með verðlagningu og þjónustu í þessum einkaleyfabundnu flutningum. Það samræmist í raun mjög illa þeirri tilhögun að binda þessa starfsemi við einkaleyfi á tilteknum leiðum að þá skuli ekki fylgja meira eftirlit með bæði þjónustunni og verðlagningunni og öllu sem því við kemur. Þessi mál hef ég sem sagt í athugun og burtséð frá því hvernig tilhögun flugrekstrarins verður hér, hvort hún verður á höndum fleiri eða færri aðila, er mikil nauðsyn á því að mínu mati að taka upp miklu virkara eftirlit með þeim aðilum sem fá úthlutað einkaleyfum til margra ára í senn til að þjónusta ákveðnar flugleiðir og flutningaleiðir yfirleitt því að víðar en í fluginu einu eru veitt einkaleyfi af þessu tagi svo sem eins og hjá sérleyfishöfum til fólksflutninga.
    Varðandi vinnu að þessu máli vil ég segja við hv. fyrirspyrjanda að það er rétt að það var ætlunin að greinargerð um þetta lægi fyrir þegar á þessu hausti, enda lét ég ítrekað reka á eftir því að þessi vinna yrði unnin og yrði komið í það form að hægt væri að greina Alþingi frá niðurstöðunum. Því miður tel ég svo ekki vera enn þó að þessar greinargerðir hafi borist, jafnmisvísandi og þær eru. Það er þó kannski ekki eingöngu að sakast við þá sem verkin áttu að vinna vegna þess að hér er um mjög vandasamt verk að ræða. Það er mjög vandasamt að bera með

sanngjörnum hætti saman kostnað í þessum efnum. Eins og menn þekkja er allur samanburður landa í milli vandasamur, nánast á hvaða sviði sem það er, en ekki er það síst í svona tilvikum þar sem að mjög mörgu þarf að hyggja. Í greinargerð Flugmálastjórnar er farin sú leið að bera eingöngu saman kostnað á floginn km pr. sæti, en þá vakna spurningar eins og sú hvort það sé sanngjarnt að bera saman kostnað á flugkílómetra á flugleiðinni Keflavík--Amsterdam og flugleiðinni London--Sevilla. Þar er kannske tífalt eða hundraðfalt magn flutninga sem gerir flugfélögunum kleift að koma við stærri vélum, betri sætanýtingu og þar fram eftir götunum, svo eitt lítið dæmi sé tekið til að skýra að auðvitað er þessi samanburður mjög vandasamur og til þess að hann sé sanngjarn þarf að hyggja mjög vel að öllu því sem að baki liggur. Sama á við um tilkostnað í okkar innanlandsflugi og kostnaði í flugi á sambærilegum flugleiðum á milli landa eða innan landa í Evrópu. Eitt sem nauðsynlegt er að hafa í huga í því sambandi er t.d. það bága ástand íslenskra flugvalla sem við búum því miður enn við þó það standi nú til bóta og auðvitað er enginn vafi að hleypir verulega upp tilkostnaðinum við flugreksturinn hér innan lands, bæði eykur viðhaldskostnað á vélum og svo sú staðreynd að talsverður hluti innanlandsflugvallanna er ólýstur sem styttir mjög möguleika flugfélaganna til flugrekstrar og eykur á allan tilkostnað.
    Ég get þó huggað menn með því að svo mikið er víst að við eigum ekki nein met í þessum efnum hvað okkar heimshluta snertir. Ég mundi benda mönnum á að fara og kynna sér flugfargjöld í innanlandsfluginu á Grænlandi til þess að hugga sig við að við erum þó ekki verst settir allra í þessum efnum.