Endurskoðun útvarpslaga
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson):
    Herra forseti. Ég þakka ráðherra svörin, en þau voru frekar í rýrara lagi. Ég sé ástæðu til vegna ummæla hans að vitna í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 11. febr. sl. sem Haraldur Ólafsson skrifaði. Hann segir í upphafi þessarar greinar, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Vegna frétta um að menntamálaráðherra hafi skipað nefnd til að endurskoða útvarpslögin nr. 86/1985 og ummæla ráðherra sem skilja mætti sem svo að ekkert hafi verið unnið að endurskoðun laganna vil ég taka fram eftirfarandi:
    Nokkru áður en Sverrir Hermannsson lét af embætti menntmrh. vorið 1987 skipaði hann nefnd þriggja manna til að endurskoða téð lög. Í nefndinni voru Haraldur Ólafsson dósent, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lögfræðingur og Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri og var hann formaður nefndarinnar. Nefndin hélt allmarga fundi og ræddi við marga aðila, bæði þá sem standa í útvarpsrekstri og sérfræðinga í útvarps- og fjarskiptatækni. Að loknum ítarlegum umræðum um hvert einasta atriði laganna varð nefndin sammála um að leggja til ýmsar breytingar á gildandi útvarpslögum. Voru brtt. þessar afhentar núv. menntmrh. fáeinum dögum eftir að hann tók við embætti.``
    Það var hugmynd mín að strax á haustþingi yrði lagt fram frv. á grundvelli álits þessarar nefndar. Síðan rekur Haraldur Ólafsson í sinni grein í tíu töluliðum hverjar voru þessar brtt. sem er ekki ástæða til að fara út í nánar hér.
    Ráðherra skipaði nýja nefnd og segir nú að hún muni skila niðurstöðum 10. mars. Hann gat hins vegar ekkert um hvenær hann mundi leggja sínar tillögur fyrir þingið. Honum bar samkvæmt embættisskyldu sinni að leggja frv. um þetta fyrir á haustþingi. Endurskoðun laganna átti að vera lokið fyrir 1. janúar 1989. Það er nauðsynlegt, ef ráðherrann ætlar að bregðast þessum embættisskyldum sínum, að Alþingi sjálft taki í taumana. Ég beini því til formanna menntamálanefnda, bæði Ed. og Nd., að þeir taki þetta mál upp í nefndunum þannig að kannað verði hvort ekki sé nauðsynlegt að Alþingi taki það frumkvæði sem hæstv. ráðherra virðist ekki ætla að hafa í þessu mikilsverða máli.