Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Mér þykir vænt um að heyra að hæstv. menntmrh. skuli nú loksins hafa skilið að nauðsynlegt sé að koma hér á virðisaukaskatti. Hann sagði það, menntmrh., að það væri til athugunar í ráðuneytinu að samræma reglur milli útvarpsfjölmiðla og annarra fjölmiðla, dagblaða og annars slíks. Ég skildi það svo þegar hann talaði um söluskatt á næstu árum að þá meinti hann söluskatt á næstu árum og fannst það ekki óeðlilegt vegna þess að hæstv. ráðherra var á móti frumvarpinu um virðisaukaskatt þegar það var lagt á. En það sáum við síðast þegar þessi hæstv. ráðherra var í stjórn með Steingrími Hermannssyni að formaður Framsfl. hafði á honum gott taumhald og nú er ekki annað að heyra en að hann sé búinn að koma múlnum á hann og að menntmrh. sé búinn að sætta sig við virðisaukaskattinn þrátt fyrir allt.