Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég vil beina orðum mínum til þeirra ráðherra og þingmanna sem nú eru komnir á fætur að þeir stilli skap sitt og elski friðinn, reyni að halda réttri röð á þessari dagskrá eins og frekast er unnt. Mér er ljúft að hv. 2. þm. Norðurl. e. taki sína fyrirspurn nr. 9 á undan minni sem er númer 14. Mér finnst það bæði eðlilegt og sjálfsagt. Ég held að við ættum öll að reyna að sameinast um að greiða fyrir þingstörfum í stað þess að kýta og rífast í hvaða flokki sem við svo erum.