Fyrirspurn um varaflugvöll
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa að gefnu tilefni að ástæður eru fyrir því að dagskrármál voru ekki tekin fyrir í réttri röð. Ein af ástæðunum, sem ég vænti að hv. þm. skilji, er að hv. 2. þm. Austurl. óskaði eftir að komast að fyrir kl. 11 vegna þess að þá átti hann að vera á blaðamannafundi vegna komandi Norðurlandaráðsþings. Þannig hefur forseti reynt að greiða fyrir því að menn geti komist til þeirra skyldustarfa sem þeir þurfa að sinna þannig að oft getur verið afar erfitt að ganga á dagskrána í nákvæmlega réttri röð.