Fyrirspurn um varaflugvöll
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég tek undir þá stefnu að málin verði tekin í kippum ráðherrum til hagræðis og bendi þá á það að ég var fyrir örfáum mínútum að mæla fyrir fyrirspurn til hæstv. dómsmrh. og er með aðra fyrirspurn, nr. 13, til sama ráðherra sem er tölulega á undan fyrirspurn nr. 14 þannig að ég hlýt að álykta sem svo að ég komi á undan fyrirspurn nr. 14.