Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Það er aðeins örstutt í beinu framhaldi af lokaorðum hæstv. dómsmrh. Eins og kom fram í máli hans er samkomulag um það að þó svo að áfengislöggjöfin heyri undir dómsmrn. var samkomulag um það milli fyrrv. dómsmrh. og heilbrmrh. að nefnd sú sem um getur í bráðabirgðaákvæðinu yrði skipuð af heilbrmrh. í samráði við dómsmrh., menntmrh. og fjmrh. Það er ekki um það deilt að áfengisvarnir og þau ákvæði í áfengislöggjöfinni sem fjalla um áfengisvarnir heyri undir heilbrmrh. Eins og fram kom í lokaorðum hæstv. dómsmrh. er hér önnur fsp. sem fjallar um málið almennt og ég kýs þá að svara því sem fyrir liggur um störf þessarar nefndar og aðra þætti þeim tengda undir þeim dagskrárlið.