Fræðsluátak um áfengismál
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Nú er klukkan tólf og samkvæmt samningi milli þingflokkanna stóð til að þessum fundi yrði nú slitið og umræður hæfust á nýjum fundi um tilkynningu frá ríkisstjórninni. Verði því ekki mótmælt vil ég gjarnan, vegna þess hversu skyldar þær spurningar eru sem hér hafa verið til umræðu, fá leyfi hv. þm. til þess að ljúka 15. máli á dagskrá áður en þessum fundi verður slitið.