Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins segja þetta: Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir hv. þm. að horfast í augu við veruleikann. Það er ekki uppgjöf að skilja veruleikann jafnvel þótt hann sé óþægilegur. Það sem ég sagði áðan var ósköp einfaldlega það að ég teldi að það sem við hefðum þó verið að reyna að gera, og er margt eins og hæstv. heilbr.- og trmrh. gerði grein fyrir, væri ekki nægilega mikið miðað við það ofboðslega flóð sem er að hellast yfir. Ég satt að segja hef ekki enn þá séð leiðir til að sporna við því flóði --- eða hvað? Ég hef ekki séð þær leiðir. Það var þetta sem ég var að segja áðan og fara fram á það við hv. þm. að við gerðum okkur grein fyrir þessum veruleika. Það er ekki uppgjöf.
Hins vegar heyri ég hér að ýmsir hv. þm. telja sig eiga ráð undir rifi hverju í þessu efni eða alla vega að þeir geti gefið ráð sem ekki hafa verið notuð. Þá skal því lýst yfir hér fyrir hönd menntmrn. að ráð til þessara þingmanna verða sótt hið allra fyrsta.