Pálmi Jónsson:
Virðulegi forseti. Tilefni þess að ég kem upp utan dagskrár er að spyrja hæstv. menntmrh. hvort réttar séu fregnir, sem mér bárust um hádegisbil í dag eða kl. að ganga eitt, um að hæstv. ráðherra hygðist í dag gefa eina af húseignum ríkisins félagasamtökum úti í bæ.
Hér er um að ræða, eins og hæstv. forseti hefur þegar frá greint, afmælisgjöf til kennarasamtaka Íslands og afmælisgjöfin á að vera hús gamla Kennaraskólans við Laufásveg. Sé þetta rétt er býsna frjálslega með eignir ríkisins farið. Hús þetta tilheyrir húseignum Kennaraháskóla Íslands og a.m.k. allt fram undir þetta hefur þar farið fram starfsemi á vegum Kennaraháskólans. Þar er einnig til húsa ein af stofnunum ríkisins, en það er Rannsóknastofnun uppeldismála.
Um þetta mál hefur ekki verið fjallað í fjvn. Ég leyfi mér að spyrja, vegna þess að formaður fjvn. er viðstaddur, hvort honum hafi borist um þetta fregnir. Og engar heimildir eru fyrir því á fjárlögum að ráðstafa þessari eign ríkisins með þessum hætti.
Ef þetta mál hefði borið að höndum fjvn. hefði vafalaust verið á því tekið með þeim hætti að aðilar sem málið varðar koma hefðu verið kallaðir fyrir þannig að þeim gæfist kostur á að gera sínar athugasemdir eða segja skoðun sína á málinu. Það eru fyrst og fremst forstöðumenn Kennaraháskólans og forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldismála.
Nú vil ég láta þess getið að kennarasamtökin og kennarastéttin í landinu eiga vitaskuld margt gott skilið og þegar kennarasamtökin eiga 100 ára afmæli, sem mér skilst að sé í dag, er eðlilegt að þess sé minnst með einhverjum hætti. Það er svo þýðingarmikið starf sem þessir aðilar gegna í þjóðfélaginu. En ég lýsi jafnframt þeim skoðunum mínum að hér sé í hæsta máta óeðlilega að verki staðið af hæstv. menntmrh. og honum hefði verið í lófa lagið að bera þetta mál undir fjvn. eða leita sérstakrar lagaheimildar á Alþingi til þess að þetta mál geti gengið fram með formlegum hætti ef það hefði þá verið vilji Alþingis að ráðstafa húsinu á þennan hátt.
Þess vegna leyfi ég mér að ítreka fyrirspurn mína hvort þessar fregnir séu réttar og lýsi því að séu þær réttar sé hér farið fram hjá eðlilegum reglum.