Gjöf menntmrh. til Kennarasambands Íslands
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka hv. þm. Pálma Jónssyni fyrir að nefna mál þetta hér og fyrir að bera það upp við mig í dag í þinginu vegna þess að það var ekki ætlan mín að fara á neinn hátt á bak við þingið með mál af þessu tagi. Það vill þannig til sem betur fer fyrir þjóðina að einstakir ráðherrar geta ekki gefið hús né heldur aðrar eignir ríkisins. Það verður ekki gert nema með lögum. Þegar þessi hugmynd kom upp í síðustu viku ræddi ég við formenn samstarfsflokka Alþb. í ríkisstjórnini, sömuleiðis við rektor Kennaraháskóla Íslands og ég taldi undirtektir svo góðar að það væri ástæða til að skoða málið enn frekar. Málið var síðan rætt í ríkisstjórninni og hún samþykkti fyrir sitt leyti að beita sér fyrir því að kennarasamtökunum, þ.e. Hinu íslenska kennarafélagi og Kennarasambandi Íslands, yrði afhent þetta hús, Kennaraskólinn við Laufásveg, með áskilnaði m.a. um að þar fengi Rannsóknastofnun uppeldismála að vera áfram eftir nánari samningum sem fram færu á milli aðila. Það er þess vegna ljóst að af afhendingu og endanlegri niðurstöðu í þessu máli getur ekki orðið fyrr en Alþingi hefur samþykkt sín fjárlög fyrir árið 1990, það segir sig sjálft. En eftir stendur þessi afstaða þeirra sem að ríkisstjórninni standa, að beita sér fyrir þessu.
    Ég satt að segja hélt að hv. 2. þm. Norðurl. v. þekkti mig svo vel að hann léti sér ekki detta í hug að ég væri það illa að mér í stjórnskipun landsins að ég kynni ekki þetta ferli. Mér þykir leitt að honum skuli hafa dottið það í hug, en ég vænti að ég hafi leiðrétt þann misskilning.
    Ég tek það fram að hér er um að ræða bæði Hið íslenska kennarafélag og Kennarasamband Íslands, en það eru nákvæmlega 100 ár liðin í dag síðan 20 kennarar frá ýmsum menntastofnunum í landinu, eins og það heitir í fundargerð, komu saman til þess að stofna Hið íslenska kennarafélag. Það starfaði síðan um nokkuð skeið. Svo var endurvakið félag með þessu nafni. Ég tel satt að segja að það sé einkar vel við hæfi að kennarasamtökin fái þetta hús til afnota fyrir starfsemi sína og að þannig verði tryggt að það tengist um aldur og ævi starfi kennarastéttarinnar á Íslandi.
    Ég vænti þess, virðulegi forseti, að ég hafi svarað þeirri fyrirspurn sem til mín var beint.