Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það má segja sem svo að stundum fréttir maður hina ólíklegustu hluti úti í bæ og það setur að manni efa hvort það sé satt eða hvort það sé bara lygi. Ég heyrði á skotspónum að hæstv. forseti hefði hugsað sér að gefa þinghúsið að kórónunni undanskilinni. En auðvitað treysti ég því að þetta sé ekki satt. Nú hefur hæstv. menntmrh. lýst því yfir að það sé ekki satt að hann ætli að gefa gamla Kennaraskólann af þeirri ástæðu að hann sé ekki eigandi að skólanum en beri mikinn og góðan hug til kennarasamtakanna. Mér þykja þetta góðar fréttir og vona að það fari ekki milli mála í framtíðinni að menn virði hinn eðlilega samskiptavettvang ráðherra og þingmanna þegar um eignir ríkisins er að ræða og að valdið til að ráðstafa eignum ríkisins er hjá Alþingi og hvergi annars staðar þó auðvitað hafi ráðherrar tillögu- og málfrelsi í þeim efnum og jafnframt atkvæðisrétt sem þingmenn.