Gjöf menntmrh. til Kennarasambands Íslands
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Þórhildur Þorleifsdóttir:
    Virðulegi forseti. Það er við hæfi að byrja á því að óska þessum tveimur merku félögum til hamingju með daginn og vel við hæfi að þessari merku stétt skuli ætluð gjöf á þessum degi. Vissulega mætti sá hugur birtast oftar til þessarar stéttar og skólamála almennt. Afmælið hefur eflaust borið brátt að og því lítill tími gefist til undirbúnings og því verða einhver lögformleg mistök, en vonandi verða þau ekki til þess að varpa þeim skugga á þetta mál að það leysist ekki farsællega og allir geti orðið sáttir við málalok því það er sannarlega leitt til þess að vita að sá skuggi skuli falla á þennan dag bæði dagsins vegna og gjafarinnar vegna og um það skuli vera orðaskak.
    Umrætt hús á sér að sönnu merka sögu. Þar hafa aðaluppalendur barna hér á landi kynslóð fram af kynslóð hlotið sína menntun. Því er kannski ekki óeðlilegt að Kennaraháskóla Íslands, sem nú hefur að vísu bæði hlotið nýtt nafn og annað húsnæði, finnist hann eiga nokkurt tilkall til hússins. Mér er kunnugt um að þeir höfðu uppi ákveðin áform um notkun þessa húss þó að vonbrigði þeirra hafi að vísu verið einhver í sambandi við fjárveitingar t.d. sl. árs sem voru notaðar til annars en þess að gera þetta hús upp. Þó segir mér hugur um að óánægja þeirra núna stafi ekki endilega af því að gefa skuli húsið heldur að það hafi, eins og ég sagði áðan, borið fullbrátt að og hefðu viljað að haft hefði verið aðeins meira samráð við þá.
    En ég efast ekki um að hæstv. menntmrh. mun bæta þar um og málið er ábyggilega ekki þyngra í vöfum en svo að allir geti setið á sátts höfði þegar upp er staðið.
    Ég ítreka aftur hamingjuóskir til handa þessum félögum og bið hæstv. menntmrh. að bera þeim árnaðaróskir og kveðjur.