Guðmundur H. Garðarsson:
Aðeins örstutt, virðulegi forseti. Ég vil í fyrsta lagi vekja athygli hv. þm. á því að sá flokkur og þeir forustumenn sem bera helst ábyrgð á því hvernig komið er í íslensku peningakerfi er Framsfl. og formenn hans. Ég minni á að forveri núv. forsrh., formaður Framsfl. Ólafur Jóhannesson, lagði grundvöllinn að verðtryggingarkerfinu í íslensku peningakerfi. Það voru ekki aðrir flokkar, a.m.k. ekki Sjálfstfl. Það sem fór úr böndum hjá hv. þáverandi forsrh. og öðrum var það að þeir réðu ekki við verðbólguna. Hér talar hæstv. forsrh. eins og hann hafi hvergi komið við sögu í sambandi við atvinnu- og efnahagsmál. (Gripið fram í.) Ég skal víkja nánar að því. Hæstv. forsrh. hefur setið í ríkisstjórn á þessum áratug þar sem þetta hefur allt farið úr böndum á grundvelli þeirra laga sem forveri hans, formaður Framsfl., lagði með svokölluðum Ólafslögum á sínum tíma. Þetta er óhrekjanleg staðreynd.
En hitt atriðið sem hann ræddi um, sem kom mér til þess að koma einnig upp, er þegar hann talar um að gera íslenskt bankakerfi samkeppnisfært við erlend bankakerfi með því að hleypa erlendum bönkum og peningastofnunum inn í landið. Ég skildi hæstv. ráðherra þannig. Það er a.m.k. sú stefna sem er í efnahagsáætlun Norðurlandanna sem á að leggja fyrir þing Norðurlandaráðs í næstu viku og ráðherrar hafa undirritað, fjármálaráðherrar Norðurlandanna, og þar með væntanlega fjármálaráðherra Íslands. Hverju á að trúa af því sem sagt er hér? Það er búið að spyrja um það hér í ræðustól hvort fyrirvarinn sem var í þessu sé fallinn eða ekki. Ég vil fá skýr svör við þessu. En þá óska ég líka eftir því, hæstv. forsrh., að Íslendingar fái frelsi til að keppa á íslenskum peninga- og fjármálamarkaði. Ég minni á að sá aðili sem hv. þm. Albert Guðmundsson minntist á, lífeyrissjóðakerfið, er bundinn með lögum að afhenda árlegt ráðstöfunarfé sitt að 55% í húsnæðismálakerfið. Ef allir þessir fjármunir fengju að fara í samkeppnina á íslenskum peningamarkaði mundu vextir lækka af sjálfu sér. Þá þyrfti ekki erlenda banka til að lækka raunvexti á Íslandi. Ég óska eftir því að hæstv. forsrh. skoði þetta í þeim aðgerðum sem hann hyggst viðhafa í sambandi við peninga- og bankakerfið, veita okkur sambærilegt frelsi á við það sem erlendir bankar munu væntanlega hafa ef þessi ríkisstjórn ætlar að fylgja því eftir að veita erlendu fjármagni og erlendum bönkum inn í íslenskt banka- og peningakerfi.
Hv. þm. Albert Guðmundsson sagði að þeir sem eiga að gæta hagsmuna fólksins, hann átti þar við forustu verkalýðshreyfingarinnar, gætu það ekki. Það er því miður allt of mikið til í þessum orðum. Stjórnmálamenn hafa gengið of hart fram í því að takmarka frelsi þeirra sem eru í verkalýðshreyfingunni til að fjalla um sín eigin mál. Það var það sem hv. þm. átti við.
Síðan vil ég mótmæla þeirri skoðun að það sé sérstök stefna hæstv. forsrh. að vilja koma niður vöxtum eða afnema áhrif lánskjaravísitölunnar. Það er alrangt að eigna það hæstv. forsrh. einum. Þetta hefur
verið stefna allra flokka sem hafa verið með fulltrúa á hinu háa Alþingi. Það sem ekki hefur tekist er að koma verðbólgunni niður. Lánskjaravísitalan er ekkert vandamál þegar búið er að koma verðbólgunni niður. Það er ekki nein sérstök stefna forsrh. Það er stefna okkar allra að vilja lækka vexti. Við sjálfstæðismenn höfum gert það sem við höfum getað til þess að það geti orðið að veruleika.
Að lokum, virðulegi forseti, vil ég taka undir það sjónarmið, sem kom fram hjá hv. þm. Albert Guðmundssyni, að það þarf að tryggja að lífeyrissjóðirnir geti staðið við sínar skuldbindingar. Menn verða að hafa í huga að það er ekki verið að gera það fyrir lífeyrissjóðina út af fyrir sig að tryggja ávöxtun þeirra. Það er verið að tryggja að fólk geti stuðst við lífeyrissjóðina í ellinni á grundvelli þeirra reikninga og iðgjalda sem borgað er eftir í lífeyrissjóðakerfið. Ég segi fyrir mitt leyti að ég mundi ekki vilja eiga allt mitt undir stjórnmálamönnum með hver yrði minn ellilífeyrir þegar þar að kæmi. Þess vegna hefur fólkið, verkalýðurinn og vinnuveitendur, myndað þessa lífeyrissjóði til að geta tryggt sína eigin framtíð. Það sem um er að ræða í sambandi við vaxtastefnu sjóðanna er ekkert annað en að þeir menn sem hafa verið valdir í forustu í stjórnir lífeyrissjóðanna af hálfu fólksins sem vinnur úti í atvinnulífinu eru að reyna að tryggja hagsmuni þess, tryggja að þeir fjármunir skili sér aftur sem þetta fólk er búið að leggja í þessa sameiginlegu sjóði.
Við skulum muna það hér, hv. þm., að við eigum eitt verk óunnið sem er mjög þýðingarmikið. Það er að fara yfir stöðu mála í sambandi við lífeyrissjóðamál þjóðarinnar í heild þannig að það ranglæti verði afnumið að fólkið í atvinnulífinu búi við önnur og lakari kjör en þeir sem eru starfsmenn hins opinbera. Þetta er stóra málið. Á meðan við höfum ekki leyst það ber forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar, þá ber fólkinu í verkalýðshreyfingunni að standa dyggan vörð um að þessar eignir fólksins verða ekki rýrðar í þeirri verðbólguþróun sem hefur verið á Íslandi og er því miður enn. Þetta er grundvallaratriði að hafa í huga þegar verið er að ræða um það sem snýr að lífeyrissjóðunum og þeim tryggingarlegu skuldbindingum sem þeir hafa.