Frsm. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Nál. liggur fyrir á þskj. 545. Um þetta mál er allt hið sama að segja og hið fyrra og raunar er það þó kannski enn hlálegra að við skulum nú, á því herrans ári 1989, vera að samþykkja lög um samþykkt ríkisreiknings fyrir árið 1979. En um það ætla ég ekki að hafa fleiri orð og kannski best um það að hafa sem fæst orð að þessu sinni.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt.