Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Ég þakka svör hæstv. ráðherra sem mér fannst reyndar ekki ákaflega skýr eða sannfærandi.
    Ég tek að sjálfsögðu undir það sem kemur fram í nál. á þskj. 542, frá þeim hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni og Hreggviði Jónssyni, og þau sjónarmið sem birtast þar í fylgiskjölum með því.
    Hæstv. ráðherra segir í sinni ræðu: Meginástæðan fyrir því að þetta frv. er flutt, og 3. gr. í þessu frv., er neytendavernd. Það er verið að vernda neytendur og þess vegna er verið að færa hluta valdsins frá þeim sem hingað til hafa haft það og borið ábyrgð á sínum gjörðum yfir til Verðlagsstofnunar sem á að fylgjast með orkufyrirtækjunum og dreififyrirtækjunum. Ég tek undir það með síðasta hv. ræðumanni að ef hæstv. ráðherra er svona umhugað um neytendavernd og að lífskjör skerðist ekki af þeim ástæðum að orka hækki, hvar var þá hæstv. ráðherra þegar ríkisstjórnin hækkaði alla skattana um síðustu jól? Af hverju setti hæstv. ráðherra þá ekki upp neytendavernd til þess að vernda skattgreiðendur fyrir ofsóknum skattayfirvalda, þ.e. hæstv. ríkisstjórnar?
    Ég tek undir það sem hér hefur verið sagt að það er furðulegt að beita þessari röksemd þegar litið er á það að ákvarðanir um verðlagningu á orku eru teknar í dag af kjörnum fulltrúum, af sveitarfélögum, hjá iðnrn. varðandi Rafmagnsveitur ríkisins og hjá kjörnum fulltrúum, þar á meðal kjörnum alþingismönnum eða kjörnum af Alþingi hjá Landsvirkjun, og fulltrúum neytenda sem um leið eru eigendur þess fyrirtækis. Og ekki nóg með það heldur þarf Þjóðhagsstofnun, sérstök stofnun sem tilheyrir forsrn. og ríkisstjórninni og ég veit að hæstv. ráðherra þekkir mjög vel frá fyrri árum, að fara yfir reikningana og samþykkja þá til þess að hækkun eða breyting á gjaldskrá geti átt sér stað. Auðvitað eru röksemdir hæstv. ráðherra algjörlega út í bláinn og furðulegt að hann sem þekkir þessi mál jafn vel og hann gerir, frá fyrri tíð og frá sinni ráðherratíð, skuli bera á borð röksemdir eins og þær sem hann hefur lýst í sínum ræðum. Það kórónar þó vitleysuna þegar hæstv. ráðherra leyfir sér að koma hér í ræðustól og segja: Verðið hefur lækkað reyndar frá orkuveitunum á undanförnum árum, sérstaklega frá Landsvirkjun --- sem er auðvitað stofnverðið gagnvart rafveitunum --- og staðið í stað frá hitaveitum og öðrum veitum, miðað við verðbólguna, en vegna þess að verðið hefur ekki hækkað jafnmikið og verðbólgan --- m.ö.o. að raunverðið hefur lækkað --- á að taka hluta af ákvörðunarvaldinu af þeim sem hafa lækkað verðið. --- Blygðunarlaust, héðan úr þessum ræðustól.
    Nú skulum við hugsa okkur að einhver stæði hér í ræðustóli og vildi koma á verðlagshöftum, vildi nýta sér verðlagsyfirvöld, og notaði þessar röksemdir hæstv. ráðherra. Hugsum okkur það t.d. að einhverjum aðilum í þjóðfélaginu hefði tekist að lækka verð með góðum rekstri, með skynsamlegum ákvörðunum. Þá væri hægt að koma hér upp í þennan ræðustól og segja: Verðið hefur lækkað hjá þessum aðilum og

dálítil hætta er á því að það geti hækkað í framtíðinni. Þess vegna á að koma böndum á þessi fyrirtæki. Þetta er röksemdin. Og ég segi við hæstv. ráðherra: Hann getur ekki verið þekktur fyrir að nota röksemd af þessu tagi. Maður eins og hæstv. ráðherra, sem hefur skilning og þekkingu á verðlagsmálum, veit auðvitað að það má nota röksemd á borð við þessa til þess að drepa í dróma og binda í viðjar verðlagsákvarðanir, sérstaklega þeirra sem hafa sýnt það í verki að þeir geta rekið fyrirtæki það vel að þeir þurfa ekki á hækkunum að halda til jafns við almennar verðlagshækkanir í landinu. Ef við gagnályktum frá því sem hæstv. ráðherra var að segja þýðir þetta það að ef fyrirtæki hafa hækkað umfram verðbólguna, tökum t.d. eitthvað af opinberu fyrirtækjunum, er hægt að gefa verðákvörðunarvaldið laust, ekki satt? Þá má gefa það laust. Þá á að heiðra slíka aðila með því.
    Ég skil vel að hæstv. ráðherra er í vandræðum með að verja þennan ranga málstað, en mér finnst dálítið langt til seilst þegar þetta er notað sem röksemd. Mjög hæpið, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Það er nefnilega þannig, og það veit auðvitað hæstv. viðskrh. sem jafnframt er iðnrh., að 85% eða u.þ.b., kannski skakkar það 5% til eða frá, eru erlendur kostnaður hjá t.d. Landsvirkjun. Og skuldir, efnahagsstaða þess fyrirtækis markast fyrst og fremst af breytingum á milli gjaldmiðla. Þetta veit auðvitað hæstv. ráðherra. Og hann veit að það er þetta sem skiptir langsamlega mestu máli.
    Ég vil spyrja hæstv. ráðherra, ef hann má vera að því að hlusta: Ef það er hyggileg stefna að ríkisvaldið nái inn sköttum til þess að jafna milli tekna og gjalda í ríkisreikningnum og ef það er hyggileg stefna að reynt sé að reka ríkissjóð án halla og án þess að þurfa að taka erlend lán, er það þá hyggileg stefna á sama tíma að leyfa ekki fyrirtækjum, opinberum fyrirtækjum eins og t.d. Landsvirkjun, að greiða eðlilega niður sínar skuldir? Hver er munurinn á því að draga úr því að greiða erlend lán frá fyrirtæki eins og Landsvirkjun með eðlilegum hætti og hinu að taka erlend lán hjá ríkinu eða öðrum stofnunum sem þurfa á slíku að halda vegna þess að þeim er ekki séð fyrir tekjum? Þjóðhagslega er munurinn enginn. Og það hlýtur að vera jafnskynsamlegt að láta
neytendur og kaupendur að orkunni kaupa hana á réttu verði eins og að láta skattgreiðendur greiða hallann á ríkissjóði, og kannski skynsamlegra frá hagfræðilegu sjónarmiði. Þetta veit auðvitað hæstv. ráðherra. Og það er hryggilegt og það hryggir mig sérstaklega að þurfa að hlusta á hæstv. viðsk.- og iðnrh. koma hér og flytja okkur þennan framsóknarboðskap. Ég verð að segja það og ég samhryggist honum innilega þess vegna.
    Staðreynd málsins er sú að stjórn Landsvirkjunar kom saman í morgun og ákvað að sækja um 8% hækkun. Sú hækkun nægir ekki einu sinni fyrir því tapi sem Landsvirkjun hefur orðið fyrir frá því að síðasta hækkun átti sér stað og nægir ekki til þess að greiða eðlilega niður af skuldum eða til þess að fylgja lagaákvæðum um afkomu fyrirtækisins. Ég þykist vita

að hæstv. ríkisstjórn hafi átt von á öðru frá Landsvirkjunarstjórninni. Nú er þetta staðreynd og það er einmitt þessi ákvörðun sem er stefnumarkandi ákvörðun fyrir önnur fyrirtæki sem kaupa af Landsvirkjun, fyrir fyrirtæki eins og Rafmagnsveitur ríkisins, Orkubú Vestfjarða og aðrar rafveitur í landinu. Það er ljóst að langsamlega stærsti kaupandinn er rafmagnsveiturnar. Og hver sér um gjaldskrár rafmagnsveitnanna? Enginn annar en hæstv. iðnrh. sjálfur. Það er hann sem verður að samþykkja þær. Og það er vitað mál og yfirlýst stefna Orkubús Vestfjarða að fylgja í einu og öllu verðákvörðunum sem koma frá Rafmagnsveitum ríkisins og iðnrn. M.ö.o., það ákvæði sem er í 3. gr. frv. er gjörsamlega til óþurftar. Það þarf ekkert að vera og það veit auðvitað hæstv. ráðherra. Þess vegna skora ég á ráðherra að fella í burtu --- og gera það sjálfur, leggja það til sjálfur --- 3. gr. því að ef einhver ástæða hefur verið fyrir því að setja ákvæði 3. gr. inn í frv. hefur hún verið sú að koma í veg fyrir að Landsvirkjun færi með sínar verðákvarðanir upp úr öllu valdi. Það er ljóst að það gerist ekki. Þess vegna er 3. gr. ekki nema til óþurftar.
    Ég er viss um það, og það má segja hæstv. ríksstjórn Steingríms Hermannssonar, sem sat 1983--1987, til hróss að hún afnam gjaldskrárnefndina og setti gjaldskrárákvarðanir sveitarfélaganna í hendur sveitarfélaganna sjálfra. Ég hef engan hitt, og allra síst þá sem hafa einhvern tíma þekkt til starfsemi sveitarfélaga, sem hefur haldið því fram að þetta hafi ekki verið til bóta, til hagsbóta fyrir alla aðila, vegna þess að þá fylgdi völdunum ábyrgðin á ákvörðunartektinni. Þess vegna eru öll slík skref, eins og þau sem koma fram í 3. gr., skref aftur í tímann til fyrri stjórnarhátta sem reyndust illa. Og ef á að gera það í þessu tilviki, hvenær fáum við að sjá framhald af slíkum hugmyndum frá hæstv. ráðherrum? Aðrir sem hér hafa talað gegn 3. gr. hafa bent á röksemdir og þær koma fram auðvitað í nál. og fylgiskjölunum og ég ætla ekki að endurtaka þær hér. Ég vil hins vegar enn á ný segja að í grg. með 3. gr. frv. er ranglega farið með. Þar segir, ef ég man rétt, eitthvað á þá leið að það þurfi að fylgjast með verðlagningu á þessu sviði enda sé þar ekki um niðurgreiðslur að ræða. Er þetta satt og rétt? Við skulum skoða þetta aðeins. ( Viðskrh.: Þú ert búinn að halda þá ræðu áður.) Ég fékk engin svör við þeirri ræðu. Og nú ætla ég að biðja ráðherra um að skýra þetta út ef hann er ekki sammála og ætla að spyrja ráðherra: Er hann sammála mér þegar ég segi að það séu niðurgreiðslur á orkuverði, sérstaklega til húshitunar, að sjálfsögðu? Og ég ætla að lýsa hverjar þær eru. ( Viðskrh.: Bið hv. þm. að lesa betur grg. þar sem segir: ,,yfirleitt ekki niðurgreitt``.) Til hvers er verið að segja ,,yfirleitt ekki"? (Gripið fram í.) Ég var bara að benda á það að það er verið að gera tilraun, og það veit auðvitað hæstv. ráðherra, í grg. til þess að komast hjá því að segja sannleikann. Sannleikurinn er sá að húshitunarrafmagnið er niðurgreitt. Í fyrsta lagi er á því enginn söluskattur. Í öðru lagi eru

niðurgreiðslur samkvæmt fjárlögum upp á 230 millj., ef ég man rétt, sem eru 63 aurar á hverja kwst. Í þriðja lagi gefur Landsvirkjun afslátt upp á 21 eyri á kwst. Og í fjórða lagi bætist það nú við að hæstv. ríkisstjórn hefur ákveðið að greiða niður rafmagn til fiskvinnslufyrirtækja sem nota orkuna jafnt og þétt á öllum árstímum og jafnt og þétt allan sólarhringinn. Og í fimmta lagi var hæstv. ráðherra að lýsa því hér áðan, og ég er honum fyllilega sammála, að það þurfi að taka á fjárhagsvanda og skuldavanda bæði Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða með sama hætti og ráð var fyrir gert hjá síðustu ríkisstjórn og reyndar stóð eftir þegar verðlagningunni var á sínum tíma breytt og verðjöfnunargjaldið sem á raforkunni var fellt niður.
    Hvað er þetta annað en niðurgreiðslur? Hvað er þetta annað en opinber afskipti af verði? Og ég segi: Það er ekki boðlegt að birta í grg. röksemdir af þessu tagi af því að þær eru ekki réttar. Og að allra síðustu skora ég, því enn er hægt að breyta þessu, á ráðherra að kalla aftur 3. gr. frv. Það stendur ekki á okkur í Sjálfstfl. að styðja hinar tvær greinarnar sem eru til bóta. En vegna þeirrar ákvörðunar, sem tekin var í morgun í Landsvirkjunarstjórninni, tel ég að hafi einhvern tíma verið hægt að seilast svo langt að segja að það hafi verið röksemd fyrir slíkri grein, sé sú röksemd fallin, þá sé sú framsóknarröksemd fallin.