Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur svohljóðandi bréf:
    ,,Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Ragnhildur Helgadóttir, 3. þm. Reykv., er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hennar beiðni með vísan í 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Sólveig Pétursdóttir lögfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Óli Þ. Guðbjartsson,

forseti Nd.``

    Sólveig Pétursdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er hún boðin velkomin til starfa.

    Þá hefur einnig borist eftirfarandi bréf:
    ,,Margrét Frímannsdóttir, 4. þm. Suðurl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég vegna veikinda get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Suðurlandskjördæmi, Ragnar Óskarsson kennari, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Jón Helgason,

forseti Ed.``

    Ragnar Óskarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er hann boðinn velkominn til starfa.