Efling hafbeitar á Íslandi
Mánudaginn 06. mars 1989

     Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um eflingu hafbeitar á Íslandi. Flm. eru auk frummælanda Eyjólfur Konráð Jónsson og Halldór Blöndal. Till. hljóðar svo:
    ,,Alþingi ályktar að efla beri laxahafbeit á Íslandi og felur ríkisstjórninni að vinna að því að þessi atvinnuvegur sitji við sama borð og aðrar útflutningsgreinar. Í því sambandi er sérstaklega áréttað:
    1. Að starfsskilyrði hafbeitar hérlendis verði í samræmi við það sem gerist almennt í fiskeldi, enda verði staða atvinnuvegarins í heild stórbætt.
    2. Að hagnýtar rannsóknir á sviði kynbóta verði stórefldar. Enn fremur verði rannsakað eftir því sem unnt er gönguferill og uppeldisskilyrði lax.
    3. Komið verði á afurðalánakerfi, sniðnu fyrir hafbeit, sem geri fyrirtækjunum kleift að fjármagna reksturinn fram að sölu afurðanna.
    4. Söluskattur og aðflutningsgjöld af stofn- og rekstrarkostnaði hafbeitarstöðva verði endurgreiddur eins og í öðrum útflutningsgreinum.``
    Virðulegi forseti. Ég vil nú gera nánari grein fyrir þessu máli og vísa m.a. til þess sem segir í meðfylgjandi grg.
    Það er staðreynd að hvergi í heiminum eru aðstæður eins góðar og á Íslandi til að stunda hafbeit í atvinnuskyni. Byggist það fyrst og fremst á þeirri staðreynd að bannað er að veiða lax í sjó við Ísland. Að auki eru aðstæður til seiðaeldis hérlendis hinar ákjósanlegustu þar sem nóg er til af fersku vatni, svo ekki sé minnst á jarðhita. Hafbeitarlax er að mati flm. hágæðavara sem getur skapað Íslendingum mikla og góða möguleika til sérstöðu á mörkuðum í sölu þessara afurða sem eru laxaafurðir.
    Samanborið við önnur lönd, sem stunda hafbeit, bendir allt til þess að Ísland geti haft sérstöðu í þessari atvinnugrein. Í Bandaríkjunum þar sem hafbeit er stunduð í stórum stíl þykir gott að ná 3% í endurheimtur af slepptum seiðum. Hafbeit hefur fram á síðustu ár verið stunduð í smáum stíl hér á landi frá því árið 1961. En rannsóknir og tilraunir með sleppingu seiða benda til þess að endurheimtur hér á laxi geti verið 8--15% og má álíta það raunhæfa viðmiðun að það geti verið á bilinu 10--12%.
    Við Íslendingar stöndum á tímamótum á þessu sviði. Í dag hafa nokkur fyrirtæki uppi áform um stórfellda hafbeitarstarfsemi og hafa sum þeirra stundað rannsóknir um árabil og hafa þess vegna orðið mikla reynslu í sambandi við hafbeit. En þessi fyrirtæki eiga því miður við ákveðna fjárhagserfiðleika að stríða svo sem vegna stofnkostnaðar. Stafar það fyrst og fremst af því að af hálfu hins opinbera hafa ekki verið fyrir hendi möguleikar til lántöku eða möguleikar til þess að fá rekstrarfé.
    Sem dæmi um það hvaða möguleikar eru hér fyrir hendi mætti nefna að suður í Vogum starfar fyrirtæki sem heitir Vogalax hf., en það byrjaði starfsemi sína árið 1980 með því að sleppa seiðum á haf út til þess að ganga úr skugga um það hvort þau mundu koma

aftur á þennan stað. Svo segja má að allt frá 1981 hafi þar átt sér stað sleppingar á seiðum. Fyrstu árin var farið varlega af stað og var sleppt nokkur þúsund seiðum. Til baka komu nokkur þegar fyrstu árin. Á sl. ári sleppti þetta fyrirtæki 1,1 millj. seiða og árið 1989 er áætlað að sleppa 2,2 millj. og árið 1990 2,5 millj. En framtíðaráform eru um það að sleppa allt að 10 millj. seiða úr því.
    Ef það er skoðað hvað þetta þýðir í afurðum eða möguleikum þá má taka sem dæmi að 10% endurheimtur eru ekki óeðlilegar. Það þýddi þegar sleppt væri 10 millj. seiðum að búast mætti við 1 millj. fiskum til baka að ári. Meðalþyngd þeirra laxa sem hafa komið til þessarar stöðvar hefur verið tæplega 3 kg og má gera ráð fyrir að hún verði svo í framtíðinni. Slepping 10 millj. seiða með 10% endurheimtum mundi þess vegna skila um 1 millj. fiskum og það jafngildir um 3000 smálestum.
    Nú er ekki hægt að segja fyrir um það hvert skilaverð verður, það er auðvitað háð markaðsaðstæðum, en það má gera ráð fyrir því miðað við það sem þekkt er að skilaverð geti verið á bilinu 250--400 kr. á kg, og jafnvel meira eftir því sem fram líða stundir, en sé miðað við 250 kr. á kg, þá er hér um að ræða 750 millj. kr. árstekjur af þessari sleppingarstærð. En miðað við hærra verðið, þ.e. 400 kr. á kg sem ekki er óeðlilegt að gera ráð fyrir, þá er um að ræða 1200 millj. kr.
    Nú getur verið að ýmsum hv. þm., sem ekki hafa kynnst þessu, þyki þetta stórar tölur og úr lausu lofti gripnar. En svo er ekki því sú reynsla sem fengist hefur hjá þessari stærstu hafbeitarstöð á Íslandi og í Norður-Atlantshafi bendir til þess að búast megi við endurheimtum allt að 10%. Þannig að aðeins þessi eina stöð gæti skilað árlega aflaverðmæti u.þ.b. 4--5 frystitogara og þá vek ég athygli á því að stofnkostnaður einnar slíkrar hafbeitarstöðvar eins og Vogalax hf. er með er álíka mikill og kostnaður við smíði eins frystitogara. Af þessu má nokkuð marka hvað miklir möguleikar eru hér á ferðinni og hversu hagnýtt þetta er fyrir Íslendinga að fara út í.
    Þá er rétt að rifja það upp og minna á að því miður hafa Íslendingar ekki stundað hafbeit né fiskeldi sem skyldi samanborið við Norðmenn. En árið 1988
er talið að framleiðsla Norðmanna á laxi hafi verið um 80 þús. tonn, á sama tíma og okkar framleiðsla var aðeins 800 tonn. Fyrir fimm árum var ársframleiðsla Norðmanna innan við 20 þús. smálestir. Það má því segja að það sé til skammar fyrir okkur Íslendinga hversu slælega hefur verið staðið að þessum málum af hálfu hins opinbera. Hins vegar hafa ýmsir einkaaðilar af veikum mætti reynt að byggja upp þær stöðvar sem þegar eru fyrir hendi.
    Á hinu háa Alþingi hefur á síðustu árum allt of mikil umræða farið í það sem ég vil kalla tiltölulega ómerkileg mál í stað þess að ræða um nýja atvinnumöguleika og ný tækifæri fyrir íslenska þjóð m.a. á því sviði sem hér er til umræðu.
    Ég vil, virðulegi forseti, víkja nokkrum orðum að því hvað er hafbeit. Ég er ekki viss um að allir geri

sér nægilega grein fyrir því og geri nægilega glögg skil á hafbeit annars vegar og öðru fiskeldi hins vegar. Má segja að þessu hugtaki sé gjarnan ruglað saman við hefðbundið sjókvíaeldi eða fiskeldi almennt. Meginmunurinn á hafbeit og sjókvíaeldi eða fiskeldi almennt er sá að fiskurinn vex upp frjáls í hafinu en ekki í sjókvíum, þ.e. hann er ekki fóðraður nema í seiðastærð. Lax er anadróm-fiskur sem fer úr söltum sjó í ferskt vatn til að hrygna. Í hafbeit nota menn þetta náttúrulögmál á þann hátt að þeir sleppa sjógönguseiðunum frjálst í hafið að vori eftir að hafa alið þau upp í sjógöngustærð á landi. Eftir 1--2 ár koma seiðin aftur á æskuslóðirnar sem fullvaxta fiskur. Þetta þekkja Íslendingar vel úr laxveiðiám. En frá því að seiðum er sleppt úr hafbeitarstöð að vori, þá eru seiðin 40 grömm að þyngd, og þar til þau eru veidd í gildrur árið eftir, hafa þau vaxið í u.þ.b. 2900 gramma þyngd, eða tæplega 3 kg, eins og ég gat um í upphafi míns máls. Að tveim árum liðnum getur fiskur sem ekki kom að ári en kemur eftir tvö ár hafa náð 4--6 kg þyngd eða allt upp í 7 kg.
    Fiskeldi hefur mikið verið til umræðu á Íslandi undanfarnar vikur og mánuði og undanfarin ár. Þær umræður hafa mjög einkennst af því að menn hafa verið að ræða um að stórefla matfiskaeldi í formi strandeldis eða sjókvíaeldis. Allir vita að erlendir markaðir fyrir seiði lokuðust á sl. ári sem hafði mjög alvarlegar afleiðingar í sambandi við sölu eldisseiða. Þeim varð annaðhvort að farga eða bjarga með þeim hætti að byggðar voru nýjar stöðvar eða þær stækkaðar sem fyrir voru til þess að geta nýtt þessi seiði. Þetta þýðir auðvitað stórfelldan stofnfjárkostnað svo ekki sé minnst á væntanlegan rekstrarkostnað næstu tvö árin vegna þessara breytinga á rekstrarforsendum. Ég ætla ekki að gera lítið úr því markmiði að nýta seiðin með þeim hætti sem hér um ræðir. En kapp er best með forsjá í þessum efnum. Þá er og rétt að hafa það í huga að hafbeitarlax er önnur afurð en eldislax eða fóðraður lax.
    Ég vil endurtaka það, virðulegi forseti, að hafbeit á Íslandi býður upp á mikla möguleika í þeirri óvæntu stöðu sem atvinnugreinin komst í á sl. ári vegna þess að ekki var hægt að selja eða flytja út seiði. Í stað þess að byggja upp strandeldi hratt með þeim tilkostnaði sem það hefur haft í för með sér þá mætti auka þörf á eldisrými fyrir matfisk með auknum sleppingum hafbeitarseiða. Nota má núverandi framleiðslugetu seiðaeldisstöðva, sem er um 20 milljónir seiða, til þess m.a. að framleiða hafbeitarseiði í stað eldisseiða sem ekki er ótakmarkaður markaður fyrir. En það er ekki hægt að sleppa eldisseiðum í hafbeit, heldur verður að nota aðeins úrvalshafbeitarseiði sem alin eru upp úr villtum hafbeitarlaxi. Það er þess vegna skoðun mín að það beri að efla Laxeldisstöðina í Kollafirði sem þjónustuaðila fyrir ný hafbeitarfyrirtæki en þar hefur safnast fyrir mikil reynsla sem ber að nýta enn betur.
    Ég vil svo, virðulegi forseti, víkja nokkrum orðum að framleiðslukostnaði í sambandi við hafbeitarfisk. Það er augljóst að framleiðslukostnaður á hvert kg í

hafbeit er mun lægri en t.d. í strandeldi. Arðsemi í hafbeit er því mun hærri samanborið við strandeldi þegar stöðvarnar eru komnar í ákveðna stærð. Framleiðslukostnaður á hvert kg í hafbeit getur verið og er undir 100 kr., ef endurheimtur eru góðar, samanborið við 250 kr. áætlaðan kostnað á sl. sumri í sambandi við strandeldi. En þetta er náttúrlega við það miðað að sleppingar frá viðkomandi hafbeitarstöð skipti milljónum seiða.
    Eitt af grundvallaratriðunum fyrir því að unnt sé að starfrækja og reka hafbeitarstöðvar á Íslandi er að þessar stöðvar hafi aðgang að afurðalánakerfi með sambærilegum hætti og önnur útflutningsfyrirtæki. Fiskeldisfyrirtæki á Íslandi sem lagt hafa megináherslu á hafbeit eiga ekki kost á því að fá afurðalán. Hefðbundin fiskeldisfyrirtæki geta hins vegar fengið 37,5% af tryggingaverðmæti framleiðslu sinnar, sem engan veginn er talið nóg, en hafbeit hefur enn sem komið er ekki fengið viðurkenningu á starfsemi sinni og þar með ekki fengið lán. Orsökin er að öllum líkindum sú að stöðvarnar sleppa veðhæfum seiðum í hafið í stað þess að selja þau og þurfa að bíða í 1--2 ár þar til þau koma aftur og skila tekjum. Vandamálið er því m.a. fólgið í því að veðin eru þar með ekki áþreifanleg eða í vörslu t.d. lántakanda heldur óskilgreind í hafinu. Leysa þarf þetta vandamál sérstaklega fyrir hafbeitarfyrirtækin vegna sérstöðu sinnar en að öðru leyti mun ég vísa til
þess sem fram hefur komið í svokallaðri starfsskilyrðanefnd fyrir fiskeldi um sama efni fyrir hefðbundin fiskeldisfyrirtæki.
    Virðulegi forseti. Það eru ótalmörg atriði sem vert væri að koma inn á í sambandi við hafbeitarstöðvar og fiskeldismál almennt. En ég skal nú láta máli mínu lokið. Ég vil aðeins að lokum ítreka þá skoðun mína og fleiri að á sviði hafbeitar liggja mikil og ónotuð tækifæri fyrir íslenska þjóð. Ég vil því leggja áherslu á það að hið háa Alþingi styðji þessa till. eindregið þannig að þessi starfsemi fái notið sín með þeim hætti sem æskilegt og nauðsynlegt er.
    Ég vil svo að lokum, virðulegur forseti, leggja til að að lokinni þessari umræðu verði till. vísað til atvmn.