Efling hafbeitar á Íslandi
Mánudaginn 06. mars 1989

     Guðmundur G. Þórarinsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi við þessa þáltill. sem hér hefur komið fram og reyndar þakka fyrir þá vinnu sem lögð hefur verið í að undirbúa hana og leggja hana hér fram. Þessi tillaga er flutt af þremur hv. þm. og sérstaklega vil ég geta þess að tveir fyrstu flm. eru þegar þjóðkunnir fyrir störf sín að fiskeldismálum og mér er vel kunnugt um það að fiskeldismenn vænta sér mjög mikils af þeirra störfum. Ég held að till. sem hér kemur fram sé afar þörf. Ég þakka hv. 1. flm., Guðmundi H. Garðarssyni, fyrir mjög fróðlega ræðu sem hann flutti hér með till. og óneitanlega hygg ég að flestir þm. hafi höggvið eftir því þegar hann lýsti því að fyrirtækið Vogalax mundi verða með fjárfestingarkostnað sem svaraði einum frystitogara en útflutningstekjur e.t.v. sem svaraði fjórum. Það segir okkur nokkuð um þá möguleika sem þarna eru.
    Hafbeit mun hafa hafist á Íslandi árið 1963 þegar 300 seiðum var sleppt frá Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði en 1987 var þetta komið upp í 950 þús. seiði frá 20 stöðvum og í fyrra var sleppt líklega um 2 millj. og 200 þús. seiðum og ef ég man rétt eru endurheimtur í fyrra einhvers staðar í kringum 60 þús. laxar eða um 10 þús. löxum meira en veiðar á villtum laxi, bæði á stöng og í net, samanlagt. Þannig að þarna er orðið um talsvert laxamagn að ræða.
    Eins og fram kom í ræðu 1. flm. búa Íslendingar við nokkra sérstöðu til hafbeitar einmitt vegna þess að hér ríkir bann við laxveiðum í sjó.
    Ég held að það sé mjög brýnt að um það sé fjallað hér, og þá í fullri alvöru og af fullri samviskusemi, á hvern hátt megi bæta starfsskilyrði þessarar merku greinar sem er nú í mjög miklum vexti hér á landi. Hún þarf auðvitað að sitja við sama borð og aðrar útflutningsgreinar. En mér dettur í hug að ég fékk af því fréttir ekki alls fyrir löngu, sem er út af fyrir sig dálítið merkilegt, að Vogalax er á hafnarsvæði. Ein af aðaltekjulindum hafnarsvæða er aflagjald sem líklega er 0,75% af verðmæti þess afla sem landað er í höfnum. Samkvæmt þeim fréttum sem ég hef hefur Vatnsleysustrandarhreppur óskað eftir því að Vogalax greiði aflagjald af þeim laxi sem gengur upp í lónin hjá þeim á þeirri forsendu að þar komi fiskur inn sem sé landað.
    Ég verð að játa það að mér fannst þetta alveg fráleit hugmynd og sýnir það kannski að vissu leyti hversu langt hið opinbera teygir sig í skattheimtu á aðila sem jafnvel eru að brjótast af stað með mikla fjárfestingu og eru í byrjunarerfiðleikum.
    Ég held að það sé lágmarkskrafa að starfsskilyrði hafbeitar hérlendis séu svipuð og reyndar almennt í fiskeldi eins og flm. segja en bæta þó við ,,enda verði staða atvinnuvegarins í heild stórbætt``.
    Hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson gerði vel grein fyrir þeim starfsskilyrðum sem ríkja nú í fiskeldi og ég þarf ekki að fara mörgum orðum um það. Þar er margt óleyst. Þar er margt sem þarf að bæta.
    Við gerum okkur vonir um að með þeirri reglugerð sem á að fara að koma út um Tryggingasjóð

fiskeldislána verði staða hafbeitar stórbætt til afurðalána. Reyndar væri það tilefni til umræðna hér á þinginu að sú reglugerð skuli enn ekki vera komin út, tveimur mánuðum eftir að lögin voru sett hér á Alþingi, reyndar með nokkrum flýti, og fyrirtækin bíða öll í ofvæni eftir að fá reglugerðina. Tveir mánuðir eru of langur tími og hefði verið æskilegt að hæstv. landbrh. gerði grein fyrir því hvað dvalið hefur orminn langa. En vonandi tekst að koma því á koppinn innan tíðar þannig að afurðalánakerfi komi fyrir fiskeldið og þar með hafbeitina þó að slík reglugerð dugi reyndar ekki ein til.
    Ég tek undir það að hafbeitarfiskur sé hágæðafiskur. Hér er um gæðavöru að ræða og hér er um að ræða grein sem getur stóraukið okkar útflutningstekjur. Að þessari grein þurfum við að hlúa. Ég þakka því flm. fyrir þessa tillögu. Hún er tímabær. Hér er um gott mál að ræða sem ég vona að Alþingi taki vel á móti.