Viðskiptabankar og sparisjóðir
Þriðjudaginn 07. mars 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Hæstv. forseti. Frv. það sem ég mæli hér fyrir og er á þskj. 3, um breytingu á lögum nr. 86/1985, um viðskiptabanka, og um breytingu á lögum nr. 87/1985, um sparisjóði, er flutt í tengslum við frv. til laga um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði sem er nú til meðferðar hjá hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar. Bæði frv. eru komin frá Nd.
    Í frv. um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði er sú meginregla mótuð að sömu lög gildi um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði hver sem að þeirri starfsemi stendur. Er þetta hugsað til þess að koma á jafnræði milli þeirra sem verðbréfaviðskipti og vörslu verðbréfasjóða annast í atvinnuskyni og til þess að draga úr líkum á svokölluðum innherjaviðskiptum eða ,,insider trading`` eins og þau eru kölluð á enskri tungu, en vegna ýmissa sakamála sem upp hafa komið í nágrannalöndum okkar er nú víða unnið að því að herða mjög reglur sem koma eiga í veg fyrir slík brot, þ.e. að tryggja skýran aðskilnað verðbréfasjóða, verðbréfafyrirtækja annars vegar og annarra lánastofnana eða atvinnufyrirtækja hins vegar. Það er hins vegar síður en svo ástæða til þess að hafa á móti því að bankar og sparisjóðir séu aðilar að verðbréfafyrirtækjum á jafnréttisgrundvelli. Þótt verðbréfafyrirtæki séu að hluta eða öllu leyti í eigu banka og sparisjóða, þá er sjálfstæði þeirra og aðskilið starfslið nokkur trygging fyrir því að trúnaðarupplýsingar um fyrirtæki sem í viðskiptum eru hjá viðkomandi banka eða sparisjóði verði ekki notaðar til þess að hafa áhrif á viðskipti verðbréfafyrirtækjanna viðskiptavinum þeirra í óhag. Í þessu frv. er sett ótvíræð heimild fyrir viðskiptabanka annars vegar og sparisjóði hins vegar að starfrækja verðbréfafyrirtæki sem starfar samkvæmt væntanlegum lögum um verðbréfafyrirtæki og verðbréfasjóði.
    Hæstv. forseti. Ég tel það mikilvægt framfaraskref að sett verði löggjöf á þessu þingi um verðbréfafyrirtæki og verðbréfasjóði í samræmi við það frv. sem liggur nú fyrir þessari hv. þingdeild og þetta fylgifrv. þess.
    Ég legg til að þessu frv. verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.