Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga á þskj. 546 um afnám ýmissa laga um iðnaðar- og orkumál. Þetta frv. er samið í iðnrn. og er flutt í því skyni að felld verði úr gildi ýmis lagaákvæði sem ekki eiga lengur við sökum breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu eða hafa skilað tilætluðum árangri.
Í frv. er lagt til að 11 lög sem sett hafa verið á árabilinu 1917--1981 verði felld úr gildi. Hér er um löggjöf að ræða sem ýmist er hætt að framkvæma eða hefur aldrei komið til framkvæmda. Löggjafinn á auðvitað bæði að gefa lög og taka af þegar þeirra er ekki lengur þörf. Þetta er þrifnaðarmál.
Lögin sem hér er gerð tillaga um að niður verði felld eru þessi:
1. Lög nr. 23 frá 12. sept. 1917, um heimild handa bæjar- og sveitarstjórnum til að taka eignarnámi eða á leigu brauðgerðarhús o.fl., sem sett voru vegna styrjaldarástandsins 1917 og hafa enga þýðingu lengur.
2. Lög nr. 22 frá 13. jan. 1938, um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fyrirskipa blöndun á þurrmjólk í brauð í brauðgerðarhúsum og til þess að ákveða hámarksverð á brauði og þurrmjólk, en lögum þessum hefur ekki verið beitt í áratugi og eru löngu úrelt orðin. Landbrn. hefur ekkert að athuga við brottfall þessara laga sem undanfarna áratugi hafa verið flokkuð með lögum um iðnaðarmál.
3. Lög nr. 21 frá 5. apríl 1971 eru þriðju lögin. Þau fjalla um olíuhreinsunarstöð á Íslandi, en þegar þetta mál var athugað á sínum tíma kom í ljós að bygging olíuhreinsunarstöðvar hér á landi reyndist ekki hagkvæm. Ef upp koma á ný hugmyndir um byggingu olíuhreinsunarstöðvar hér á landi er eðlilegt að málið komi á ný til kasta Alþingis og því er lagt til að lögin verði úr gildi numin.
4. Lög nr. 49 frá 29. maí 1957, um Tunnuverksmiðju ríkisins, en ríkissjóður hefur þegar hætt rekstri þeirra tunnuverksmiðja sem nefndar eru í lögunum.
5. Lög nr. 46 frá 14. maí 1974, um stofnun undirbúningsfélags fyrir fiskkassaverksmiðju. Ekki er lengur þörf ríkisaðildar að stofnun fiskkassaverksmiðju hér á landi og er því eðlilegt að fella lögin úr gildi.
6. Lög nr. 107 frá 1. des. 1971, um undirbúning þörungavinnslu að Reykhólum.
7. Lög nr. 107 frá 27. des. 1973, um þörungavinnslu við Breiðafjörð, með breytingu gerðri á lögum nr. 14 frá 23. maí 1975.
Svo sem kunnugt er varð Þörungavinnslan hf. gjaldþrota og ríkissjóður ekki lengur aðili að þurrkun þörunga að Reykhólum. Því er eðlilegt að lögin um þetta efni verði úr gildi felld.
8. Lög nr. 59 frá 4. júní 1981, um stálbræðslu. Hætt er við þær framkvæmdir sem lögin fjölluðu um. Einkaaðilar hafa nýlega stofnað hlutafélag um bræðslu á brotajárni og því ekki lengur þörf á sérlögum um stálbræðslu.
9. Lög nr. 45 frá 30. júní 1942, um leyfi til þess að veita raforku frá Sogsvirkjun til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar, sem virðast með öllu úrelt
og því rétt að fella þau formlega úr gildi.
10. Lög nr. 28 16. apríl 1971, um virkjun Svartár í Skagafirði, sem aldrei hafa komið til framkvæmda og virðast nú úrelt. Að áliti Orkustofnunar mundi virkjun Svartár, ef til kæmi, gerð með allt öðrum hætti en lögin gera ráð fyrir og yrði því að setja ný lög um hana ef í hana yrði ráðist.
11. Lög nr. 105 31. des. 1974, um virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal, en lögin eru úrelt vegna breyttra aðstæðna frá þeim tíma sem þau voru sett. Sem stendur er ráðgert að virkja Bessastaðaá með Jökulsá í Fljótsdal en heimild til virkjunar hennar er að finna í lögum nr. 60/1981, um raforkuver. Þótt að því yrði horfið að virkja Bessastaðaá sérstaklega, t.d. sem fyrsta áfanga samvirkjunar með Jökulsá í Fljótsdal, yrði sú virkjun að áliti Orkustofnunar með allt öðrum hætti en lögin frá 1974 gera ráð fyrir.
Með tilliti til réttaröryggis og einföldunar á íslenskum lögum tel ég mikilvægt að felld séu úr gildi lög sem eru úrelt orðin eða ekki verða framkvæmd. Ég beitti mér sem viðskrh. fyrir lagahreinsun á sviði viðskiptamála á síðasta þingi með líkum hætti og hér er gerð tillaga um varðandi iðnaðar- og orkumál. Góð samstaða tókst um afgreiðslu þess þingmáls. Ég treysti því að svo verði einnig um það frv. sem ég mæli nú fyrir.
Í grg. með frv. þessu er vikið að allmörgum lögum á sviði iðnaðar- og orkumála sem eru heimildarlög vegna sölu eigna, lántöku og nýrra framkvæmda. Slík lög þarf ekki að fella úr gildi með lögum, en óþarft virðist að birta slík lög í lagasafni eftir að þau hafa verið framkvæmd. Ég vísa til grg. um það mál og tel sjálfsagt að ritstjórar lagasafns taki þau sjónarmið til nánari umfjöllunar.
Að lokinni 1. umr. í þessari hv. deild legg ég til að frv. verði vísað til hv. iðnn. og 2. umr.