Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða undan drykkjarvörum. Þetta frv. er á þskj. 573. Frv. er samið í iðnrn. og byggir m.a. á tillögum svonefndrar endurvinnslunefndar sem Friðrik Sophusson, þáv. iðnrh., skipaði 18. nóv. 1987 til að huga að endurvinnslu úrgangs á Íslandi.
Nefndinni var jafnframt falið að gera skýrslu um það með hvaða hætti nýtanlegum úrgangi yrði safnað og hann endurunninn. Endurvinnslunefndin hefur á starfstíma sínum hugað að þessu máli í heild. Það sem einkum hefur verið til athugunar eru úrgangsmálmar og þá ekki síst bílflök, margs konar ónothæfar vélar og einnota umbúðir úr málmi og úrgangspappír, þar með einnota umbúðir. Enn fremur úrgangsplast og gúmmíhjólbarðar sem hætt er að nota, svo og alls konar gler-, vefnaðar- og timburúrgangur.
Nefndin tók ákvörðun um að taka fyrst til athugunar meðferð á brotamálmum og skilagjald af ökutækjum sem eru nátengd viðfangsefni. Þessum fyrsta þætti í starfi nefndarinnar lauk með tillögum að frv. til laga um meðferð brotamálma og skilagjald af ökutækjum ásamt greinargerð sem endurvinnslunefndin sendi frá sér 24. okt. 1988. Tillaga þessi hefur verið til nánari athugunar í iðnrn., en þar virðast mér vera sérstök vandamál varðandi skilagjald á ökutækjum, m.a. varðandi veðbönd og skráningar á gömlum bílum.
Ég tel þó mest aðkallandi að taka fyrst fyrir tillögur um söfnun og endurvinnslu einnota umbúða um drykkjarvörur. Samhliða því að endurvinnslunefnd hugaði að þessu máli þótti rétt að mál, sem tengjast söfnun og endurvinnslu einnota drykkjarvöruumbúða úr áli og plasti, yrðu könnuð sérstaklega. Þetta er sérstaklega brýnt vegna þeirrar miklu aukningar sem orðið hefur á notkun einnota umbúða úr áli og þeirri viðbót sem nú má búast við vegna bjórsölunnar sem hófst 1. mars sl.
Það er rétt að geta þess að Áfengis- og tóbaksverslunin hefur þegar hafið að innheimta 5 kr. skilagjald af hverri öldós sem Áfengis- og tóbaksverslunin selur samkvæmt sérstakri ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Iðnrn. fékk Ágúst Þór Jónsson verkfræðing til þess að kanna þetta mál sérstaklega og gera tillögu um einfalt söfnunarkerfi sem í fyrstu skyldi eingöngu taka til einnota drykkjarvöruumbúða úr áli og plasti. Ágúst skilaði ráðuneytinu greinargerð um þetta málefni 23. jan. sl. Hinn 10. febr. sl. boðaði ég til fundar og kynnti hugmyndir þessar fyrir fulltrúum öl- og gosdrykkjaframleiðenda, kaupmanna, iðnrekenda og fulltrúa samtaka sem láta sig varða náttúruvernd. Á þeim fundi var samþykkt að skipa undirbúningsnefnd vegna stofnunar hlutafélags er tæki að sér að safna einnota drykkjarvöruumbúðum og endurvinna eða koma til endurvinnslu eða eyðingar. Hinn 15. febr. sl. skilaði svo endurvinnslunefndin áliti í formi tillögu að frv. til laga um notkun og endurvinnslu einnota umbúða fyrir drykkjarvörur ásamt greinargerð. Tillaga nefndarinnar er sú að lagt verði skilagjald á einnota
drykkjarvöruumbúðir úr áli og plasti. Enn fremur lagði nefndin til að lagt yrði svokallað umhverfisgjald á allar aðrar einnota umbúðir úr plasti, gleri, málmum, pappa eða sambærilegum efnum. Í tillögu endurvinnslunefndar var lagt til að iðnrh. geti samið við ýmsa aðila um framkvæmd einstakra þátta þessa máls.
Í því frv. sem nú liggur fyrir hv. Ed. og ég mæli nú fyrir er sú leið valin að leggja til almennt heimildarákvæði um álagningu skilagjalds á einnota umbúðir. Jafnframt er lagt til að í reglugerð verði síðar kveðið á um að í upphafi að gjaldið verði aðeins lagt á einnota drykkjarvöruumbúðir úr áli og plastefnum. Til að tryggja skilvirka framkvæmd þessara laga og þeirra verkefna á sviði umhverfisverndar og endurvinnslu sem að er stefnt er í frv. lögð sú skylda á iðnrh. að hann hafi frumkvæði að stofnun hlutafélags er annist söfnun og endurvinnslu einnota umbúða sem skilagjald er lagt á og annast umsýslu þessa skilagjalds. Frv. sem hér er mælt fyrir er því að nokkru leyti frábrugðið tillögum endurvinnslunefndar. Hér er skýrar kveðið á um framkvæmd málsins og að skilagjaldið verði lagt á í áföngum. Þetta er mín tillaga til þess að hrinda því þegar í framkvæmd sem brýnast er og snúast við sívaxandi straumi af áldósum utan um drykkjarvörur, ekki síst öl.
Eftir því sem gengur á auðlindir jarðar verður endurvinnsla á ýmsu því sem hent er frá neysluþjóðfélögum nútímans stöðugt mikilvægara. Hér er því ekki aðeins um brýnt verkefni að ræða vegna umhverfisverndar, heldur er ekki síður um að ræða nýja iðngrein, mikilvæga grein iðnþróunar þegar horft er langt fram á veginn. Margar þjóðir hafa látið sig þessi mál varða. Evrópubandalagið staðfesti t.d. 27. júní 1985 samþykkt um umbúðir fyrir ,,fljótandi matvæli`` eins og það er kallað. Tilgangurinn með samþykktinni var að draga úr magni umbúða í sorpi með því að auka notkun á margnota eða endurvinnanlegum umbúðum fyrir fljótandi mat. Samþykktinni var einnig ætlað að draga úr orkunotkun og notkun hráefna við framleiðslu umbúðanna. Í samræmi við þessa stefnu var samþykkt að aðildarríkin settu fram áætlun um að draga úr magni umbúða fyrir fljótandi mat í heimilissorpi. Að teknu tilliti til samninga um frjálsa viðskiptahætti áttu aðildarríkin að setja reglur eða beita sér fyrir
stjórnvaldsaðgerðum þar sem tekið væri tillit til eftirtalinna atriða:
1. Að fræða neytendur um kostina við það að nota margnota eða endurvinnanlegar umbúðir og draga úr magni umbúða í heimilisúrgangi.
2. Í öðru lagi að auðvelda notkun endurnýtanlegra umbúða fyrir fljótandi matvæli.
3. Að hvetja til söfnunar einnota umbúða og setja upp skilvirkt kerfi til þess að safna umbúðum úr úrgangi.
4. Að draga úr notkun hráefna, minnka sorp og draga úr orkunotkun með tækniþróun og nýjum umbúðum.
5. Að tryggja að endurnýtanlegar umbúðir sem nú eru í notkun hverfi ekki og ef hægt er að auka hlutfall slíkra umbúða jafnframt því sem dregið yrði úr notkun einnota umbúða sem ekki er hægt að endurnýta eða endurvinna.
Í Danmörku hefur sú leið verið farin að banna notkun áldósa, fyrst og fremst vegna þess umhverfisvanda sem stafar af þeim. Danir hafa lagt gjald á allar aðrar einnota umbúðir, en frá og með síðustu áramótum er t.d. lagt 10 danskra aura gjald á hvert ílát utan um mjólk. Í Noregi er lagt gjald á allar einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur aðrar en mjólkurvörur og hreina ávaxtasafa. Þetta var gert áður en áldósir fóru að streyma inn á markaðinn og samkvæmt upplýsingum frá Noregi finnast þar varla áldósir.
Í Svíþjóð var farin önnur leið. Áldósir voru þar algengar á markaði og því var sett í gang tilraun til þess að safna þeim saman og koma í endurvinnslu. Þetta kerfi hefur nú verið starfrækt í nokkur ár og hefur þótt ganga vel.
Á einnota umbúðir sem ekki eru endurvinnanlegar hefur líka verið lagt sérstakt gjald en lægra en skilagjaldið. Það söfnunarkerfi sem gengið er út frá í þessu frv. byggir fyrst og fremst á reynslu Svía, en er þó einfaldara í sniðum. Í fskj. I með frv. er gerð ítarleg grein fyrir þessu fyrirkomulagi. Í stuttu máli má lýsa því þannig að lagt verði 5 kr. skilagjald á hverja dós. Reyndar vek ég athygli á því að í 1. gr. frv. er heimild til þess að gjaldið nemi allt að 10 kr. Skilagjaldið ásamt umsýsluþóknun, sem á að nema 1% af skilagjaldinu eða í dæminu sem sýnt er í fskj. I, 5 aurum af hverri dós, á að leggja á innfluttar drykkjarvörur í einnota umbúðum við tollafgreiðslu þeirra en samhliða vörugjaldi á innlenda drykkjarvöruframleiðslu. Innheimt skilagjald verður síðan afhent því hlutafélagi sem stofnað verður á grundvelli 2. gr. frv. sem síðan á að skipuleggja söfnun umbúðanna um allt land, koma þeim til endurvinnslu. Skilagjald af umbúðunum verður endurgreitt neytendum við móttöku þeirra. Þannig á álagning skilagjaldsins ekki að hafa í för með sér verðhækkun því að neytandinn fær gjaldið til baka þegar hann skilar umbúðunum. Tekjur félagsins eru umsýslugjaldið ásamt skilagjaldi af þeim dósum sem ekki skila sér, en útgjöldin eru auðvitað auk umsýslukostnaðarins endurgreiðslan á skilagjaldinu, þóknun til móttökuaðila og kostnaður við átak til hreinsunar. Í samningi við félagið verða sett tiltekin mörk um lágmarksskil á dósum, en eftir því sem skilin verða betri er hægt að hækka umsýslugjaldið.
Það er gert ráð fyrir því að reglubundin söfnun umbúða verði fyrst og fremst í höndum söluaðila. Í sambandi við skipulag umbúðasöfnunarinnar er einnig vonast eftir samstarfi við félagasamtök sem sum hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga, ég nefni þar t.d. skátahreyfinguna. Með þátttöku í hreinsunar- og söfnunarstarfi geta slík samtök stuðlað að því að halda landinu hreinu og fögru, en jafnframt haft af því nokkurn fjárhagslegan ávinning.
Til þess að hægt sé að koma við fullkominni tækni og talningu og flokkun umbúða þarf auðvitað að staðla þær, bæði hvað snertir efnisval og stærðir. Einnig er nauðsynlegt að settar verði reglur um gerð umbúðanna, t.d. varðandi flipa á áldósum, þannig að sem minnst umhverfismengun fylgi umbúðunum. Þannig hefur t.d. Áfengis- og tóbaksverslunin ekki tekið við áldósum með lausum flipum sem hent er þegar dósirnar eru opnaðar. Í framtíðinni er reiknað með því að allar leyfðar og skilagjaldsskyldar umbúðir verði sérstaklega merktar á þann hátt að ljóst sé að skilagjald fylgi þeim. Til að byrja með verður þó að taka við þeim umbúðum sem gerðar voru áður og eru fyrir í landinu og hafa lokið sínu hlutverki. Þetta á að vera hægt vegna þess að við því er að búast að í upphafi verði skilahlutfallið tiltölulega lágt. Undirbúningsnefnd sú sem unnið hefur að því að stofna hlutafélag skv. 2. gr. frv. hefur á þessu stigi máls náð samkomulagi um nokkur atriði sem ég ætla hér að lýsa.
1. Að tilgangur félagsins verði að safna og endurvinna eða eyða einnota umbúðum sem skilagjald er lagt á samkvæmt þessu frv. og að hafa með höndum umsýslu skilagjalds og skyldan atvinnurekstur. Þá verði félaginu heimilt að taka að sér söfnun og endurvinnslu annarra einnota hluta sem skilagjald kann að verða lagt á síðar.
2. Að hlutafé verði 30 millj. kr. en stjórn félagsins verði heimilt að hækka hlutaféð í 45 millj. kr. ef byggt yrði yfir starfsemina eða breyting verður á henni sem gerði þetta nauðsynlegt.
3. Samkomulag er um það til bráðabirgða að skipting hlutafjárins verði við upphaf félagsins á þessa leið: Iðnrekendur, þ.e. framleiðendur gosdrykkja og öls, málmbræðslufyrirtæki og fleiri eigi 40% af hlutafénu, innflytjendur á
gosi og öli og kaupmenn og samtök þeirra, þar með talin samvinnuhreyfingin, eigi samanlagt 20%, ríkissjóður, þar með talin Áfengis- og tóbaksverslunin, sveitarfélög og almannasamtök eigi allt að 40%.
Fyrsta verkefni þessa félags verður að skipuleggja og kosta söfnun á gosdrykkja- og bjórdósum úr áli og plasti, en það eru fleiri verkefni fram undan. Söfnun á einnota plastflöskum og glerflöskum af ýmsu tagi og endurvinnsla þeirra er mikið verkefni og sama gildir um sumar gerðir af pappírsumbúðunum. Síðar má hugsa sér að félagið færi inn á önnur svið söfnunar og endurvinnslu sem ekki snerta umbúðir um drykkjarvörur. Það fyrirtæki sem hér er um rætt er ekki mannfrekt, a.m.k. ekki í byrjun. Það er gert ráð fyrir því að auk forstöðumanns starfi þar sex aðrir starfsmenn í fullu starfi. Fyrirtækið mun byggja sitt starf á samstarfi við fjölda aðila um allt land sem taka að sér að safna umbúðum gegn skilagjaldi eða taka við þeim fyrir hönd fyrirtækisins og greiði þá út skilagjaldið.
Iðnrn. hefur tekið frumkvæði í þessu máli, en eins og kunnugt er eru nú uppi ráðagerðir um að sameina flesta þætti umhverfismála og umhverfisverndar í einu ráðuneyti og mun það ráðuneyti einnig taka við þessu
verkefni.
Ég tel ekki nauðsynlegt að fara fleiri orðum um það frv. sem hér er nú til umræðu en ítreka nauðsyn þess að frv. fái skjóta meðferð í þinginu, ekki síst vegna þess að þegar eru hafin umfangsmikil viðskipti með einnota áldósir og einnota plastdósir, ekki síst eftir að áfengt öl er komið hér í almenna sölu.
Að þessu mæltu legg ég til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. iðnn. og 2. umr.