Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég tek undir það að það er ágætt út af fyrir sig að lagt skuli hafa verið fram frv. til laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun. Hér er um að ræða frv. sem snýr að ákveðnum tegundum umbúða sem eru umbúðir fyrir drykkjarvörur. Ég verð þó að segja það að þrátt fyrir það að það út af fyrir sig sé gott er það fjarri því að vera fullnægjandi í sambandi við það markmið sem við höfum sett okkur, að vinna betur að umhverfismálum.
Mér finnst þess vegna eðlilegt líka, með tilliti til þess að þetta er nú nokkuð seint fram komið eftir alla þá umræðu sem hefur verið um umhverfismál á þessu þingi og fyrri þingum, taka undir það að það veldur mér sem öðrum miklum vonbrigðum hvað þetta hefur gengið hægt fyrir sig, sérstaklega þegar maður hefur það í huga að búið var að vinna töluvert mikið starf á þessu sviði áður en núv. hæstv. ríkisstjórn var sett á laggirnar sl. haust. En ég vil með leyfi forseta rifja nokkuð upp aðdraganda og upphaf þessa máls.
Það mun hafa verið í byrjun árs 1988 að nefnd tók til starfa samkvæmt skipun með bréfi Friðriks Sophussonar, hæstv. þáv. iðnrh., en það bréf var gefið út 18. nóv. Í skipunarbréfinu fyrir nefndina segir m.a. á þessa leið, með leyfi forseta:
,,Í samræmi við stefnuyfirlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnarinnar [þ.e. ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar] hefur iðnrh. ákveðið í samvinnu við heilbrmrh. að skipa nefnd til að huga að endurvinnslu úrgangs á Íslandi og gera skýrslu um það með hverjum hætti nýtanlegum úrgangi verður safnað og hann endurunninn eða ráðstafað þannig að komist verði svo sem kostur er hjá umhverfisspjöllum. Skal nefndin kanna fjárhagshlið þessa máls, hvort nauðsyn er á sérstakri lagasetningu.``
Í samræmi við þetta var skipuð nefnd sem í áttu sæti Páll Líndal deildarstjóri, sem var skipaður formaður, Ragnar Birgisson forstjóri, Ásgeir Einarsson framkvæmdastjóri, Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi, Hermann Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður sjútvrh., Ingimar Sigurðsson yfirlögfræðingur --- ég veit ekki hvað það er, að vera yfirlögfræðingur --- Ólafur Pétursson forstöðumaður.
Á fundi þessarar nefndar 18. jan. 1988 samþykkti hún starfsáætlun og sendi ráðherra sem féllst á hana. Meðal þess sem nefndin lagði til var að ráðinn yrði sérstakur starfsmaður og einnig setti hún sér ákveðna starfsáætlun og samkvæmt því sem segir í greinargerð um starfsáætlun nefndarinnar var hún á þessa leið:
,,Í starfsáætlun var gerð grein fyrir því hvað teldist nýtanlegur úrgangur svo sem um er að ræða í erindisbréfi, en þar segir: ,,Hér munu einkum koma til úrgangsmálmar og þá ekki síst bílflök, margs konar ónotaðar vélar og einnota umbúðir úr málmi, úrgangspappír margs konar, þar á meðal einnota umbúðir, ýmiss konar úrgangsplast, ekki síst ýmislegar umbúðir og þá gúmmíhjólbarðar sem hægt er að nota, svo og alls konar gler, textílúrgangur, timburúrgangur sem stöðugt fellur til.``
Nefndin tók ákvörðun um að taka fyrst til
athugunar meðferð á brotamálmum og skilagjald af ökutækjum sem eru nátengd þessu viðfangsefni. Þessum fyrsta þætti í starfi nefndarinnar lauk með tillögum að frv. til laga um meðferð brotamálma og skilagjald af ökutækjum ásamt greinargerð sem efndurvinnslunefndin sendi frá sér 24. okt. 1988.``
Ég vil þess vegna, virðulegi forseti, fá að varpa fram þessari spurningu: Hvernig stendur á því að þetta frv. hefur ekki verið lagt fyrir hið háa Alþingi? Hvað hefur orðið til þess að það hefur verið lagt til hliðar eða hvar er það núna til meðferðar? Hér er um að ræða mjög takmarkað svið þess máls sem þessari nefnd var sett að fjalla um, þ.e. aðeins einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur sem í sjálfu sér er auðvitað mjög þýðingarmikið að fjalla um og vinna að, en það var ekki meginmál þess sem um var að ræða þegar verið var að tala um endurvinnsluiðnað á Íslandi og hvernig skyldi taka á málum í sambandi við þetta. Ég vil þess vegna biðja hæstv. iðnrh. að skýra það fyrir deildinni hvers vegna þetta frv. hafi verið lagt til hliðar og ekki verið haldið áfram í þeim anda sem væntanlega kemur fram í því frv.
Varðandi önnur atriði vildi ég segja þetta: Í frv. er skv. 4. gr. gert ráð fyrir að stofnað verði fyrirtæki, Endurvinnslan hf., sem yrði sameignarfyrirtæki gosdrykkjaframleiðenda, sænskra endurvinnsluaðila, ríkissjóðs og verslunareigenda. Í fskj. I segir varðandi hlutafé: ,,Gert er ráð fyrir að hlutafé sé um 2 millj. sænskra króna. Eigendur fyrirtækis geta verið: gosdrykkjaframleiðendur hér á landi, PLM Svíþjóð, ríki og verslunareigendur.`` Síðan er nánar greint frá skiptingu hlutafjár.
Mér er spurn, hvers vegna þeir aðilar sem bera ábyrgð á þessu frv. hafa eingöngu snúið sér að sænskum aðilum. Mér er kunnugt um það að víða annars staðar í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku eru fyrirtæki sem hafa náð mjög langt á þessu sviði og þess vegna hlýtur sú spurning að vakna hvers vegna eingöngu var rætt við sænska aðila og þeim ekki aðeins boðið upp á að verða hluthafar í þessu fyrirtæki heldur var þeim einnig falið að gera tillögur og frumdrög að
því hvernig ætti að standa að þessum málum. Er verið að leiða sænska aðila inn í íslenskan endurvinnsluiðnað? Sú spurning hlýtur að koma upp í huga manns. Hæstv. ráðherra sagði einmitt í sinni ræðu áðan: ,,Síðar má hugsa sér að fyrirtækið fari inn á víðtækari endurvinnslu.`` Það hlýtur auðvitað að leiða hugann að því að þarna sé verið að hefja undirbúning að því að byggja upp sterkt endurvinnslufyrirtæki á Íslandi og Svíar eigi að vera þeir erlendir aðilar sem eigi að sjá um þessa uppbyggingu og endurvinnslu alfarið. ( Viðskrh.: Ég mætti kannski vekja athygli ræðumanns á að ég geri ekki þá tillögu sem nefndin flutti að þessu leyti eins og kom fram í minni ræðu. Hins vegar vildi ég að þingmenn fengju að sjá tillögurnar. Ég get skýrt það betur seinna, en allur þessi kafli í ræðu hv. þm. er óþarfur.) Ég þakka ráðherranum fyrir að hafa tekið svona skýlaust af tvímæli um það ... ( Forseti: Það
kom fram í minni ræðu.) Já, ég tók ekki eftir því, hæstv. ráðherra, og ég þarf ekki að biðjast afsökunar á því, en ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli hafa tekið af skarið í þessum efnum því ég tel einmitt eðlilegt að leitað sé til fleiri aðila með tilliti sérstaklega til framtíðarinnar og þeirra stóru verkefna sem bíða á þessu sviði án þess að ég sé að gera lítið úr því sem kemur fram í þessu frv.
Samt finnst mér rétt að lokum, virðulegi forseti, að láta það koma fram að ekki virðist hafa verið algjört samkomulag í sambandi við framlagt frv. því að í fskj. II kemur fram af hálfu tveggja aðila í það minnsta innan nefndarinnar, skjalfest, að þeir höfðu hugsað sér þetta dálítið öðruvísi án þess að í því felist bein gagnrýni, en það er sérálit, og ég tel rétt, virðulegi forseti, að það komi fram hér í þessari umræðu hverjar þessar sérskoðanir viðkomandi aðila eru. Ég vil því með leyfi forseta lesa það sem segir í fskj. II með frv. Það er bréf til Hollustuverndar ríkisins, hr. lögfræðings Páls Líndals í iðnaðarráðuneytinu, dags. 9. febr. 1989, og efni bréfsins er á þessa leið:
,,Efni: Frv. til laga um notkun og endurvinnslu einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
Það er skoðun undirritaðs að ofangreint frv. eins og það var lagt fram á fundi endurvinnslunefndar þann 8. febr. sl. beri þess vitni að vera unnið í flýti og hafi ekki verið rætt við nefndina sem skyldi.
Ýmislegt er óljóst í frv. Sem dæmi má nefna að í 2. gr. er talað um gjald á drykkjarvörur og ekki verður annað séð en gjaldið eigi einnig að ná til umbúða mjólkur og mjólkurvara. Ljóst virðist hins vegar að umhverfismál eru í fyrirliggjandi frv. algjörlega fyrir borð borin.
Undirritaður vill á þessu stigi koma eftirfarandi brtt. á framfæri.
Síðasta mgr. 3. gr. orðist svo:
Þriggja manna nefnd, skipuð einum frá þeim aðilum sem fengið hafa leyfi til endurvinnslu skv. 4. gr., einum frá Náttúruverndarráði og einum frá Hollustuvernd ríkisins, gerir tillögur um ráðstöfun gjalds skv. 3. mgr. 2. gr.
Tillögur skulu annars vegar gerðar til iðnrh. vegna lána og/eða styrkja til aðila sem vinna að endurvinnslu, hins vegar til heilbrmrh. vegna rannsókna- og þróunarverkefna sem tengjast endurvinnslu, auglýsinga og fræðslu sem miða að bættri umgengni og vegna annarra umhverfismála.``
Undir bréfið skrifar Ólafur Pétursson.
Í fylgiskjali III með frv. segir svo í athugasemdum frá Ásgeiri Einarssyni, með leyfi forseta:
,,Varðandi 4. gr. frv. til laga um notkun og endurvinnslu einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
Í athugasemdum með frumvarpsdrögum þessum eru lagðar fram tillögur um ... ,,að stofnað verði fyrirtæki, Endurvinnslan hf., sem yrði sameignarfyrirtæki gosdrykkjaframleiðenda, sænskra endurvinnsluaðila, ríkissjóðs og verslunareigenda.``
Virðulegi forseti, ég vil gjarnan fá að hafa þögn í salnum þegar verið er að ræða þetta mál og æski þess
að formaður þingflokks Alþfl. leyfi mönnum að tala án þess að vera með sérstakan fund úti í sal. Ég vona að hv. þm. fallist á það.
Ég vil þá enn byrja aftur að lesa athugasemd frá Ásgeiri Einarssyni við þetta frv. sem hæstv. iðnrh. hefur lagt fram, en það er sem hér segir:
,,Varðandi 4. gr. frv. til laga um notkun og endurvinnslu einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
Í athugasemdum með frumvarpsdrögum þessum eru lagðar fram tillögur um ... ,,að stofnað verði fyrirtæki, Endurvinnslan hf., sem yrði sameignarfyrirtæki gosdrykkjaframleiðenda, sænskra endurvinnsluaðila, ríkissjóðs og verslunareigenda.``
Þar sem sýnt er að verkefni þessa fyrirtækis mun verða mun víðtækara er fram líða stundir en eingöngu endurvinnsla einnota umbúða fyrir drykkjarvörur snertir málið fleiri aðila en nefndir eru hér að ofan og ráð er fyrir gert að aðild eigi að málinu.
Mjög óeðlilegt hlýtur að teljast að gera ráð fyrir þátttöku sænskra endurvinnsluaðila en ekki íslenskra endurvinnslufyrirtækja.``
Hæstv. ráðherra leiðrétti það áðan að hugsunin hefði verið að Svíar væru hér
sérstakir aðilar að þessu máli, en hins vegar er þessi aðvörun fullkomlega gild hjá Ásgeiri Einarssyni varðandi þetta atriði.
Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að ræða þetta frekar. Það hlýtur að verða gert síðar við meðferð málsins í deildinni, en ég vil undirstrika það að af hálfu þessara tveggja nefndarmanna er talið að þurft hefði að vinna betur að þessu máli og hefði átt að ná víðar og vera víðtækara en bara um einnota umbúðir.