Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins koma hér í sambandi við ræðu hv. flm. með þessu frv. Mig langar til að gera smáathugasemd eða benda á eitt atriði. Hins vegar vil ég taka fram að mér finnst þessi hugmynd um framkvæmdasjóð á sviði menningarmála vera athyglisvert mál og ef hægt væri að ná því formi upp væri e.t.v. hægt að segja að málið væri komið í nýjan og betri farveg en hefur þekkst til þessa í sambandi við hinar ýmsu opinberu byggingar og ekki síst á sviði menningarmála sem við höfum vissulega sorgarsögu að segja af í mörgum tilfellum.
En það sem mig langaði til að vekja athygli á var að hv. flm. talaði sérstaklega um þjóðarbókhlöðuna og þann tekjustofn sem henni var ætlaður í lögum, þ.e. í sambandi við eignarskattsauka. Ég rifja það upp að við 1. umr. fjárlaga á sl. hausti vakti ég athygli á skorti á upplýsingum um ýmis stór verkefni og lagði fram þá athugasemd að ég teldi að það væri nauðsynlegt að vita hvernig staðan væri í þessum stóru verkefnum sem var nokkurs konar þjóðarsátt um að framkvæma, en upplýsingar skorti um raunverulega stöðu málsins. Ég vakti sérstaklega athygli á tveimur slíkum opinberum framkvæmdum, þ.e. þjóðarbókhlöðunni og eins byggingunni við Ármúla sem var keypt á sínum tíma ekki síst til að mæta eyðnivágestinum. Það var keypt hús fyrir ákveðið fjármagn, en það hefur ekki legið á lausu hver kostnaðurinn er orðinn við þessa byggingu umfram það sem var sagt í upphafi þegar hún var keypt.
En svo er einnig með þjóðarbókhlöðuna. Það kom í ljós á sl. hausti að það hafði aldrei verið endurskoðuð frumáætlunin um byggingu þjóðarbókhlöðunnar miðað við hvað hún kæmi til með að kosta fullbúin. Í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir á sl. ári var lögð áhersla á að fá þetta upplýst og var viðurkennt af hönnuðum hússins að það hefði aldrei verið lagt í það að umhanna eða leggja fram ákveðnar kostnaðarupplýsingar um þörfina á byggingarfé miðað við þær breytingar og þann langa byggingartíma og þær breyttu kröfur sem fram voru komnar. Það var farið í þetta verk. Því miður var það ekki tilbúið þegar fjárlög voru afgreidd, en það liggur ljóst fyrir að þrátt fyrir þann tekjuauka sem Alþingi ætlaði þessari framkvæmd miðað við að honum væri skilað að fullu til verksins mun vanta um 400--500 millj. upp á til að ljúka þessu verki miðað við þær endurskoðuðu áætlanir sem nú liggja fyrir. Þar af leiðandi er alveg ljóst að þegar lögin um tekjustofnsaukann falla úr gildi vantar fjármagn til að ljúka þessu mikla mannvirki sem er einhvers staðar um 400--500 millj. miðað við þær upplýsingar sem hönnuðir hússins hafa nú lagt fram og liggja fyrir í sérstakri úttekt á þessu verki og þingmenn hafa væntanlega flestir fengið í hendur.
Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu. Ekki það að ég sé á móti því að við gerum allt sem hægt er til að ljúka þessu mannvirki sem beðið hefur verið eftir lengi og hefur það hlutverk sem þarf ekki að tíunda og allir viðurkenna að verður að komast í gagnið. Ég
vek athygli á því í umræðunni um nýjar fjáröflunarleiðir til að koma upp mannvirkjum á sviði menningarmála ekki síst að það verður að snúa þessu dæmi við þannig að menn geri sér grein fyrir því og það sé lögð sú skylda á herðar þeirra sem standa fyrir hönnun og framkvæmd á þessu sviði að raunhæfar áætlanir um verkið liggi fyrir svo að hægt sé að takast á við fjáröflunina á eðlilegum grundvelli.
Ég verð að viðurkenna að ég varð dálítið undrandi þegar ég varð var við það í fyrra hvað allt var óljóst í sambandi við þjóðarbókhlöðuna og hvað það vantaði mikið upp á raunhæfar upplýsingar um stöðu málsins. En sem betur fer var í framhaldi af því og vegna kröfu okkar fulltrúa í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir var ráðist í það á fundum með arkitektum og öðrum slíkum að afla raunhæfra upplýsinga um hvað þyrfti til. Þess vegna er alveg ljóst að það þarf að finna nýja möguleika til að fjármagna verkið við þjóðarbókhlöðuna eitt sér til þess að því verki verði lokið sem öll þjóðin er sammála um. Ég tel að við þurfum einmitt að skoða það mál sérstaklega.
Mér fannst nauðsynlegt að gera þessa athugasemd vegna þess sem fram kom í máli frummælanda. Nú er ég ekki að vefengja það, sem hann sagði, að auðvitað hafa stjórnvöld ekki farið rétt með þessi mál að því er varðar tekjustofninn sem ætlaður var. En hitt atriðið var enn þá stærra, sem ekki var gengið frá, að upplýsa hvað þyrfti mikið fjármagn til þessa verks. Um leið og ég segi að mér finnst þessi tillaga vera athyglisverð og get hugsað mér að þetta sé rétt aðferð til að tryggja þessi mál er hitt í mínum huga jafnvel enn þá mikilvægara, að það sé gerð sú krafa í upphafi að upplýsingar liggi fyrir um raunverulegan kostnað við slík mannvirki og jafnóðum ef um breytingar eða annað verður að ræða, það liggi þá alltaf ljóst fyrir þannig að menn séu ekki að villast í þoku um hvað hlutirnir kosta.