Guðmundur G. Þórarinsson:
Hæstv. forseti. Ég stend upp til að lýsa stuðningi við þá hugmynd að stofnaður verði sérstakur framkvæmdasjóður á sviði menningarmála. Þessi hugmynd hefur oft komið fram áður og reyndar verið rædd í ýmsum myndum og það má segja að hinn sérstaki eignarskattur sem lagður var á til að ljúka byggingu þjóðarbókhlöðunnar sé á vissan hátt vísir að slíkum sjóði.
Þessi hugmynd kemur ekki fram að tilefnislausu, öllu heldur vegna þeirrar erfiðu og bitru reynslu sem menn hafa búið við á undanförnum árum við að viðhalda menningarbyggingum og að koma nýbyggingum upp. Sjálfur þekki ég þetta mál nokkuð vel af því að hafa setið nærfellt 15 ár í byggingarnefnd Listasafns Íslands og glímt við að koma þeirri byggingu áfram og geri mér reyndar ljóst að þeirri byggingu eða þeim áfanga þeirrar byggingar sem þegar hefur verið lokið nú væri engan veginn lokið og yrði ekki lokið einu sinni á næstu árum ef ekki hefðu komið til stórfelldar gjafir einstaklinga. Það er þess vegna alveg ljóst að sú bygging, sem staðið hefur yfir líklega í ein 17 ár frá því að undirbúningur hófst, ætti enn eftir að mínu viti 5--10 ára byggingartíma ef ekki hefðu komið til þær gríðarlegu gjafir sem raun ber vitni. En jafnframt því sjá menn líka hvernig þessar menningarbyggingar okkar hafa grotnað niður. Hér hafa ræðumenn hver á fætur öðrum minnst á Þjóðminjasafn og Þjóðleikhús og fleira mætti reyndar til telja.
Ég held að þörfin sé alveg ótvíræð. Ég held því miður að reynslan sýni okkur að við munum ekki í þeirri glímu sem háð er við gerð fjárlaga hverju sinni koma þessu máli eða þessum málaflokki í viðunandi horf. Ég segi það sem mína skoðun byggða á minni reynslu og sem mína sannfæringu. Ég held að þar þurfi eitthvað annað og meira að koma til. Hvort það skal nákvæmlega vera sú tekjuöflun sem hér er um að ræða skal ég ekki segja.
Eins og fram hefur komið í ræðum þeirra sem talað hafa hefur gengið illa að ná þessum sérstaka eignarskatti til þjóðarbókhlöðunnar. Ég skal ekki leggja dóm á, þó að hér sé þess freistað í þessu frumvarpi að tryggja það öllu frekar, hvort það tekst. Það er auðvitað forsenda þess ef menn ætla að setja lög sem þessi að það takist að tryggja að fjármagnið renni þá til sjóðsins og til þeirra framkvæmda sem um er að ræða. Hitt er annað mál að þegar menn á sínum tíma féllust á hinn sérstaka eignarskatt til að koma þessari þjóðargjöf áfram, sem þjóðarbókhlaðan átti að vera, var hann auðvitað hugsaður tímabundið. Með þessu erum við að festa þennan sérstaka eingnarskatt í sessi um ókomin ár. Á slíkum tímamótum hlýtur að vakna sú spurning hvort það sé það rétta tekjuform eða hvort einhver óbeinn skattur kæmi til greina, sambland af skattaleiðum. Á það skal ég ekki leggja dóm á þessu stigi mála. Hins vegar hygg ég að málið sé svo brýnt að menn megi ekki koðna niður í vöflum og lögum má breyta síðar ef menn finna betri tekjuöflunarleið.
Ég vil taka undir með síðasta ræðumanni, hv. þm. Þórhildi Þorleifsdóttur, að menningarstofnun er hugtak sem ekki hefur verið skilgreint nægilega vel. Það vaknar sú spurning hvað átt er við. Með reglugerð mætti skýra e.t.v. betur hvað um er að ræða. En ég hegg sérstaklega eftir þeirri forgangsröð sem talin er upp í 2. gr. frv. Það hlýtur að vera eðlilegt ef lög eru sett á þennan hátt með þessari tekjuöflun að þjóðarbókhlaðan gangi þar fyrir. Hún nýtur þessa tekjustofns eins og er og ég er sammála flm. í því að ef þetta er stofnað ætti hún að njóta hans áfram þannig að sú framkvæmd hafi forgang.
Ég verð hins vegar að segja að mér finnst síðari upptalningin orka meira tvímælis. Sjálfsagt er mjög brýnt að endurbygging Þjóðleikhússins fari fram og endurbygging Þjóðminjasafnsins. Þar liggja hús undir skemmdum og í Þjóðminjasafninu jafnvel merkir safngripir. En ég hygg að flestir mundu túlka þessi lög þannig að þarna væri allt að því um forgangsröð að ræða og a.m.k. skyldu þessar framkvæmdir ganga fyrir áður en að öðrum kemur. Í því sambandi koma margar aðrar framkvæmdir í hugann, t.a.m. Náttúrufræðasafn sem lengi hefur verið rætt hér, oft verið fluttar um tillögur í þinginu og er ákaflega ofarlega í huga margra Íslendinga. Ég hygg að margir hefðu tilhneigingu til að skilja þessi lög þannig að slíkt safn ætti að koma á eftir þeim framkvæmdum sem hér eru taldar upp og þyrfti að taka af öll tvímæli í því efni um að um forgangsröð sé ekki að ræða.
Ég vil líka benda á að þó að mörgum finnist að vel hafi tekist til með Listasafn Íslands er því á engan hátt lokið. Það býr að mörgu leyti enn við afar erfiða stöðu. Safnið á lóð á Laufásveginum og skrifstofur safnsins verða að rísa þar. Fyrr er safnið ekki komið í sæmilega stöðu.
Annað er það að ef slíkur menningarsjóður eða framkvæmdasjóður menningarmála er stofnaður þurfa menn líka að gera sér grein fyrir því að þær litlu fjárveitingar sem þó hafa verið til þessara bygginga mega ekki falla niður. Þessi sjóðsstofnun mætti ekki verða til þess að slíkt félli niður á fjárlögum og menn segðu: Nú höfum við þennan sjóð. Hann skal sjá um þessar byggingar. Þá hygg ég að biðin verði glettilega löng hjá þeim sem um aðrar byggingar fjalla. Framan af fengi þessi sjóður, að því er mér virðist, fullar hendur við að ljúka þjóðarbókhlöðunni og þá mætti ekki draga úr fjárveitingum til annarra
bygginga.
Að öllu þessu samanlögðu, sem ég hygg að verði skoðað sérstaklega í þeirri nefnd sem þetta frv. fær til umfjöllunar, lýsi ég enn á ný yfir að ég styð þessa hugmynd, ég tel hana tímabæra og ég tel hana nauðsynlega. En vel má vera að einstök atriði í frumvarpinu þyrftu endurskoðunar við, ekki bara röðin og forgangsröðin sem þarna er nefnd og skilgreiningar eða skilgreiningaratriði, heldur einnig tekjuöflunin sem líklega orkar tvímælis að festa um aldur og ævi í þessu formi.