Stjórn umhverfismála
Þriðjudaginn 07. mars 1989

     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegur forseti. Við erum að ræða frv. til laga um samræmda stjórn umhverfismála og er kannski ástæða til að fagna umræðum um umhverfismál á þinginu þó að vissulega sé rétt að við höfum aðeins rætt um þessi mál á þessu þingi en að sjálfsögðu allt of lítið miðað við það sem þyrfti að gera.
    Eins og fram kom í máli hv. 1. flm. falla umhverfismál á Íslandi að einhverju leyti undir flestöll ráðuneytin og afleiðingin af því er óstjórn og skörun. Eins og hann taldi upp áðan eru það a.m.k. átta ráðuneyti ef ekki fleiri sem að einhverju leyti fjalla um þessi mál. Þetta er algjörlega óviðunandi.
    Í athugasemdum í frv. kemur fram að það er byggt fyrst og fremst á tillögum nefndar sem skipuð var til að gera drög að frv. í september 1987, en í athugasemdum sem komu frá þeirri nefnd og eru birt sem fylgiskjal kemur fram m.a. á bls. 7 og 8, þar sem talað er um tilraun til lagasetningar hérlendis, að margar og ítarlegar tilraunir hafi verið gerðar til þess að reyna að koma á heildarlöggjöf yfir stjórn umhverfismála en án árangurs.
    Það sem er helst tekið til sem ástæða hér, og kemur fram á bls. 8, er að það hafi fyrst og fremst ekki verið raunverulegur vilji á Alþingi fyrir því að stofnað verði sérstakt umhverfisráðuneyti. Ekki skal ég um það segja hvort þetta sé rétt, ég efast um það, en síðan segir, og mig langar til að lesa það, með leyfi forseta: ,,Mikillar tregðu hefur gætt hjá viðkomandi ráðuneytum og stofnunum varðandi sérstakt umhverfisráðuneyti``, þ.e. að þessi víðfeðmi málaflokkur sem snertir fjölmörg ráðuneyti yrði fluttur undir eina stjórn í einu ráðuneyti.
    Þetta kemur fram í grg. Það er oftast þannig að enginn vill missa sinn málaflokk undan sínu ráðuneyti. Það er þessi tregða að þegar búið er að mynda stjórn er eins og allt sé blýfast og ekki megi gera nokkurn skapaðan hlut. Ég held því að það sé nú ekki endilega vegna þess að Alþingi hafi verið á móti því að stofnað væri umhverfisráðuneyti heldur hafi þetta fyrst og fremst verið tregða ráðherra eftir að þeir eru orðnir ráðherrar og embættismanna innan kerfisins. Ég held að ástæðan sé fyrst og fremst sú.
    Í þessu frv. er gert ráð fyrir því í 4. gr. að í staðinn fyrir að þetta falli undir átta ráðuneyti, sem hér kemur fram og er sjálfsagt ekki of há tala, ég hugsa að það mætti jafnvel telja öll ráðuneytin, muni þessi mál heyra undir þrjú ráðuneyti, auk þess sem á að setja á stofn umhverfismálaskrifstofu, umhverfismálaráð og stjórnarnefnd og ýmislegt fleira. Ég er ekki alveg viss um að þetta verði mikið einfaldara. Mér finnst þetta vera ákaflega flókið og held að það sé í raun ekki hægt að hugsa sér aðra skipan mála í þessu en eins og Kvennalistinn hefur gert ráð fyrir og margir hafa reyndar tekið undir og hv. 1. flm. minntist á áðan, en það er tillaga sem Kvennalistinn hefur lagt fram sem þingmál hér og er á þskj. 159. Þar er gert ráð fyrir að stofnað verði sérstakt umhverfismálaráðuneyti sem fari með þennan málaflokk. Ég held að það sé það eina raunhæfa sem

hægt er að gera í þessum málum og eina raunhæfa lausnin. Það er einmitt sama lausn sem hefur verið beitt á hinum Norðurlöndunum og mörgum öðrum nágrannalöndum okkar að það séu sérstök umhverfisráðuneyti. Ég vil ekki hafa um þau ráðuneyti svo neikvætt orð eins og hv. 1. flm. Matthías Á. Mathiesen sagði áðan, að þetta væru stofnanir sem hefðu þanist út. Þær hafa ekki þanist út af öðru en þörf. Það er mjög mikil þörf á að taka þessi mál föstum tökum og er ekki nærri nógu mikið að gert. Ég held að reynsla þeirra sem hafa haft sérstök ráðuneyti sé ótvírætt sú að þau hafi leitt til góðs svo langt sem það nær og það þurfi frekar að efla þau en hitt. Þó svo að það hafi verið notað á neikvæðan hátt að þenjast út held ég að ég vilji nota það á jákvæðan hátt og segja: þau þenjast út vegna þess að það er mjög nauðsynlegt.
    Ég vil einnig nefna það að þegar nefnd Alþingis um stefnu Íslands gagnvart Evrópubandalaginu var á ferð í Brussel fyrir nokkrum vikum töluðum við við fulltrúa framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins um umhverfismál. Hann sagði m.a. við okkur að þeir hefðu komist að því að eina leiðin til að eitthvað raunhæft væri gert í þessum málum og til þess að þau yrðu tekin raunhæfum tökum væri að með þau færi sérstakt umhverfisráðuneyti í löndunum. Hann sagði jafnframt, sem margoft hefur verið bent á af mörgum og ég tek fyllilega undir, að þegar umhverfisráðuneyti er með öðrum ráðuneytum eða þeim blandað saman eins og hér er gert ráð fyrir, þ.e. samgöngu- og umhverfisráðuneyti, sé miklu meiri hætta á að hagsmunir skarist. Sami aðilinn með tvö höfuð sem ekki geta talað saman. Umhverfismálin verða að vera algjörlega óháð og hafa forgang. Í raun lýst mér ekki á að samgöngumál séu með umhverfismálum vegna þess að það er mjög algengt að einmitt í þeim málum skarist hagsmunir. Ég get ekki stutt það atriði.
    En það er þó mjög margt jákvætt sem kemur fram í frv. og ég má til að minnast á það. Í lok kaflans um tilraunir til lagasetningar hérlendis stendur að það sé álit nefndarinnar að með hliðsjón af því hve umhverfismál eru víðtækur málaflokkur sé á þessu stigi ekki hægt að ganga lengra í átt til
samræmingar og tilfærslu málaflokka á milli ráðuneyta miðað við núverandi skipan mála um Stjórnarráð Íslands. Ég er að vísu ekki sammála þessu, en ég vil þá líta á að flm. taki undir það sem stendur hér: ,,Nefndin lítur svo á með frv. því, sem hér er lagt fram, sé stigið fyrsta skrefið í þá átt að flytja málaflokkinn í heild sinni í eitt ráðuneyti``, og ég vil skilja þessa setningu líka þannig að flm. telji að það sé ekki einungis stefnt að því að flytja umhverfismál í eitt ráðuneyti heldur sérstakt ráðuneyti. Ég vona að það þýði ekki að þeir telji ekki þessum málum betur fyrir komið í sérstöku umhverfisráðuneyti, þó að þeir leggi þetta fram til umræðu og skoðunar. Ég vonast til þess að þessir hv. þm. muni styðja tillögu Kvennalistans um sérstakt umhverfisráðuneyti og það yrði samið frv. um það vegna þess að það er greinilegt að þeir hafa áhuga á þessum málum.

    Mig langar að minnast á nokkur atriði sem mér finnast mjög jákvæð. Það er 11. gr. um einnota umbúðir, en það er verið að mæla fyrir frv. um einnota umbúðir í Ed., sjálfsagt á sama tíma og við erum að ræða þetta núna. Ég vona að það náist samstaða um að koma einhverjum skikk á þau mál og við getum afgreitt það frv. sem fyrst.
    Síðan eru mörg ákvæði í IX. kafla, ákvæði til bráðabirgða, sem ég get fyllilega tekið undir og eru mál sem þarf að taka alvarlega á. Við getum tekið sem dæmi 6. lið þar sem talað er um að fyrir 1. júní 1990 skuli ríkisstjórnin í samvinnu við sveitarfélög gera tíu ára áætlun um frágang skólp- og frárennslislagna í þeim tilgangi að draga eins og mögulegt er úr mengun láðs og lagar af þeim sökum. Ég er svo sannarleg samþykk þessu nema þarna væri spurning hvort það hefði ekki verið ágætt að við hefðum sérstakt umhverfisráðuneyti sem gæti tekið á þessu máli og unnið þetta í samráði við sveitarfélögin. Þannig eru fleiri atriði sem eru svo sannarlega jákvæð og væri mjög ánægjulegt ef þau gætu komist áfram.
    En eins og ég sagði í upphafi og segi aftur: Ef við viljum skipan umhverfismála sem besta og gera það á skynsamlegastan hátt tel ég að við eigum að sameinast um að hér verði sett á stofn sérstakt umhverfisráðuneyti.