Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Enn stöndum vér hér á Alþingi Íslendinga 7. mars 1989 og ræðum frv. til l. um samræmda stjórn umhverfismála, spurninguna um það hvernig umhverfismálum verði komið fyrir hér á landi eftir að ríkt hefur stöðnun í meðferð þessara mála um mjög langt árabil, raunar marga áratugi.
Það er sannarlega raunalegt að það skuli vera þörf á því að ræða þessi mál á þeim grundvelli sem liggur fyrir í nefndu frv. og ég hefði vissulega vænst þess að hv. ríkisstjórn eða eigum við að segja hæstv. hefði tekið ómakið af hv. þm. Sjálfstfl. að leggja fram þetta frv. í þinginu með því að hafa náð saman og tekið ákvarðanir um meðferð umhverfismála í stjórnkerfinu á þann eina hátt sem er í takt við tímann, þ.e. að stofna hér loksins sjálfstætt óháð umhverfisráðuneyti, ráðuneyti óháð afskiptum annarra ráðuneyta og sjálfstætt innan stjórnarráðsins.
Ég leyfi mér, virðulegur forseti, að minna á að ég stóð í þeim sporum vorið 1972 á fyrsta náttúruverndarþingi að mæla fyrir tillögu þar sem náttúruverndarsamtök Austurlands höfðu efnt í, en ég var fulltrúi þeirra samtaka, um stofnun umhverfisráðuneytis. Síðan eru liðin nær 17 ár og enn erum við í þeim sporum að meðferð þessara mála er nánast óbreytt í stjórnarráðinu, í stjórnkerfinu, þrátt fyrir atrennur af hálfu margra ríkisstjórna, loforð og fyrirheit í stjórnarsáttmálum um það að reynt verði að færa þessi mál eitthvað í takt við tímann.
Ég hef í mörg skipti, sem ég hef ekki tölu á, staðið í þessum stól og mælt fyrir breytingum á þessu máli í sömu veru og ég gerði á náttúruverndarþingi 1972 og ég hef flutt þingmál eftir þingmál og fyrirspurn eftir fyrirspurn til að reyna að þoka þessum málum til betri vegar. En árangurinn hefur ekki orðið meiri en raun ber vitni og enn eru menn hér á þinginu að tefla fram tillögum í þessum málum nokkuð í andstæðar áttir þó að hugurinn sem að baki tillöguflutningnum býr sé ugglaust ágætur, það sé góður hugur til þessa málaflokks og skilningur á því að það verða að nást fram breytingar fyrr en seinna. En því miður eru skoðanirnar skiptar hér í þinginu og hafa ekki síður verið skiptar innan þeirra ríkisstjórna sem hafa þó ætlað sér á undanförnum 10--11 árum a.m.k. að taka á þessum málum og breyta þeim mjög róttækt, líklega væri nær að segja undanförnum 15 árum eða frá 1974 að telja.
Ég get í rauninni tekið undir með hv. 12. þm. Reykv. Kristínu Einarsdóttur þegar hún vísaði til þess sem er kannski einn meginþröskuldurinn í vegi þess að við höfumn náð árangri og mun koma fram einhvers staðar í grg. með þessu frv. að ég hygg. Það er tregða innan stjórnkerfisins sjálfs, hjá ráðherrum í ríkisstjórn eftir ríkisstjórn og ekki síður og kannski alveg sérstaklega innan embættismannakerfisins þar sem nokkrir embættismenn hafa tekið sér það fyrir hendur að heilaþvo ráðherra eins skjótt og kostur væri á eftir að þeir eru sestir á stóla og ætlað að taka eitthvað á þessum málum. Ég gæti sagt ýmsar sögur um þau efni og leitt fram ýmis skjöl til staðfestingar
á því að hér er ekki um neinar aðdróttanir að ræða gripnar úr lausu lofti heldur liggur þetta fyrir í plöggum sem embættismenn hafa matreitt ofan í ráðherra til að koma í veg fyrir að einstakir þættir umhverfismála væru frá þeim teknir eða viðkomandi ráðuneyti og færðir inn í eitthvert skynsamlegt samhengi. Það er hins vegar engin ástæða til þess að skamma embættismenn hér á Alþingi. Það eru stjórnmálamennirnir sem bera ábyrgðina og bera sökina, leyfi ég mér að segja, á því að við búum við það fornaldarkerfi sem nú ríkir sem einstætt er í Evrópu og þótt víðar væri leitað um heimsbyggðina.
Hv. 1. flm. þessa máls, áður hæstv. ráðherra, á auðvitað sinn þátt í þessu eins og margir sem í ríkisstjórnum hafa setið og ekki ætla ég að undantaka sjálfan mig sem hef átt sæti í ríkisstjórn. Sjálfsagt hefði maður átt að gera betur og getað gert betur þótt ég hafi leitast við, og geti skjalfært það, að þoka þessum málum fram þegar ég átti þar sæti. Síðan hef ég flutt, eins og ég gat um, þimgmál um það að umhverfismálin færu færð undir sjálfstætt umhverfisráðuneyti fyrir nokkrum árum og hér hafa komið fram tillögur, m.a. frá Kvennalista, ágætt þingmál í tillöguformi, um stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis. Það ber sannarlega að fagna því þegar tillögur koma í þá átt og það bætist liðsauki við að reyna að ná þessum mikilsverðu málum í skikkanlega höfn.
Ég hlýt að nefna hér, og það er ekki til þess að draga úr því sem ég sagði áðan að hugur sé góður að baki flutningi þessa máls hjá hv. 1. flm. og meðflutningsmönnum hans, en það vekur auðvitað athygli að Sjálfstfl. hefur þann hátt á og hefur haft það um skeið að þegar hann hefur setið í ríkisstjórnum hefur hann verið dragbítur á þá stefnu að stofnað væri sjálfstætt umhverfisráðuneyti. Hann hefur lagst gegn því og fært fram ýmislegt, brugðið þar fæti fyrir með ýmsum hætti að það mál næði fram að ganga, sú endurskipulagning stjórnarráðsins. En síðan hefur Sjálfstfl., þegar hann hefur lent í stjórnarandstöðu, verið nokkuð fljótur að koma með einhverja uppskeru úr nefndum þeirra ríkisstjórna sem hann áður sat í og jafnvel veitti forstöðu til þess að þvo af sér blettina --- svo ekki sé nú sterkara til orða
tekið --- varðandi atburðaleysið, tregðuna og fyrirstöðuna þegar þessi flokkur var í stjórnarráðinu og veitti jafnvel ríkisstjórnum forustu, eins og síðasti hv. flm. þessa máls gerði fyrir skemmstu, hv. þm. Þorsteinn Pálsson, sem er í hópi flutningsmanna og bar fram þann stjórnarsáttmála sem kvað á um að eitthvað skyldi nú að gert í þessum málum.
En það er ekki þar með sagt að Sjálfstfl. sé einn um þetta. Það er ég ekki að segja með þessum orðum. En ég get nefnt það, og hlýt að gera það, að í tíð ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar, hinni fyrri sem hæstv. núv. forsrh. veitti forstöðu, ætluðu menn að taka á og það var hæstv. félmrh. þáv., Alexander Stefánsson, sem hafði málið með höndum og ætlað var að vera frumkvæðisaðili þessara mála. Þá rembdist Sjálfstfl. við og þæfðist við lon og don og ár eftir ár
og gerði hæstv. félmrh. ríkisstjórnarinnar þáverandi að hálfgerðu athlægi hér á Alþingi því hann var alltaf að lýsa því yfir að nú væri málið að koma, nú væri þetta alveg að fæðast og hann svaraði fsp. og sagði: Þetta kemur bara um mánaðamótin. Þá kemur frumvarp inn í þingið. En Sjálfstfl. tryggði að ekki gekk rófan. Hins vegar flutti þá hv. þáv. þm. Reykn. Gunnar G. Schram inn í þingið plagg sem hann hafði átt þátt í að semja sem aðili í nefnd ríkisstjórnarinnar sem sat þar á undan, eitt af þessum flækjumálum sem búin voru til til að koma í veg fyrir eðlilega skipan og úrlausn þessara mála, og þar lá hann ekkert á liði sínu. Síðan flutti hann, fram hjá og án að því er mér skildist vitundar þáv. ráðherra, a.m.k. sem átti að fara með málið, þáv. hæstv. félmrh., frumvarp inn í þingið sem var uppskeran úr nefndarstarfi úr tíð fyrri ríkisstjórnar þar sem hann hafði tekið þátt í og verið tilkvaddur. Það ólgaði og sauð og logaði allt á stjórnarheimilinu yfir þessum vinnubrögðum Sjálfstfl. Og núna endurtekur sagan sig með þeim hætti sem hér liggur fyrir.
Auðvitað er sitthvað gott í þessum pakka, góðar hugsanir, góðar tillögur innan um þó meginstefnan sé röng, ófullnægjandi og langt á eftir tímanum. En hér er Sjálfstfl. að skreyta sig með uppskeru úr nefndarstarfi úr tíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar, skreyta sig með uppskeru úr nefndarstarfi sem þrír ágætir valinkunnir menn unnu sem hafa haft afskipti af þessum málum í tíð fleiri en einnar ríkisstjórnar sumir hverjir, eins og Hermann Sveinbjörnsson, núv. aðstoðarmaður sjútvrh., og flytja þetta frv. inn í þingið sem sitt mál. Því var skilað inn til ríkisstjórnarinnar fyrir sl. vor og þar var gerð einhver samþykkt í þá veru sem a.m.k. hv. 1. flm. þessa máls nú taldi vera ríkisstjórnarsamþykkt og hann var orðinn umhverfisráðherra. Hann var bara orðinn umhverfisráðherra. Gott ef hann komst ekki á fund á Norðurlöndum sem slíkur út á það að það hafði verið lagt inn frv. í ríkisstjórninna sem ekkert var svo gert með í tíð þeirrar stjórnar. Svo kemur hv. þm. með þetta frumvarp hér, uppskeru nefndar sem skipuð var fulltrúum þáv. stjórnarflokka og Sjálfstfl. leggur nú inn í þingið, nákvæm endurtekning á því sem gert var í ríkisstjórninni ári á undan. Ja, þetta eru nú vinnubrögð. Það er ekki hjá því komist, virðulegur forseti, að vekja athygli á þessari sérkennilegu málafylgju Sjálfstfl. á Alþingi í sambandi við umhverfismálin. Og ég fullyrði að ef það væri ekki þessi flokkur, sem því miður hefur haldið því að vera stærsti flokkurinn á Alþingi býsna lengi og allt of lengi, ef hann hefði ekki verið sá dragbítur í þessum málum sem raun ber vitni. Og það kom fram í máli hv. 1. flm. hvernig þetta kerfi er hugsað.
Til þess, virðulegur forseti, að reyna að þjappa saman áliti mínu á þessu, því ég hafði ekki tök á því fyrir þessa umræðu að semja sérstaklega álitsgerð um málið, en ég skrifaði um þessa uppskeru í dagblað í Reykjavík, DV, 24. maí 1988 og dró þar saman álit mitt á þeirri tillögu sem ríkisstjórnin hafði þá fengið og kemur hér að mestu leyti óbreytt fram. Ég leyfi
mér að vitna til þess:
,,Hér er ekkert lagt til að stofnað verði umhverfisráðuneyti sem einhvers verði megnugt og rísi undir nafni. Þess í stað er málum skákað milli ráðuneyta og búið til stjórnunarapparat sem lítil von er til að skili árangri. Í ,,frumvarpi`` nefndarinnar er tekið fram að umhverfismál samkvæmt lögunum skuli heyra undir þrjú ráðuneyti, félmrn., heilbr.- og trmrn. og samgrn. Það síðasttalda á að taka við þeim þáttum umhverfismála sem nú heyra undir menntmrn. og heita síðan samgöngu- og umhverfisráðuneyti. Í stað þess að stofna heilstætt umhverfisráðuneyti sem m.a. tæki við náttúruvernd, mengunarvörnum og skipulagsmálum, er búin til svokölluð ,,stjórnarnefnd umhverfismála``. Þrír ráðherrar eiga hver um sig að tilnefna í hana fulltrúa,,, --- og mun nú hafa verið aukið við í þessu frumvarpi einum þremur í viðbót --- ,,þ.e. félmrh., heilbrmrh. og samgrh. Auk þess er gert ráð fyrir að Samband ísl. sveitarfélaga tilnefni einn og náttúruverndarþing einn fulltrúa í nefndina. Þessi stjórnarnefnd skal skipuð til fjögurra ára í senn og hún á að glíma við að stilla ráðherrana og ráðuneytin þrjú saman í aðgerðum á sviði umhverfismála. Meðal margra hlutverka stjórnarnefndarinnar á að vera að ákveða aðgerðir í skörunartilvikum og vinna að samnýtingu starfskrafta og úrskurði í ágreiningsmálum um aðgerðir. Náist ekki samkomulag á þessu friðsemdarheimili
virðist sem samgrh. eigi að höggva á hnútinn.``
Menn sjái fyrir sér Matthías Á. Mathiesen kveða upp úrskurð í málaflokkum sem heyra undir þau Jóhönnu Sigurðardóttur og Guðmund Bjarnason. Og það vill svo til, virðulegur forseti, að það þarf engu að breyta að því er skipun þessara ráðuneyta snertir þó að skipt hafi verið um ríkisstjórn, þ.e. núv. hæstv. félmrh. og heilbrmrh. eru í sömu sætum og í síðustu ríkisstjórn og mundu taka við því hlutverki sem hér er lagt til.
,,Samkvæmt frumvarpinu á að leggja Náttúruverndarráð niður og flytja stöðuheimildir þess yfir í umhverfismálaskrifstofu samgöngu- og umhverfismálaráðuneytisins eins og það er kallað. Samkvæmt gildandi lögum kýs fjölmennt náttúruverndarþing sem haldið er þriðja hvert ár sex menn í Náttúruverndarráð. Ráðið ræður síðan framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Þetta félagslega tæki á nú að leggja niður og embættismenn taka við. En ekki nóg með það. Samgöngu- og umhverfisráðherrann á að skipa sjö manna umhverfismálaráð sérfræðinga til fjögurra ára og skal það vera til ráðgjafar og umsagnar fyrir ríkisstjórn og stjórnarnefnd umhverfismála.`` --- Og hér nefni ég nú, virðulegur forseti, að það eru nokkrar silkihúfurnar sem er að finna í þessum umbúðum, innan þessara umbúða.
,,Samkvæmt frumvarpinu virðist ráðherrann velja viðkomandi sérfræðinga milliliðalaust nema formann ráðsins sem [eins og sagt er í frumvarpinu] skal skipaður að fengnum tillögum Háskóla Íslands og skal hann hafa alhliða þekkingu á umhverfismálum. Það er best að menn fari strax að skyggnast um innan
háskólans eftir hinum alvitra formanni og hver veit nema búið sé að hengja á hann bjölluna.`` Þetta er nú skrifað í fyrravor.
,,Þrátt fyrir 23 fundi nefndar forsrh., sem undirbjó þetta frumvarp, og að nefndin hefði á sínum snærum ritara og sérstakan starfsmann er fjölmargt óljóst og hálfkarað í þessari kostulegu smíði. Þannig er vísað til nauðsynlegra breytinga á stórum lagabálkum, svo sem lögum um náttúruvernd, lögum um landgræðslu og lögum um skógrækt, án þess að nánar sé um þá endurskoðun fjallað. Þarna segir: ,,Frá 1. janúar 1990 skulu liggja fyrir endurskoðuð lög um starfsemi þessara stofnana er taki mið af breyttum rekstri.`` Það var í nefndarálitinu. Hvernig halda menn að samkomulagið verði í ríkisstjórn og á Alþingi ef þannig á að binda hendur löggjafans fyrir fram? Hefði ekki verið nær að unnið væri jafnhliða að slíkum lagabreytingum og mörgu fleira sem snertir þessa svokölluðu samræmingu?``
Og niðurstaða mín, eftir að hafa farið í gegnum þær tillögur sem þá lágu á borði ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar, voru þessar, virðulegur forseti, undir millifyrirsögninni ,,Andvana fætt plagg.``
,,Því miður hafa andstæðingar nauðsynlegra breytinga á stjórn umhverfismála enn einu sinni farið hér með sigur af hólmi. Nær alger skilningsskortur ríkir á þessum málum í forustu Sjálfstfl. Alþfl. hefur hingað til enga skoðun haft á skipan umhverfismála og Framsfl. slær úr og í. Það var því ekki við miklu að búast. Mér kæmi heldur ekki á óvart þótt þetta frumvarp dagaði uppi í þingflokksherbergjum stjórnarliðsins og enn muni nokkur tími líða uns menn nái áttum í þessum málaflokki.``
Virðulegi forseti. Þetta var tilvitnun í blaðagrein frá því í maí í fyrra. En það væri ástæða til þess að ræða hér sérstaklega hvernig á því stendur að núv. hæstv. ríkisstjórn hefur ekki komist lengra með þessi mál en raun ber vitni. Ég fjallaði um það nýlega í dagblaði. 9. febrúar 1989 birtist grein um þetta efni í DV undir fyrirsögninni ,,Sjálfstætt umhverfisráðuneyti.`` Þar leitaðist ég við að draga fram hvernig á þessum málum hefur verið tekið á þeim tíma sem þá var liðinn frá stofnun núv. ríkisstjórnar og hvernig ég leyfi mér að segja hálfgerður skollaleikur er hafinn á nýjan leik innan núv. hæstv. ríkisstjórnar varðandi þennan málaflokk, því miður. Ég sé enga ástæðu til að draga fjöður yfir þá gagnrýni af minni hálfu að það skuli ekki vera búið að taka á þessum málaflokki með þeim eina hætti sem samsvarar kröfum tímans, eðli þessa málaflokks og þeim afdrifaríku málum sem honum tengjast, umhverfismálunum, með stofnun sjálfstæðs umhverfismálaráðuneytis.
Nú hafa menn verið um nokkurra mánaða skeið innan hæstv. ríkisstjórnar að takast á um hvar eigi að vista umhverfismálin, hvort eigi að stíga skrefið til fulls, eins og Alþb. hefur lagt ríka áherslu á, og stofna sjálfstætt umhverfisráðuneyti hið fyrsta, rista fram úr þessum málum og reyna að koma þessu húsi umhverfismálanna í sæmilega skikkanlegt horf, gera það að minnsta kosti fokhelt og reyna að bæta úr með
nauðsynlegum aðgerðum í framhaldi þess, lagabótum og nauðsynlegum fjárveitingum til þessara mála og eftirliti með framkvæmd laga. Ég hlýt enn að vona að sá tími renni upp fyrr en seinna að ríkisstjórnin núverandi nái áttum í þessum málum og taki ákvarðanir svo sem hún hefur látið að liggja í málefnasáttmála þó að þar fengist ekki fram sú krafa, sem ég tel mig hafa lagt nokkra áherslu á á stuttum meðgöngutíma núverandi ríkisstjórnar, að þar yrði tekið inn ákvæði um sérstakt sjálfstætt umhverfisráðuneyti, en það er því miður ekki það ótvírætt og af þeim sökum eru menn nú að leika sér að þessum eldi og húsið brennur áfram með vanstjórn,
óstjórn og reiðuleysi í einum stærsta ef ekki allra stærsta og þýðingarmesta málaflokki okkar daga.
Ég leit við í umhverfismálaráðuneytum nágrannalandanna í nóvembermánuði sl. til þess að kanna þar fyrir hönd míns flokks og ég vona einnig fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, sem fékk uppskeruna í hendur, stöðu þessara mála og þróun í stjórnsýslu umhverfismálanna í Noregi og Danmörku, en þar hafði ég heimsótt umhverfisráðuneyti fyrir 14 árum, 1975, þá á vegum Náttúruverndarráðs, fullur vonar um að við næðum því þá skjótlega að endurmóta okkar stjórnkerfi í þá veru sem þessar nágrannaþjóðir höfðu þá gert fyrir fáum árum, 1972 og 1973, með stofnun sérstaks sjálfstæðs umhverfisráðuneytis og til að átta mig á hvernig mál hefðu skipast síðan, m.a. til að fá vitneskju um þær sögusagnir, sem embættismenn hér í stjórnkerfinu höfðu verið að hvísla í eyru ráðherra í ríkisstjórn eða ríkisstjórnum, að það væri nú kominn upp annar flötur í þessum málum. Það væri nefnilega svoleiðis að menn væru bara að skipta um skoðun. Það hefði verið mesta vitleysa hér á árum áður að setja þetta allt undir einn hatt. Nú væru menn komnir að því að dreifa þessu á nýjan leik. Þetta voru sjónarmið sem varðmenn óbreytts kerfis innan Stjórnarráðs Íslands leyfðu sér að flytja og hvísla í eyru ráðherra, ég vona ekki gegn betri vitund þó að það sé ástæða til að láta sér detta í hug að það sé af ráðnum hug að afflytja mál með þeim hætti. Það sem þarna er um að ræða er afflutningur á þeim tillögum og samþykktum sem gerðar voru á vettvangi Sameinuðu þjóðanna fyrir einu ári eða svo og kölluð hefur verið skýrsla Brundtland-nefndarinnar, kennd við formann nefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna sem Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, veitti forstöðu og vann mikið og gott starf sem leiddi til samhljóða samþykktar, að ég hygg, á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, alla vega með yfirgnæfandi meiri hluta ríkja þar, um áherslur í umhverfismálum, þar á meðal varðandi stjórnun og meðferð þessa málaflokks í löndunum.
Það er þessi uppskera og þessi samþykkt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið leiðbeinandi nú og til umræðu víða í löndum, uppskera Brundtland-nefndarinnar þar sem hefur verið unnið að því m.a. í Noregi og Danmörku á vegum sérstakra starfshópa og nefnda, þar á meðal á vegum
nefnda sem í eiga sæti, að ég hygg, ekki færri en átta af ráðherrum norsku ríkisstjórnarinnar til þess að átta sig á hvernig þessum tillögum verður framfylgt innan Noregs og í alþjóðlegu samstarfi sem Noregur á hlut að.
Hér á Íslandi hef ég bara varla heyrt nokkurn mann bera sér nafn þessarar skýrslu í munn. Tíðindin af henni hafa farið mjög lágt og sá boðskapur sem hún hefur að flytja nema afflutningur á kjarna þessa máls af hálfu þeirra sem eru að leitast við að hækka þröskuldana til þess að rista fram úr fyrirstöðunum og vilpunni sem hlaðist hefur upp í umhverfismálunum nú um langt skeið. Það stendur nefnilega í skýrslu Brundtland-nefndarinnar og samþykkt Sameinuðu þjóðanna, m.a., að það sé ekki aðeins að þetta sé einn mikilvægasti málaflokkurinn sem þurfi að fá samræmda meðferð í stjórnsýslunni undir forustu umhverfisráðuneytis, heldur þurfi jafnframt að gera alla aðila sem ábyrgasta, hvern á sínum vettvangi, til þess að tryggja framkvæmd þeirrar samræmdu stefnu sem fylgja ber í umhverfismálunum undir skilvirkri forustu. Þannig þurfi t.d. landbrn. eða það ráðuneyti sem fer með þann málaflokk og önnur atvinnumálaráðuneyti að fylgja kalli og vera ábyrg á sínu sviði, í sínum málaflokki, til þess að tryggja að hin samræmda umhverfismálastefna nái fram að ganga, t.d. að því er varðar mengun vegna tilbúins áburðar, svo að dæmi sé tekið af landbúnaðarsviðinu, sem hefur átt þátt í að auka mengunina við strendur Noregs og Danmerkur og fleiri Norðurlanda og víða í vötnum og ám. Það á ekkert hins vegar skylt við það að verið sé að leggja til eða hverfa frá þeirri stefnu að það þurfi eitt ábyrgt ráðuneyti að halda utan um þennan málaflokk, síður en svo. Ég hefði haldið að alþingismenn gerðu margt gagnsminna, ef þeir eiga leið út fyrir pollinn til nágrannalandanna, en að líta við í umhverfisráðuneytunum þar, átta sig á því hvernig haldið er á málum og hvað lagt er til þessa málaflokks í grannlöndum okkar. Það er t.d. auðvelt að glöggva sig á stöðu þessara mála í Noregi með því að líta á skipuritið yfir umhverfisráðuneytið þar, ,,miljöverndepartementet``, og í Danmörku. Og það er fróðlegt að líta t.d. í þessa grænu bók, 1989, frá norska umhverfisráðuneytinu, þar sem dregið er fram hvernig á þessum málum er tekið í norska stjórnkerfinu og hvað einstök ráðuneyti hafa tekið á sig á því herrans ári 1989 að ná fram til þess að bæta stöðu umhverfismála, hvert á sínu sviði. Í fjárlögum norska ríkisins, samþykktum af Stórþinginu, eru tugir blaðsíðna með sérstakri greinargerð fjármálaráðherrans sem leggur frv. fram um hvernig á umhverfismálum sé tekið, hvaða stefnu sé þar framfylgt, hvaða fjárveitingar séu veittar til þessa málaflokks. Þessi málstök eru að mínu mati til eftirbreytni og til að læra af þeim, en samt er það svo að grannar okkar í Noregi telja síður en svo að þessi mál séu komin á einhvern leiðarenda eða í skikkanlegt horf því að átta ráðherra nefnd er um þessar mundir að skila af sér sérstakri skýrslu til Norska stórþingsins um hvernig fylgt verði eftir áliti Sameinuðu þjóðanna, skýrslu
Brundtland-nefndarinnar. Þessi
"stortingsmelding``, eins og það heitir á máli norskra, er að koma inn í Stórþingið um þessar mundir og það er áreiðanlega vitlegt fyrir okkur sem erum að fjalla um þessi mál hér að kynna okkur það þegar hún kemur út hvernig við er brugðist í þessu grannlandi okkar sem hefur á margan hátt við ekki ósvipað vandamál að glíma í sambandi við umhverfismál, þó að hinum gífurlega uppblæstri, og landeyðingu, gróðurfarseyðingu, frátöldum sem er eitt stærsta umhverfismálið á okkar landi.
Virðulegur forseti. Það væri ástæða til þess að fjalla miklu ítarlegar um þetta mál af minni hálfu en ég geri mér ljóst að þessi mál verða ekki leyst með ræðuhöldum hér á Alþingi einum saman né tillöguflutningi svo ágætur sem hann er, ekki með honum einum saman. Það þarf vilja nógu margra þm. til þess að ná hér árangri og það sem ég vildi ekki síður sjá, aðgerðir af hálfu framkvæmdarvaldsins til þess að stíga þau skref sem hefði þurft að taka fyrir 15--20 árum síðan ef við hefðum ætlað að vera í einhverjum takt við það sem hefur verið að gerast í grannlöndum okkar.
Menn spyrja kannski: Er þetta ekki allt saman málað heldur dökkum litum af þeim sem hér talar? Er þetta ekki yfirdrifið? Er þetta ekki eitthvert bölvað ofstæki? Það verður auðvitað hver og einn sem á hlýðir að dæma um. Það hafa hins vegar þegar hent mörg óhöpp og það hefur dregist úr hömlu að grípa til aðgerða á sviði umhverfismála hér á landi vegna þeirrar tregðu sem hefur ríkt hér á löggjafarsamkomunni og innan ríkisstjórna að tryggja eðlileg tök þessara mála, eðlilega nýbreytni þessara mála. Það sem hér er verið að leggja til hefði verið góður ávinningur fyrir 10 árum síðan. Ég hefði fagnað þeirri viðleitni sem hérna kemur fram 1989 með einhverjum breytingum ef þetta hefði legið fyrir 1978. En síðan eru liðin 11 ár. Þetta er fornaldarplagg sem hér er reitt fram, algert fornaldarplagg, sem er náttúrlega svo víðs fjarri að hægt sé að mæla með að samþykkt verði hér á hv. Alþingi, því miður. ( AG: Fyrsta skrefið er alltaf upphaf.) Virðulegur þm. Albert Guðmundsson. Það er hægt að misstíga sig með sporum af þessu tagi. Þetta væri að misstíga sig. Það er betra að doka við í einhverja mánuði, missiri, jafnvel í eitt ár --- en ég vona sannarlega að sá tími líði ekki áður en menn ná áttum í þessu máli --- en að fara að leggja blessun yfir tillögur af þessu tagi.
Ég hef átt þess kost að fylgjast svolítið með meðferð þessara mála á alþjóðavettvangi nú að undanförnu og hv. síðasti ræðumaður, hv. þm. Kristín Einarsdóttir, gat um einn þátt sem varðar tök mála á þessu sviði í Evrópu, á vegum Evrópubandalagsins, og það mætti margt ræða einmitt um þátttöku okkar í alþjóðlegu samstarfi eða þátttökuleysi, vanrækslu á því sviði sem orðið hefur vegna þess að við erum með hlutina í því horfi sem raun ber vitni hér heima.
Það var haldinn fundur umhverfismálaráðherra í Vestur-Evrópu í Hollandi í apríl sl., um það leyti sem hv. 1. flm. þessa máls var að fá í hendur tillögurnar,
eða ríkisstjórn hans, sem hér eru komnar fram í frumvarpsformi. Þar voru öll sæti skipuð, að mér hefur verið tjáð, af ábyrgum ráðherrum þessara mála nema eitt. Það var sæti Íslands. Það stóð autt. Þar sem verið var að fjalla um samstarf á sviði umhverfismála í Vestur-Evrópu, nauðsynlegar alþjóðlegar aðgerðir á þessu sviði, hafði ríkisstjórn Íslands ekki fyrir því að senda einu sinni einn sendiherra til þess að vera viðstaddur á þessari alþjóðlegu samkomu og hafði þó íslenska utanrrn. hnippt í ráðherra eftir ráðherra, embættismenn þar, til að vekja athygli á þessum fundi, með góðum fyrirvara. Þetta er að gerast. Þetta gæti gerst enn í dag, óhöpp af þessu tagi, slík auglýsing á stöðu mála á Íslandi eins og birtist á þessum fundi. Og þetta er ekki eini fundurinn núna síðustu tvö árin eða svo þar sem sæti Íslands hefur staðið autt a.m.k. að meginhluta vegna þess að stjórnvöld hafa ekki hugsað fyrir því eða ekki komið sér saman um það hvaða ráðuneyti ætti að senda fulltrúa á viðkomandi samkomu.
Nei, það er mál til komið, virðulegur forseti, að óhöppum af því tagi fari fækkandi. Það eru hér mikil alvörumál á ferðinni og það er þörf á því að ræða þessi mál hér á Alþingi, ræða þann ágreining sem hér er á milli manna í þessum málum og reyna að ná saman um þessi efni, um nauðsynlegar breytingar og ég trúi ekki öðru en að hér megi takast, ef ríkisstjórnin núverandi ekki sér sóma sinn í því fyrr en seinna að koma skipan þessara mála í sæmilegt horf með stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis, að þá verði hér til meiri hluti innan veggja þingsins til þess að tryggja þá stefnu. En til þess þarf annað þingmál, annars konar frv. en það sem hér er til umræðu sem er langt frá því að vera í takt við tímann og vísa á þá leið til úrbóta í þessum málum sem við hefðum þurft að vera lagðir inn á fyrir löngu síðan.